Segir fjölmiðlamenn eins og klappstýrur ásakana um óviðeigandi hegðun

Brynjar Níelsson segir að nú þyki ekk­ert til­töku­mál að koma fram opin­ber­lega og saka mann og annan um hvers kyns brot eða óvið­eig­andi hegðun, sem áttu að vera framin fyrir árum eða ára­tugum síðan og með því tvístra fjöl­skyldum og eyði­leggja líf manna.

Brynjar Níelsson.
Brynjar Níelsson. Mynd: Anton Brink

Brynjar Níelsson þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir í stöðu­upp­færslu á Facebooksíðu sinni í dag að nú þyki ekk­ert til­töku­mál að koma fram opin­ber­lega og saka mann og annan um hvers kyns brot eða óvið­eig­andi hegðun, sem áttu að vera framin fyrir árum eða ára­tugum síðan og með því tvístra fjöl­skyldum og eyði­leggja líf manna.

Hann segir enn fremur að fjöl­miðlar, sem trúi að þeir séu á vegum almenn­ings og sér­stakir vernd­arar lýð­ræðis og rétt­ar­rík­is­ins, stígi ekki niður fæti, heldur þvert á móti og leggi rauðan dregil fyrir þá sem koma fram með ásak­anir af þessu tagi.

Gagnrýni Brynjars kemur sama dag og við­tal DV við frú Agnesi Sig­urð­ar­dóttur biskup Íslands birt­ist og umfjöllun um mál fyrr­ver­andi dóm­kirkju­prests; hvernig kirkjan tók á hans máli eftir að hann við­ur­kenndi kyn­ferð­is­brot gegn barni um miðja síð­ustu öld.

Brynjar segir að kærur til lög­reglu með til­heyr­andi rann­sókn þar sem sak­born­ingr geta varið sig og hugs­an­lega sannað sak­leysi sitt, sé alger óþarfi. „Dómstóll göt­unnar lætur reglur rétt­ar­rík­is­ins ekki trufla sig og sak­fellir umsvifa­laust og jafn­vel þá sem hafa verið sýkn­aðir fyrir dómi.“

Hann segir jafn­framt að fjöl­miðla­menn séu eins og hverjar aðrar klapp­stýrur í þessu ofstæki. Stjórn­mála­mennn þegi þunnu hljóði, að minnsta kosti þeir sem sé umhugað um end­ur­kjör. „Lítið heyr­ist í lög­manna­stétt­inni, sem í sögu­legu ljósi hafa verið helstu tals­menn rétt­ar­rík­is­ins. Og ekki heyr­ist boffs í þess­ari háskóla­aka­demíu, sem virð­ist vera á svip­uðu róli og fjöl­miðlar.“

Í lok færsl­unnar ráð­leggur Brynjar þeim sem vilja halda starfi sínu og jafn­vel huga að starfs­frama að læka ekki þessa færslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár