Flugsamgöngur áfram ábyrgar fyrir mestu losuninni

Losun hit­un­ar­gilda frá flug­sam­göngum innan íslenska hag­kerf­is­ins hefur auk­ist gríð­ar­lega á síð­ustu árum. Árið 2010 var losun frá flug­sam­göngum 770,6 kílótonn af hit­un­ar­gildum en los­unin í fyrra er áætluð 2781 kílótonn.

Losun vegna flutn­inga með flugi jókst um tæp 27 pró­sent frá árinu 2016 til árs­ins 2017. Þá er áætlað að losun frá þessum geira í fyrra sé 5 pró­sent hærri en árið áður eða 2781 kílótonn af hit­un­ar­gildum( CO2 ígildi). Þetta kemur fram í los­un­ar­bók­haldi gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá hag­kerfi Íslands sem Hag­stofan heldur utan um.

Losunin aukist um 2000 kílótonn síðan 2010

[links]Losun hit­un­ar­gilda er ekki það er ekki sama og losun koltví­sýr­ings heldur einnig losun ann­arra loft­teg­unda. Sú losun sem um er að ræða í los­un­ar­bók­haldi Hag­stof­unnar er sú losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá hverri hag­kerf­is­ein­ingu sem íslenskt hag­kerfi byggir á auk heim­ila. Losun þarf því ekki að eiga sér stað á land­svæði Íslands, heldur þarf ákvörð­un­ar­taka um notkun efna og þar með losun að vera í höndum inn­lendra aðila.

Flug­sam­göngur eru áfram með mestu los­un­ina frá hag­kerfi Íslands árið 2018 en losun hit­un­ar­gilda frá flug­sam­göngum innan íslenska hag­kerf­is­ins hefur auk­ist gríð­ar­lega á síð­ustu árum. Árið 2010 var losun frá flug­sam­göngum 770,6 kílótonn af hit­un­ar­gildum en los­unin í fyrra er áætluð 2781 kílótonn. Losunin hefur því auk­ist um rúm­lega 2000 kílótonn á átta árum.

Losun frá sjósamgöngum aukist um 70 prósent

Losun hit­un­ar­gilda frá sjó­sam­göngum hefur einnig auk­ist nokkuð á síð­ustu árum en sam­kvæmt Hag­stof­unni kemur þar inn aukin notkun á jarð­efna­elds­neyti og á kæli­m­iðlum í flutn­ingum. Í þessum lið eru flutn­inga­skip og skip sem notuð eru til skemmti­sigl­inga, að því gefnu að þessi skip séu með inn­lendan rekstr­ar­að­ila. Erlend skemmti­ferða­skip, flutn­inga­skip og ferjur eru hins vegar utan við los­un­ar­bók­hald hag­kerfis Íslands. [adspot]

Frá árinu 2010 til 2017 jókst losun á CO2 ígildum frá sjó­sam­göngum um 253,8 kílótonn, eða um nær 70 pró­sent frá 2010 en þetta tíma­bil ein­kennd­ist af miklum vexti í ferða­manna­iðn­aði. Hag­stofan áætlar að losun frá skipa­flot­anum fari fram úr losun frá land­bún­aði og mat­væla­iðn­aði fyrir árið 2018 en áætluð losun frá skipa­flot­anum er 672 kílótonn á síð­asta ári en losun frá land­búbaði og mat­væla­iðn­aði 650 kílótonn.

Fyrirhuguð losun frá kísiliðnaði er 1080 kílótonn

Á und­an­förnum árum hefur verið unnið að upp­bygg­ingu kís­il­iðn­að­ar­ins á Íslandi en sam­kvæmt mats­á­ætl­unum fyrir sam­þykktum fram­kvæmdum verður losun frá þessum iðan­aði allt að 1080 kílótonn af CO2 þegar fram­leiðslan nær fullum afköstum.

Þessi losun bæt­ist þá, að óbreyttu, við þau 1.819 kílótonn ígilda sem nú þegar koma frá málm­fram­leiðslu, eða allt að 60 pró­sent til við­bótar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár