FL Group-topparnir sem fóru í ferðaþjónustuna

Lárus Welding, Pálmi Har­alds­son og Magnús Ármann voru útrás­ar­vík­ingar tengdir Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni og FL Group fyrir banka­hrun en eru núna orðnir stórir í ferða­þjón­ustu. FL Group varð að Stoðum sem fjár­festir í Bláa lón­inu og Arctic Adventures.

Stýrðu FL Group
Stýrðu FL Group FL Group varð að Stoðum sem nú er orð­inn umfangs­mik­ill fjár­festir í ferða­þjón­ustu.

Menn­irnir sem stýrðu FL Group fyrir hrun eru nú umsvifa­miklir í ferða­þjón­ust­unni á Íslandi sem blómstrar sem aldrei fyrr. Lárus Welding, Pálmi Har­alds­son, Magnús Ármann og Jón Sig­urðs­son hafa fjár­fest í ferða­þjón­ustu und­an­farin ár en tengd­ust alræmdum málum fyrir og eftir hrun íslensku bank­anna haustið 2008. 

Lárus, sem var banka­stjóri Glitnis fram að banka­hrun­inu 2008, er nú rekstr­ar­stjóri fjár­fest­inga­fyr­ir­tæk­is­ins Stoða. Stoðir er einn stærsti fjár­festir í ferða­þjón­ustu á Íslandi. Félagið á 7 pró­sent hlut í Bláa lón­inu sem rekur bað­staði og hótel og 39 pró­senta hlut í Arctic Adventures sem skipu­leggur hóp­ferðir á Íslandi fyrir ferða­menn.

Lárus varð þjóð­þekktur árið 2007 þegar hann var ráð­inn til Glitnis eftir yfir­töku FL Group á bank­anum. FL Group breytti um nafn árið 2008 og varð að Stoðum en þá var Jón Ásgeir Jóhann­es­son …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    ALLT SNÝST UM PENÍNGA Í BLESSUÐU JARÐARLÍFINU ANNAÐ ÞÝÐIR EKKERT TIL AÐ KOMAST AF HER Í ÞESSUM VOLAÐA HEIMI
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðamannalandið Ísland

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár