Farþegar Icelandair geta nú borgað fyrir að kolefnisjafna flug sitt

Farþegar Icelandair og Air Iceland Connect geta frá og með deg­inum í dag greitt flug­fé­lög­unum við­bót­ar­fram­lag fyrir að kolefn­is­jafna flug sitt.

Farþegar Icelandair og Air Iceland Connect geta frá og með deg­inum í dag greitt fyrir að jafna kolefn­is­fót­spor sitt við bókun flug­miða. Reiknað er út hversu mikið af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum losna við flug til áfanga­staða félags­ins og far­þegum er síðan boðið að planta ákveðið mörgum trjám til að kolefn­is­jafna hvert flug. Losun frá flug­sam­göngum innan íslenska hag­kerf­is­ins hefur auk­ist gríð­ar­lega á síð­ustu árum og er losun árs­ins 2018 áætluð um 2.781 kílótonn af CO2 ígildum.

Þrjú tré fyrir ferð til Amsterdam

Icelandair og Air Iceland Connect hafa í sam­starfi við Klappir grænar lausnir reiknað út hversu mikið af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum losna við flug til allra áfanga­staða félag­anna. Til að mynda er kolefn­is­fót­spor ein­stak­lings sem flýgur báðar leiðir frá Reykja­vík til Amster­dam í almennu far­rými 0,3 tonn og er far­þega því boðið að planta þremur trjám fyrir 639 krónur til kolefn­is­jafna flugið. Til sam­an­burðar er kolefn­is­fót­spor ein­stak­lings sem flýgur til og frá borg­inni Seattle í Banda­ríkj­unum 0,9 tonn og far­þega því boðið að planta níu trjám fyrir 1.824 krónur.

[links]Við­bót­ar­greiðsla far­þega mun renna óskert til Kolviðar sem er kolefn­is­sjóður sem stofn­aður var af Skóga­rækt­ar­fé­lagi Íslands og Land­vernd. Sjóð­ur­inn fjár­magnar aðgerðir til bind­ingar kolefnis með land­græðslu, skóg­rækt og öðrum leiðum sem draga úr nettólosun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Í frétta­til­kynn­ingu frá Icelandair Group kemur fram að félagið hafi gripið til ýmissa aðgerða á und­an­förnum árum í umhverfis- og lofts­lags­málum. Vélum fyr­ir­tæk­is­ins hefur til dæmis verið breytt með ásetn­ingu svo­kall­aðra vængugga (e. winglets) sem draga úr loft­mót­stöðu og spara þannig elds­neyti. Einnig hefur félagið inn­leitt verk­lag og ýmsar aðferðir til að lág­marka elds­neyt­is­notkun, svo sem við aðflug og lend­ingu og með inn­leið­ingu elds­neyt­is­vökt­unar til að draga úr losun.

„Neyt­endur eru með­vit­aðir um eigin kolefn­is­fót­spor og það er ánægju­legt að koma til móts við far­þega okkar sem vilja jafna kolefn­islosun sína vegna flug­ferða. Þetta er mik­il­vægt skref og í sam­ræmi við stefnu félags­ins. Þá geta við­skipta­vinir Icelandair Cargo nú þegar jafnað kolefn­islosun sína sem mynd­ast vegna flutn­inga með félag­inu,“ segir Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair Group.

Los­unin auk­ist um 2000 kílótonn síðan 2010

Flug­sam­göngur eru áfram ábyrgar fyrir með mestu los­uninni frá hag­kerfi Íslands árið 2018 eða um 2.781 kílótonn af hit­un­ar­gildum (CO2 ígildi). Losun hit­un­ar­gilda frá flug­sam­göngum innan íslenska hag­kerf­is­ins hefur auk­ist gríð­ar­lega á síð­ustu árum.

Árið 2010 var losun frá­ flug­sam­göng­um 770,6 kílótonn af hit­un­ar­gildum en los­unin í fyrra er áætl­uð 2781 kílótonn. Los­unin hefur því auk­ist um rúm­lega 2000 kílótonn á átta árum. Þetta kemur fram í los­un­ar­bók­haldi gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá hag­kerfi Íslands sem Hag­stofan heldur utan um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár