Aldrei fleiri Íslendingar til útlanda

Ný könnun Ferða­mála­stofu sýnir að áhugi Íslend­inga á ferða­lögum hefur auk­ist. Aldrei hafa fleiri svar­endur í könn­un­inni sagst hafa farið erlendis.

Samkvæmt nýrri könnun Ferða­mála­stofu þá hafa Íslend­ingar aldrei ferð­ast meira til útlanda, en á síð­asta ári, en könn­unin hefur verið gerð með sam­bæri­legum hætti frá árinu 2010.

Um 80 pró­sent svar­enda sögð­ust hafa farið til útlanda, og með­al­talið var um 2,6 ferðir á ári. Bretland var vin­sæl­ast en þar á eftir komu Spánn og Portúgal.

Sé horft til ferða­laga inn­an­lands þá fóru um 84 pró­sent svar­enda í 6,2 ferðir á ári, og var meg­in­til­gang­ur­inn að taka sér frí eða skemmta sér, eins og von er.

Könnunin hefur verið fram­kvæmd árlega með sam­bæri­legum hætti frá árinu 2010.

Í henni eru þátt­tak­endur beðnir um að taka afstöðu til nokk­urra full­yrð­inga um áhrif ferða­þjón­ustu og er áhuga­vert að sjá hvernig við­horfin hafa breyst ár frá ári. „Svo virð­ist sem greina megi aukna jákvæðni til flestra þátta sem spurt er um frá því í fyrra,“ segir í umfjöllun Ferða­mála­stofu.

Um níu svar­endur af hverjum tíu áforma ferða­lög á yfir­stand­andi ári og eru ferða­á­form fjöl­breytt sem fyrr. Um helm­ingur nefndi sum­ar­bú­staða­ferð og borg­ar­ferð erlendis, litlu færri heim­sókn til vina og ætt­ingja og 37% stefna á sól­ar­landa­ferð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár