Katrín og Sigurður Ingi þau einu sem fleiri treysta en vantreysta

Formaður Vinstri grænna er eini leið­tog­inn í íslenskum stjórn­málum sem meiri­hluti lands­manna seg­ist treysta, sam­kvæmt nýrri könnun frá MMR.

Sigurður Ingi og Katrín fyrir hartnær fjórum árum, er þau mynduðu ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum.
Sigurður Ingi og Katrín fyrir hart­nær fjórum árum, er þau mynd­uðu rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Sigurður Ingi Jóhanns­son sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra eru einu tveir leið­togar stjórn­mála­flokk­anna sem fleiri lands­menn segj­ast bera traust til en van­treysta. Þetta kemur fram í nýrri könnun frá MMR um traust til stjórn­mála­leið­toga, sem birt var í dag.

Katrín er í sér­flokki hvað traust varðar, en 55,2 pró­sent lands­manna segj­ast treysta for­manni Vinstri grænna, en ein­ungis 22,7 pró­sent van­treysta henni. Sigurður Ingi for­maður Fram­sóknar nýtur svo traust 38,4 pró­senta aðspurðra í könnun MMR, en 26,9 pró­sent segj­ast bera frekar eða mjög lítið traust til hans.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks kemur í þriðja sæti hvað traust varðar, en 29,1 pró­sent segj­ast bera traust til hans. Á móti kemur að rúm­lega helm­ingur lands­manna, eða 55,5 pró­sent, segj­ast bera lítið traust til Bjarna.

Traust til allra leið­toga rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja hefur þó auk­ist síð­ast­liðin tvö ár, og njóta þeir meira trausts en aðrir leið­togar í íslenskum stjórn­málum. Síðast þegar það var spurt, í nóv­em­ber 2020, sögð­ust 48 pró­sent treysta Katrínu, 31 pró­sent Sigurði Inga og 29 pró­sent Bjarna.

Leið­togar Við­reisnar, Pírata og Sam­fylk­ingar eru á fremur svip­uðum slóðum í þess­ari nýju könnun MMR.

20,4 pró­sent segj­ast treysta Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, en 43,3 pró­sent bera lítið traust til hennar. Halldóra Mogensen er full­trúi Pírata í þess­ari könnun, og segj­ast 19,7 pró­sent treysta henni en 42,5 pró­sent van­treysta.

Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar nýtur svo trausts 16,6 pró­senta lands­manna, en á móti kemur að 49,7 pró­sent segj­ast bera lítið traust til Loga.

Fleiri vantreysta Sigmundi Davíð en Gunnari Smára

Aðrir stjórn­mála­leið­togar njóta minna trausts. 13,5 pró­sent aðspurðra segj­ast bera traust til Ingu Sæland for­manns Flokks fólks­ins en 56,1 pró­sent segj­ast bera lítið traust til hennar.

[adspot]

Gunnar Smári Egilsson full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins nýtur trausts 7,8 pró­senta lands­manna, og mælist traust til hans 0,1 pró­sentu­stigi hærra en til Sig­mundar Davíð Gunn­laugs­sonar for­manns Mið­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Fleiri segj­ast bera lítið traust til Sig­mundar en Gunnars Smára, eða 76,4 pró­sent á móti 63,2 pró­sentum.

Eitt komma tvö pró­sent lands­manna segj­ast síðan bera traust til Guð­mundar Frank­líns Jóns­sonar for­manns Frjáls­lynda lýð­ræð­is­flokks­ins, en 82,9 pró­sent segj­ast bera lítið traust til for­seta­fram­bjóð­and­ans fyrr­ver­andi.

Nánara nið­ur­brot könn­un­ar­innar má nálg­ast á vef MMR.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár