Segir rekstrarhagnað 365 hafa verið nálægt milljarði árið 2015

365 miðlar juku rekstr­ar­af­komu sína um 53 pró­sent á milli ára, sam­kvæmt óend­ur­skoð­uðum tölum fyr­ir­tæk­is­ins. For­stjór­inn segir 365 í sókn­ar­hug. Fjár­mála­stjór­inn hætti í síð­ustu viku eftir fimm mán­uði í starfi.

Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri 365
Sævar Freyr Þrá­ins­son, for­stjóri 365

Rekstr­ar­hagn­aður fjöl­miðla­sam­steypunnar 365 var nálægt einum millj­arði króna á árinu 2015 fyrir fjár­magns­kostnað, afskriftir og skatta, sam­kvæmt óend­ur­skoð­unum rekstr­ar­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins. Þetta segir Sævar Freyr Þrá­ins­son, for­stjóri 365 og starf­andi fjár­mála­stjóri. Tilkynnt var um þessar rekstr­ar­tölur á starfs­manna­fundi í gær­morgun klukkan 11.

Á árinu 2014 tap­aði 365 sam­tals 1,4 millj­arði króna þrátt fyrir að 445 millj­ónir króna hefðu verið greiddir inn sem nýtt hlutafé. Velta fyr­ir­tæk­is­ins dróst saman um tæp­lega 400 millj­ónir króna á því ári og skuldir þess hækk­uðu um tæpan millj­arð króna. Þær stóðu í 8,9 millj­örðum króna í árs­lok þess árs. Tapið hefði orðið hærra ef ekki hefði verið fyrir upp­safnað skatta­legt tap því tap 365 fyrir tekju­skatt nam rúm­lega 1,6 millj­arði króna. Það er svipuð upp­hæð og 365 hagn­að­ist sam­tals um síð­ustu fjögur árin á undan. Samkvæmt árs­reikn­ingi árs­ins 2015 átti enn eftir að færa end­ur­á­lagn­ingu skatta upp á 372 millj­ónir króna í rekstr­ar­reikn­ing 365, en sú end­ur­á­lagn­ing var stað­fest af yfir­skatta­nefnd í júlí 2015.

Því er um mik­inn við­snún­ing að ræða á rekstri 365 sam­kvæmt þeim tölum sem Sævar kynnti á starfs­manna­fund­inum í gær­morgun.

Fjármálastjórinn hætti eftir fimm mánuði í starfi

365 aug­lýsti eftir nýjum fjár­mála­stjóra í fjöl­miðlum um liðna helgi. Guðmunda Ósk Krist­jáns­dóttir hætti sem fjár­mála­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins í síð­ustu viku eftir ein­ungis fimm mán­uði í starfi. Hún kom til 365 frá Lands­bank­anum og fór aftur þangað, að sögn Sævars. „Hún ákvað að fjár­mála­geir­inn heill­aði og fór aftur til bank­ans.” Sævar sinnir starf­inu þar til nýr fjár­mála­stjóri hefur verið ráð­inn.

365 fór í útboð með öll banka­við­skipti sín í fyrra­haust, en fyr­ir­tækið hafði verið í þjón­ustu hjá Lands­bank­anum árum saman. Í kjöl­far útboðs­ins ákvað 365 að ganga til samn­inga við Arion banka sem nú er við­skipta­banki fyr­ir­tæk­is­ins. Í til­kynn­ingu vegna þessa, sem send var út í nóv­em­ber 2015, sagði að útboð á banka­við­skiptum væri liður í því að „und­ir­búa félagið betur fyrir mögu­lega skrán­ingu félags­ins í Kauphöll Íslands“.

Engar uppsagnir standa fyrir dyrum

Sævar segir rekstur 365 ganga vel og að hagn­aður fyrir fjár­magns­kostnað, afskriftir og skatta (EBITDA) hefði auk­ist um 53 pró­sent frá fyrra ári þegar miðað sé við reglu­lega starf­semi, þó töl­urnar séu óend­ur­skoð­aðar. „Rekst­ur­inn er að þró­ast í rétta átt og und­ir­liggj­andi starf­semi er að styrkj­ast. Við erum mjög ánægð með þró­un­ina núna. Við ætlum okkur þó alltaf eitt­hvað meira, en þetta er staðan hjá okkur núna.”

12 starfs­mönnum var sagt upp hjá 365 í októ­ber síð­ast­liðnum, níu karl­mönnum og þremur konum. Sævar segir að erf­iðar aðgerðir séu óum­flýj­an­legar þegar bæta eigi rekstur. „Maður er að reyna að bæta rekstur og bæta upp­lifun við­skipta­vina heima í stofu. Það hefur í för með sér að stundum þarf að taka erf­iðar ákvarð­anir,” segir hann. Aðspurður hvort upp­sögnum sé þá lokið í ljósi bættrar rekstr­ar­stöðu segir hann: „Það er ekk­ert sem stendur fyrir dyrum á þess­ari stundu. Við erum í sókn­ar­hug.”

Kjarninn greindi árs­reikn­ing 365 þegar hann var birtur opin­ber­lega í nóv­em­ber 2015. Hægt er að lesa þá grein­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár