Fáir treysta fjármálakerfinu í tengslum við viðbrögð við faraldrinum

Almanna­varnir og heil­brigð­is­stofn­anir njóta yfir­gnæf­andi trausts lands­manna hvað við­brögð við kór­ónu­veirunni varðar. Á móti segj­ast fleiri van­treysta fjár­mála­kerf­inu en bera til þess traust, sam­kvæmt nýrri könnun MMR.

Fleiri vantreysta bönkunum en treysta þeim í tengslum við viðbrögð vegna útbreiðslu kórónuveirunnar, samkvæmt könnun MMR.
Fleiri van­treysta bönk­unum en treysta þeim í tengslum við við­brögð vegna útbreiðslu kór­ónu­veirunnar, sam­kvæmt könnun MMR. Mynd: Samsett

Almanna­varnir og heil­brigð­is­stofn­anir njóta afger­andi trausts hjá íslenskum almenn­ingi þegar kemur að við­brögðum við útbreiðslu kór­ónu­veirunnar, sam­kvæmt skoð­ana­könnun MMR sem fram­kvæmd var dag­ana 18.-20. mars.

Um 90 pró­sent aðspurðra sögð­ust bera frekar eða mjög mikið traust til við­bragða bæði almanna­varna og heil­brigð­is­stofn­ana við útbreiðslu veirunnar. Traust til lög­regl­unnar mæld­ist litlu minna, eða rúm átta­tíu pró­sent.

Rúmlega helm­ingur lands­manna ber traust til Seðla­bank­ans og rík­is­stjórn­ar­innar hvað við­brögð við far­aldr­inum varðar, sam­kvæmt könn­un­inni, en 21 pró­sent aðspurðra sögð­ust bera lítið traust til rík­is­stjórn­ar­innar í tengslum við við­brögð við far­aldr­inum.

Traust til rík­is­stjórn­ar­innar fór vax­andi með auknum aldri svar­enda en 59 pró­sent í hópi elstu þátt­tak­enda kváð­ust bera mikið traust til rík­is­stjórn­ar­innar, sam­an­borið við 44 pró­sent þeirra sem voru á aldr­inum 18 til 29 ára.

Tekið skal fram að þegar könn­unin var gerð hafði rík­is­stjórnin ekki kynnt allar þær aðgerðir sem nú hafa verið boð­aðar til þess að mæta efna­hags­á­föll­unum sem fyr­ir­séð er að heims­far­ald­ur­inn valdi hér­lendis.

Þrjátíu og níu pró­sent þátt­tak­enda sögð­ust bera frekar eða mjög mikið traust til Alþingis í tengslum við við­brögð við veirunni, en 27 pró­sent bera lítið traust til Alþingis í þeim aðstæðum sem nú eru uppi.

Fleiri vantreysta fjármálakerfinu en treysta

Einu aðil­arnir af þeim sem spurt var um í könnun MMR, sem fleiri van­treysta en bera traust til, eru bank­arnir og líf­eyr­is­sjóð­irnir. Einungis 27 pró­sent segj­ast bera frekar eða mjög mikið traust til bank­anna í tengslum við við­brögð við veirunni, en 28 pró­sent segj­ast bera lítið traust til bank­anna.

[links]

Líf­eyr­is­sjóð­irnir njóta minnst traust almenn­ings af öllum þeim sem spurt var um, sam­kvæmt könn­un­inni, en 20 pró­sent segj­ast bera traust til þeirra á meðan að fjórð­ungur aðspurðra, 25 pró­sent, sögð­ust van­treysta þeim.

Píratar og miðflokksfólk vantreysta ríkistjórninni helst

Þegar traust á hinum ýmsu aðilum er brotið niður eftir yfir­lýstum stuðn­ingi við stjórn­mála­flokka sést að stuðn­ings­menn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna eru, eins og vænta mátti, lík­leg­astir til þess að treysta rík­is­stjórn­inni.

Næst þar á eftir komu stuðn­ings­menn Við­reisnar, en 62 pró­sent þeirra sögð­ust bera frekar eða mjög mikið traust til rík­is­stjórn­ar­innar.

Þeir sem lýstu yfir stuðn­ingi við Mið­flokk­inn og Pírata skáru sig nokkuð frá öðrum hvað traust á rík­is­stjórn­inni varðar, en innan við þrjá­tíu pró­sent stuðn­ings­manna beggja flokka sögð­ust treysta við­brögðum rík­is­stjórn­ar­innar við útbreiðslu veirunnar.

Stuðn­ings­fólk Sjálf­stæð­is­flokks og Við­reisnar sker sig hins vegar úr varð­andi traust á banka­kerf­inu við þessar aðstæður, en 47 pró­sent sjálf­stæð­is­manna sögð­ust treysta við­brögðum bank­anna og 40 pró­sent við­reisn­ar­fólks.

Landsmenn treysta hvorum öðrum ágætlega

Helm­ingur lands­manna treystir almenn­ingi í tengslum við við­brögð við útbreiðslu veirunnar, sam­kvæmt könn­un­inni, en 14 pró­sent sögð­ust á móti bera lítið traust til almenn­ings.

Stuðn­ings­fólk Pírata, Mið­flokks­ins og Sam­fylk­ing­ar­innar reynd­ist ólík­legra en stuðn­ings­fólk ann­arra flokka til að segj­ast bera mikið traust til almenn­ings í land­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár