Fjögur þúsund milljarða hagnaður

Skipa­fé­lagið A.P. Møller-Mærsk birti í síð­ustu viku upp­gjör sitt fyrir árið 2022. Hagnaður fyr­ir­tæk­is­ins á sér ekki hlið­stæðu í Danmörku. Sérstök skatta­lög gera að verkum að Mærsk borgar sára­lít­inn skatt í heima­land­inu.

Methagnaður
Met­hagn­aður Vincent Clerc fram­kvæmda­stjóri Mærsk þegar hann kynnti nið­ur­stöðu árs­ins 2023 fyrr í þessum mán­uði. Mynd: AFP

Þótt mörg dönsk fyr­ir­tæki hafi í gegnum árin verið rekin með miklum hagn­aði hafa aldrei sést tölur sem kom­ast í námunda við það sem sjá mátti í upp­gjöri Mærsk (eins og fyr­ir­tækið er yfir­leitt kallað) fyrir árið 2022. Hagnaður síð­asta árs var rúmir 200 millj­arðar danskra króna. Það jafn­gildir um það bil 4 þús­und millj­örðum íslenskum. Þegar danska útvarpið, DR, greindi frá árs­upp­gjör­inu á síðu sinni var talað um 200 millj­óna hagnað, og sömu villu mátti sjá á síðu eins af stóru dönsku dag­blöð­unum. Þetta var skömmu síðar leið­rétt í millj­arða á báðum stöðum.  

Mærsk skipa­fé­lagið hefur lengi verið í hópi stærstu skipa­fé­laga í heimi og mörg und­an­farin ár, þangað til í fyrra, stærst þeirra allra. Á síð­asta ári bætt­ist nýtt skip í flota Mediterranian Shipping Company, MSC, og við það skaust það félag á topp list­ans. Svo litlu munar þó að ef Mærsk myndi kaupa lítið skip, langtum minna en félagið notar ann­ars, yrði það aftur komið í topp­sætið. Þetta má lesa í tíma­rit­inu Alp­haliner, sem flytur fréttir af flestu því sem við­kemur vöru­flutn­ingum á sjó. Að sögn tals­manns Mærsk er það ekki keppi­kefli að vera stærst „en við viljum gjarna vera best“.

 Upphafið

Árið 1904 þegar maður að nafni Peter Mærsk Møller, sem þá var 68 ára, ákvað ásamt syn­inum Arnold Peter Møller að stofna skipa­fé­lag hefur lík­lega hvor­ugan grunað að 100 árum síðar yrði félagið meðal þeirra stærstu á sínu sviði í heim­inum. 

Peter Mærsk Møller hafði byrjað sem messagutti hjá föður sínum 14 ára gam­all, en kunni ekki við sig á sjónum. Hann ákvað að læra renni­smíði í Kaup­manna­höfn, komst þar á samn­ing en sá fljót­lega að fram­tíð sín yrði ekki við renni­bekk­inn. Hann fór því aftur á sjó­inn, réðst sem háseti á segl­skipið Roda sem sigldi til Brasilíu og flutti kaffi til Dan­merkur og fleiri landa. Peter Mærsk Møller fékk skip­stjórn­ar­rétt­indi 1855, aðeins 19 ára gam­all. Nokkrum árum síðar varð hann skip­stjóri, eða kafteinn eins og það var kallað, á litlu segl­skipi. 1874 var hann ráð­inn kafteinn á segl­skip­inu Val­kyrj­unni, sem þá var næst stærsta segl­skipið í eigu Dana. Nokkrum árum síðar fékk hann rétt­indi til að stjórna gufu­skipum sem þá voru að leysa segl­skipin af hólmi. Árið 1886 keypti Peter Mærsk Møller ásamt félaga sínum gam­alt gufu­skip sem fékk nafnið Laura, með heima­höfn í Svend­borg. Á skor­steini skips­ins létu þeir félagar mála breiða bláa rönd og á hliðum skor­steins­ins var máluð hvít sjö arma stjarna. Þessi stjarna varð síðar, og er enn, ein­kenn­is­tákn Mærsk skipa­fé­lags­ins. Eftir að hafa verið kafteinn á Laura í 12 ár hætti Peter Mærsk Møller á sjónum. Hann var mik­ill áhuga­maður um gufu­skip og taldi þau standa segl­skip­unum framar, að öllu leyti.  

Gufuskipafélögin Svendborg og 1912

Þótt Peter Mærsk Møller hefði sagt skilið við sjó­mennsk­una skömmu fyrir alda­mótin 1900 hafði hann ekki lagt árar í bát. Hann hóf nú, ásamt syni sínum, Arnold Peter Møller, að und­ir­búa stofnun skipa­fé­lags. Árið 1904 stofn­uðu feðgarnir Damp­skibsselska­bet Svend­borg, til­gangur félags­ins var að ann­ast fragt­flutn­inga. Rekst­ur­inn gekk vel en syn­inum fannst fað­ir­inn full var­kár og vilja fara of hægt í sak­irnar. Arnold Peter Møller stofn­aði því annað félag, það fékk heitið Damp­skibsselska­bet af 1912. Rekstur beggja félag­anna gekk vel en son­ur­inn ein­beitti sér ekki ein­göngu að rekstri skip­anna. Hann hafði háleitar hug­myndir og sá fyrir sér að tími gufu­skip­anna liði undir lok áður en langt um liði og vöru­flutn­ingar landa og heims­álfa á milli yrðu æ mik­il­væg­ari. Peter Mærsk Møller lést árið 1927 en hafði þá að mestu dregið sig út úr rekstri fyr­ir­tæk­is­ins. Þess má geta að Ane eig­in­kona hans lést árið 1922, þau eign­uð­ust 12 börn, 7 dætur og fimm syni.  

A.P. Møller og sonurinn Arnold Mærsk Mc-Kinney Møller

Í stuttum pistli sem þessum er engin leið að gera grein fyrir stór­fyr­ir­tæk­inu Mærsk eða Maersk eins og það er kallað utan danskra land­steina. Arnold Peter Møller (ætíð kall­aður A.P. Møller) var for­stjóri í ára­tugi en eftir síð­ari heims­styrj­öld­ina tók son­ur­inn Arnold Mærsk Mc-Kinney Møller (ætíð kall­aður Mærsk Mc-Kinney Møller) æ meiri þátt í stjórnun fyr­ir­tæk­is­ins. Eftir and­lát A.P. Møller árið 1965 varð son­ur­inn og barna­barn stofn­and­ans for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins og gegndi því starfi til árs­ins 1993. Hann sat þó áfram í stjórn fyr­ir­tækja­sam­steypunnar, sem þá hafði fengið nafnið A.P. Møller Gruppen og enn­fremur í stjórn tveggja eign­ar­halds­fé­laga innan sam­steypunnar. Mærsk Mc-Kinney Møller lést í apríl 2012, tæp­lega 99 ára að aldri. Dóttir hans Ane Mærsk Mc-Kinney Uggla og synir hennar tveir sitja í stjórnum og stjórn­un­ar­stöðum innan A.P. Møller Gruppen.

Undir stjórn feðganna sem getið var um hér að framan varð A.P. Møller Gruppen að sann­köll­uðu risa­fyr­ir­tæki, sem ein­beitti sér ekki ein­ungis að skipa­út­gerð og tengdum greinum. Skipa­út­gerðin hefur þó alla tíð verið grunn­stoðin í rekstr­inum.

Árið 2003 var nafni skipa­fé­lag­anna tveggja, Svend­borg og 1912, breytt og þau heita nú A.P. Møller – Mærsk A/S.

Rúmlega 700 skip og 90 þúsund starfsmenn

Mærsk er með rúm­lega 700 skip í förum. Stærstur hluti þess­ara skipa eru svokölluð gáma­skip en í flot­anum eru líka ann­ars konar skip. Nær allur flot­inn sam­anstendur af mjög stórum skipum, þau stærstu rúm­lega 400 metra löng og geta flutt 23 þús­und gáma. Enkenn­islitur skip­anna er blár, kirfi­lega merkt Maersk Line á báðum hliðum og sjö­arma stjarnan er enn ein­kenn­is­tákn fyr­ir­tæk­is­ins. Hjá Mærsk sam­steyp­unni starfa nú um 90 þús­und manns víða um heim, en höf­uð­stöðvar fyr­ir­tæk­is­ins eru í Kaup­manna­höfn.

Methagnaður en létt skattbyrði 

Eins og fram kom framar í þessum pistli gekk rekstur Mærsk vel í fyrra. Hagn­að­ur­inn var meira en 200 millj­arðar danskra króna, það jafn­gildir rúmum 4 þús­und millj­örðum íslenskra króna.  Slíkur hagn­aður hefur ekki áður sést í Danmörku og Vincent Clerc fram­kvæmda­stjóri Mærsk sagði, þegar árs­reikn­ing­ur­inn var kynntur, að bið yrði á að svona hagn­að­ar­tala sæist aftur. Hann sagði að gert væri ráð fyrir að hagn­aður þessa árs yrði 76 millj­arðar danskra króna „sem er svosem alveg við­un­andi“.

Í tengslum við kynn­ingu árs­reikn­ings­ins kom fram að skatt­greiðslur danskra skipa­fé­laga eru hlut­falls­lega langtum lægri en ann­arra fyr­ir­tækja í Danmörku. Almennt er fyr­ir­tækja­skatt­ur­inn 22% en Mærsk borgar innan við 3% í skatt. Ástæða þessa er svokölluð tonna­regla, skipa­fé­lögin borga þá skatt sem mið­ast við stærð skip­anna en ekki hagnað. Þessari reglu var ætlað að sjá til þess að dönsk skipa­fé­lög flyttu ekki úr landi. 

Í lokin má geta þess að Mærsk sam­steypan ver árlega háum fjár­hæðum í alls kyns styrki, ekki síst til menn­ing­ar­mála af ýmsu tagi. Þar kemur kannski Óperu­húsið í Kaup­manna­höfn fyrst upp í hug­ann en það færði Mærsk Mc-Kinney Møller dönsku þjóð­inni að gjöf árið 2005.

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorsteinn V. Sigurðsson skrifaði
    Hækkuðu hressilega í Covid ástandinu eins og íslensku skipafélögin 50-100% álag á gefin tilboð....(eimskip)
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár