Mengandi Íslendingar auka kolefnisjöfnun

Íslend­ingar menga gíf­ur­lega mikið og virð­ast kjósa að kolefn­is­jafna losun sína í auknum mæli.

Ísland er með mestu losun frá hag­kerfi á ein­stak­ling innan ESB og EFTA svæð­is­ins sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar frá 2016. Í takt við aukna umhverf­is­vit­und og stefnu­mótun í umhverf­is­málum kolefn­is­jafna sífleiri ein­stak­lingar, fyr­ir­tæki og stofn­anir sig.

Kolefn­is­jöfnun fellst í því að reikna út hversu mikið ein­stak­lingur, fyr­ir­tæki eða stofnun menga mikið, til dæmis hversu mikil losun koltví­sýr­ings á sér stað við flug eða akstur. Ein­stak­ling­ur­inn, fyr­ir­tækið eða stofn­unin greiðir fyr­ir­tæki eða sjóði fyrir að planta trjám eða end­ur­heimta vot­lendi sem í stað­inn bindur sama magn af kolefni.

[adspot]Tvö fyr­ir­tæki og sjóðir bjóða upp á kolefn­is­jöfnun á Íslandi, það eru Vot­lend­is­sjóður og Kolviður. Í svari frá Umhverf­is­stofnun við fyr­ir­spurn Kjarnans er ekki vitað um fleiri fyr­ir­tæki eða sjóði sem bjóði upp á kolefn­is­jöfnun önnur en hin fyrr­greindu. 300 ein­stak­lingar hafa kolefn­is­jafnað sig það sem af er ári hjá Kolviði og 96 ein­stak­lingar hjá Vot­lend­is­sjóði.

Endurheimt votlendis

Alls hafa 18 fyr­ir­tæki og stofn­anir kolefn­is­jafnað sig með fram­lagi til Vot­lend­is­sjóðs, þar af níu fyr­ir­tæki á þessu ári. Á síð­asta ári greiddu 45 ein­stak­lingar til sjóðs­ins en nú hafa alls 96 ein­stak­lingar greitt til hans, að því er kemur fram í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans. Sumir ein­stak­ling­anna greiddu fleiri en eina greiðslu og flestir eru lík­lega að kolefn­is­jafna ferðir og lífs­stíl sinn, segir í svar­inu.

Bjarni Jónsson, fram­kvæmda­stjóri Vot­lend­is­sjóðs, seg­ist finna fyrir veru­lega auknum áhuga ein­stak­linga á kolefn­is­jöfnun. „Ég skynja einnig áhuga fyr­ir­tækja á að taka ábyrgð á fótspori rekstrar og tel að þau munu í síauknum mæli leita til Vot­lend­is­sjóðs­ins með jöfnun þar sem end­ur­heimt vot­lendis er til­tölu­lega ein­föld en mjög áhrifa­mikil aðgerð sem skilar sér á nokkrum vikum eða í mesta lagi mán­uðum,“ segir Bjarni í svar­inu.

Á heima­síðu Vot­lend­is­sjóðs eru fjórar leiðir nefndar sem hægt er að nýta. Til að mynda er hægt að leggja inn á vot­lend­is­sjóð­inn sem sér um að end­ur­heimta vot­lendið, í öðru lagi geta land­eig­endur end­ur­heimt vot­lendi á eigin vegum á eigin landi, einnig er hægt að end­ur­heimta vot­lendi á ann­arra landi sem henti til að mynda félaga­sam­tökum eða verk­taka­fyr­ir­tækjum og að lokum geta stór­kaup­endur styrkt sjóð­inn tl að end­ur­heimta stórt svæði.

Skógrækt vinsæll kostur

Kolviður áætlar að um 80 fyr­ir­tæki kolefn­is­jafni sig árið 2019. Árið 2018 kolefn­is­jöfn­uðu um 45 fyr­ir­tæki sig og 2017 rétt rúm­lega 30 fyr­ir­tæki, að því er kemur fram í svari Kolviðar við fyr­ir­spurn Kjarnans.

66 ein­stak­lingar kolefn­is­jöfn­uðu sig á árinu 2018 en um 300 ein­stak­lingar hafa kolefn­is­jafnað sig það sem af er ári 2019. Því er ljóst að vin­sældir kolefn­is­jöfn­unar hafa auk­ist gíf­ur­lega. Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans segir fyr­ir­tækið sig finna fyrir miklum áhuga á kolefn­is­jöfnun.

Á heima­síðu Kolviðar er hægt að sjá lista yfir fyr­ir­tæki sem hafa kolefn­is­jafnað sig. Jafn­framt er hægt að reikna sitt eigið kolefn­is­spor. Til dæmis kostar um þús­und krónur að kolefn­is­jafna flug fram og til baka til Kaup­manna­hafnar. Á heima­síðu Kolviðar stendur að ein­stak­lingar geti kolefn­is­jafnað losun af öku­tækjum sínum eða flugi og sigl­ingum.

Bláa Lónið skrif­aði nýverið undir samn­ing við Kolvið sem er jafn­framt stærsti samn­ingur Kolviðar hingað til að því er segir í frétta­til­kynn­ingu Bláa Lónsins. Áætlað er að 18.000 tré verði gróð­ur­sett árlega til að tryggja kolefn­is­bind­ing­una.

Ríkið tekur þátt

Stjórn­ar­ráð Íslands hyggst raga úr losun sinni á koltví­sýr­ing um sam­tals 40 pró­sent fyrir árið 2030 og stefnir það á að hafa verið kolefn­is­hlut­laust í meira en tíu ár árið 2030 og binda að auka meira CO2 en það los­ar.

[links]Í frum­varpi Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, er lögð sú skylda á Stjórn­­­ar­ráð Íslands, stofn­­anir rík­­is­ins og fyr­ir­tæki í meiri­hluta­eig­u ­­rík­­is­ins að þau skuli setja sér lofts­lags­­stefnu.

Íslendingar menga mikið

Samkvæmt Hag­stof­unni var Ísland með mestu losun frá hag­kerfi á ein­stak­ling innan ESB og EFTA svæð­is­ins árið 2016.

Losun Íslands kemur að stærstum hluta frá flugi og fram­leiðslu málma.

Íslend­ingar henda líka mikið af fötum. Samkvæmt Umhverf­is­stofnun fer 60 pró­sent af vefn­að­ar­vöru á Íslandi í ruslið og endar annað hvort í urðun eða brennslu. Aðeins 40 pró­sent fer í end­ur­notkun og end­ur­nýt­ingu.

[adspot]Á síð­asta ári sendi Rauði kross­inn 3.000 tonn af textíl erlendis, sam­kvæmt flokk­un­ar­stöð Rauða Krossins. Það er um 230, fjör­tíu feta, gámar á hverju ári, eða að með­al­tali fjórir og hálfur gámur í hverri viku.

Íslend­ingar fljúga einnig mikið. Til að mynda var heild­ar­losun Stjórn­ar­ráðs­ins 1.377 tonn árið 2018, þar af var losun vegna flug­ferða á vegum ráðu­neyt­anna og Rek­star­fé­lags Stjórn­ar­ráðs­ins 963,4 tonn. Mest var losun utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins eða alls 403 tonn af koltví­sýr­ing vegna flug­ferða í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár