Hve margir eru myrtir?

Morð eru ekki meðal algeng­ustu dán­ar­or­saka í heimi hér. En hversu mörg eru þau á hverju ári og hvar er hættu­leg­ast að eiga heima?

Vettvangur glæps
Vett­vangur glæps Margir halda sjálf­sagt að Banda­ríkin séu mjög ofar­lega á blaði en því fer raunar fjarri. Þau eru í kringum 60. sæti í heim­inum öllum; sumir listar segja 64. sæti. Mynd: AFP

Á marfl­atri slétt­unni í Arkansas-ríki í Banda­ríkj­unum, 30 kíló­metra í vestur frá Miss­issippi-fljót­inu mikla og 55 kíló­metra í norð­vestur frá Memphis Tennessee, er bær­inn Lepanto.

Hann heitir af ókunnum ástæðum eftir skag­anum Lepanto í Kór­in­tuflóa á Grikk­landi þar sem var háð fræg sjóorr­usta milli Tyrkja og krist­inna Evr­ópu­manna árið 1571. Bærinn Lepanto í Arkansas fór aftur á móti að vaxa upp um miðja 19. öld. Annars vegar var þar stundað skóg­ar­högg en hins vegar var bær­inn mið­stöð fram­ræslu á gríð­ar­legu mýr­lendi þar í sveitum.

Nú er Lepanto frið­sæl þjón­ustu­mið­stöð fyrir sveit­irnar í kring. Íbúar eru rétt rúm­lega 1.600. Bæj­ar­stjór­inn heitir Henry Tucker og náði kosn­ingu í fyrra­haust aðal­lega með því að lofa að flikka upp á ásýnd Main Street sem liggur gegnum bæinn.

Xinguangwu við rætur Kínamúrsins

Xinguangwu heitir bær einn í Kína norð­an­verðu, hann er í mynni hrjóstrugs fjalla­dals í Yanmen-fjöllum í Shanxi-hér­aði. Um þessi fjöll og slétt­una þar sem þorpið rís, þar liggur Kína­m­úr­inn og hluti af múr­num eru raunar bæj­ar­mörk Xinguangwu.

Stór­borgin Shuozhou er í 30 kíló­metra fjar­lægð frá þorp­inu svo þangað sækja þorps­búar flestalla sína þjón­ustu en sjálfir sýsla þeir helst í kringum ferða­menn sem koma að skoða múr­inn.

Þarna djúpt inni í landi er dæmi­gert meg­in­lands­lofts­lag svo íbú­arnir 1.600 ganga létt­klæddir í 30 stiga hita á sumrin en reyna að klæða af sér hörku­frost á vet­urna.

Funadhoo á Maldíve-eyjum

Funadhoo heitir þorp á sam­nefndri eyju sem telst til Maldíve-eyja­kla­s­ans í Ind­lands­hafi. Þar er flug­völlur sem er reyndar bara ein flug­braut, enda myndi Funadhoo-eyja ekki rúma víð­áttu­mikið vall­ar­stæði. Eyjan er þriggja kíló­metra löng en aðeins 585 metrar á breidd þar sem hún er breið­ust.

Þorpið Funadhoo er eins konar höf­uð­staður nálægra eyja en Maldíve-eyjar eru, eins og allir vita, afar margar, smáar, dreifðar og fámennar. Flestallir vinna við flug­völl­inn eða höfn­ina, því Funadhoo er sam­göngu­mið­stöð á nyrðri hluta eyja­kla­s­ans. Börn ganga í ágætan skóla sem er í þorp­inu en lifa ann­ars sér­lega áhyggju­lausu lífi, að sögn. Þre­menn­ing­arnir Ibra­him­fulhu, Nazeer og Khalidh mynda þorps­ráðið og taka þær ákvarð­anir sem þarf að taka fyrir hönd hinna 1.600 íbúa.

Ef allir væru nú myrtir

Reynið nú að sjá fyrir ykkur íbúa þess­ara þriggja smá­bæja.

Til dæmis afgreiðslu­pilt­inn Sam á verk­stæð­inu Big Boy Towing & Repair í Lepanto.

Eða hana Yeng Yī Nuò gömlu í Xinguangwu sem gefur flæk­ingskött­unum við Kína­m­úr­inn.

Eða þá tán­ings­stúlk­una Shadiyu í Funadhoo sem dreymir um að kom­ast burt áður en hún verður seld ein­hverjum ríkum túrista í fyrsta sinn.

Og hugsið ykkur svo að allir 1.600 íbúar ein­hvers af þessum þremur bæjum væru myrtir á einum degi.

Eða þá allir íbúar í Sand­gerði, Þor­láks­höfn, Höfn í Horna­firði, en það eru þeir íslensku bæir sem eru senni­lega næstir Lepanto, Funadhoo og Xinguangwu að íbúa­fjölda.

„Venjuleg“ morð

Allir íbúar í ein­hverjum þess­ara bæja skotnir, stungnir, hengdir, kyrktir, lamdir, kæfðir – svo fátt eitt sé talið. Þurrk­aðir út á einum sól­ar­hring.

En þetta er einmitt það sem ger­ist á hverjum degi.

Um það bil 1.600 manns týna lífi fyrir morð­ingja­hendi.

Þetta gera um 580.000 manns á ári. Sem myndi nokkurn veg­inn sam­svara því að allir íbúar Dublinar eða Gauta­borgar væru myrtir á ári hverju. 

Rétt er að taka fram að þessar tölur eru ekki óyggj­andi. Í sumum skýrslum eru tölur yfir morð lægri og „aðeins“ 480.000 eru talin myrt á einu ári. „Aðeins“ um 1.500 á dag. Í öðrum skýrslum virð­ist morða­fjöld­inn meiri. Það verður ekki útkljáð hér. En nokkurn veg­inn svona er mann­fallið.

Og inni í töl­unum eru ekki eig­in­leg stríðs­á­tök eins og í Úkraínu.

Hér er bara átt við „venju­leg“ morð. Á hinn bóg­inn eru morð sem framin eru af víga­sveitum hryðju­verka­manna og glæpa­manna alls konar talin með.

Bílslys drepa fleiri en morð

Það er líka rétt að taka fram að morð eru ekki meðal allra algeng­ustu dán­ar­or­saka í heim­inum í heild.

Þau virka næsta mein­laus miðað við hjarta­sjúk­dóma sem drepa tæp­lega 20 millj­ónir manna á ári (álíka marga og búa í Kaíró með öllum úthverfum), krabba sem drepur rúmar 10 millj­ónir (París!) og lungna­sjúk­dóma sem drepa á ári 4 millj­ónir (Berlín, tæp­lega þó).

Bílslys drepa meira en helm­ingi fleiri en eru myrtir á hverju ári og örlítið fleiri falla fyrir eigin hendi en ann­arra.

Sjálfs­víg eru í 15. sæti dán­ar­or­saka sam­kvæmt nýrri skýrslu, morð og mann­dráp í 17. sæti.

En samt – að svo margir eins og sam­svara íbúum í heilum smábæ séu myrtir í heim­inum á hverjum degi, myrtir af alls konar ástæðum, heift, grægði, stjórn­leysi, hreinni mann­vonsku – það segir ekki fal­lega sögu.

Hve hættuleg eru Bandaríkin?

En hver eru hættu­leg­ustu ríkin?

Margir halda sjálf­sagt að Banda­ríkin séu mjög ofar­lega á blaði en því fer raunar fjarri. Þau eru í kringum 60. sæti í heim­inum öllum; sumir listar segja 64. sæti. Morða­tíðnin þar er í kringum 6,5 á hverja 100.000 þús­und íbúa á ári.

Það er ekki mikið miðað við hættu­leg­ustu ríkin í Mið-Ameríku þar sem 30–50 af hverjum 100.000 íbúum falla fyrir morð­ingja­hendi á hverju ári. Af hinum stærri ríkjum Norður- og Suður-Ameríku eru aðeins Argent­ína, Kúba og Tjíle neðar á list­anum en Banda­ríkin en þar munar þó ekki mjög miklu – og svo er Kanada með „ekki nema“ 2/100.000 sam­kvæmt þessum skala, og lík­ist meira Evrópu- en Amer­íku­ríkjum hvað þetta snertir.

Það er nefni­lega merki­legt þegar staða mála í Banda­ríkj­unum er höfð í huga að þótt þau séu ekki mjög ofar­lega á morða­list­anum í heim­inum í heild, þá eru þau miklu hærri en flest­öll Evr­ópu­ríki.

Tæplega 11 þúsund morð á ári í Rússlandi

Raunar hefur aðeins eitt Evr­ópu­ríki verið ofar á lista en Banda­ríkin að und­an­förnu en það er Rússland.

Milli 7 og 8 Rússar af hverjum 100.000 hafa fallið fyrir morð­ingja­hendi á ári und­an­farið. Árið 2020 voru 10.697 Rússar myrtir. Það eru álíka margir og allir íbúar Mos­fells­bæjar.

Annað Evr­ópu­land hefur svo verið á svip­uðum hlut­falls­slóðum og Banda­ríkin (það er að segja góðum spöl neðar en Rússland) en það er Úkraína. Upp­lýs­ingar um þessi lönd eru frá því fyrir inn­rás Rússa.

Í þriðja sæti Evr­ópu­ríkja er Litáen og kemur kannski ýmsum á óvart. Þar hefur talan verið milli 3,5–4,5 und­an­farin ár. Það eru rúm­lega 100 morð á ári. Næst á eftir Litáen koma hin Eystra­salts­ríkin, Lettland og Eistland, og svo Belarús, Svart­fjalla­land, Kósóvó, Moldóva og Albanía.

Geisar morðæði í Svíþjóð?

Hættu­leg­ustu Norður- og Vestur-Evr­ópu­ríkin eru Belgía og Finnland, Malta og Rúmenía með um 1,6 myrta ári/100.000. Það þýðir tæp­lega 100 í Finn­landi á ári en tæp­lega 200 í Belgíu.

Flest Evr­ópu­ríki eru með tölur kringum 1. Kannski kemur ein­hverjum á óvart miðað við stöðugar fréttir um glæpa­öldu í Svíþjóð að morða­tíðnin þar er ekki nema örlítið hærri en í Danmörku. Árið 2020 voru 124 myrt í Svíþjóð (1,2) en 55 í Danmörku. (1,0).

Bretland er mjög á sömu slóðum með tæp­lega 800 morð á ári (1,1) hvað sem morða­tíðn­inni í Misomer líður.

Af hinum fjöl­menn­ari ríkjum Evrópu er morða­tíðni lægst í Noregi, Spáni, Hollandi, Ítalíu, Slóveníu og Sviss eða 0,5–0,6.  

Hverjir eru hættulegastir konum? Nú, eiginmennirnir

Konur eru „aðeins“ 20 pró­sent af þeim sem falla fyrir morð­ingja­hendi.

Rúmlega þriðj­ungur kvenna, 34 pró­sent, eru myrtar af maka sínum. Tíðni þess­ara morða virð­ist fara hækk­andi. Af öðrum myrtum konum eru 24 pró­sent drepin af ein­hverjum öðrum í fjöl­skyld­unni. Sorglega oft er þar um að ræða hin svoköll­uðu „heið­urs­morð“ sem mætti nú fara að kalla eitt­hvað annað. „Aðeins“ 42 konur af hverjum 100 eru sem sé myrtar af ein­hverjum öðrum en sinni nán­ustu fjöl­skyldu.

Mjög margar þeirra voru vænd­is­konur.

Ára­tug­inn 2008–2017 hefur verið reiknað út að 205.153 börn á aldr­inum frá fæð­ingu og til 14 ára hafi verið drepin – lang­flest af nánum ætt­ingjum. 60 pró­sent þess­ara dánu barna voru drengir, 40 pró­sent stúlkur. Athygl­is­vert er og sorg­legt að þótt morða­tíðni í Evrópu sé yfir­leitt mun lægri en ann­ars staðar, þá virð­ist tíðni barns­morða vera hærri þar en á flestum stöðum öðrum. Það er umhugs­un­ar­efni. 

Ódýr mannslíf

Morða­tíðni er afdrátt­ar­laust hæst í ríkjum þar sem jöfn­uður í lífs­kjörum er lít­ill, rétt­ar­ríki veikt og jafn­rétti kynj­anna skammt á veg komið. Þar vekur auð­vitað sér­staka og sorg­lega athygli hve ódýr manns­lífin virð­ast vera í Mið-Ameríku og Karí­ba­hafi, sem og í mörgum Afr­íku­löndum.

En ekk­ert er algilt og af ein­hverjum ástæðum hefur Senegölum tek­ist að halda mann­drápa­plág­unni í skefjum, þótt landið sé land­fræði­lega og sam­fé­lags­lega náskylt ýmsum Afr­íku­ríkjum þar sem morða­tíðni er ótta­lega há.

Senegal keppir nefni­lega við Japan, Oman, Singapúr og Andorra um neðsta sætið á þessum ljóta lista.

Hættulegustu ríki heims

Sjáum morða­tíðni á ári miðað við 100.000 íbúa í nokkrum löndum. Fyrst koma tíu hættu­leg­ustu löndin, svo nokkur önnur til sam­an­burðar og fróð­leiks.

Tölurnar eru frá World Population Review. Athugið að þær eru ekki greyptar í stein. Þær eru ekki allar frá sama ári og svo­lítið mis­áreið­an­legar. En þær segja sína sögu.

1 El Salvador, Mið-Ameríku 52,0

2 Jamaíka, Karí­ba­hafi 43,8

3 Lesotho, Afríku 43,5

4 Hondúras, Mið-Ameríku 38,9

5 Belís, Mið-Ameríku 37,7

6 Venes­ú­ela, Suður-Ameríku 36,6

7 St.Vincent, Karí­ba­hafi 36,5

8 Suður-Afríka, Afríku 36,4

9 St.Kitts & Nevis, Karí­ba­hafi 36,9

10 Nígería, Afríku 34,5

Nokkur önnur lönd (og eitt sjálfstjórnarsvæði) sem ekki eru nefnd í greininni:

13 Mexíkó, Mið-Ameríku 29,0

16 Brasilía, Suður-Ameríku 27,3

61 Grænland, Evrópu 5,3

81 Indland, Asíu 3,8

130 Bretland, Evrópu 1,2

132 Frakk­land, Evrópu 1,2

142 Þýska­land, Evrópu 0,9

145 Ísland, Evrópu 0,8

151 Pólland, Evrópu 0,7

159 Kína, Asíu 0,5

166 Indónesía, Asíu 0,4

171 Japan, Asíu 0,2

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Rögnvaldur Óskarsson skrifaði
    Grænland tilheyrir Norður Ameríku, Mexíkó reyndar líka.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár