Eignarhaldsfélagið Borgun hefur tvöfaldað fjárfestingu sína í Borgun

Félag sem keypti hlut rík­is­banka í greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Borgun bak við luktar dyr haustið 2014 hefur fengið háar arð­greiðslur, selt hlut sinn og haldið eftir verð­mætum bréfum í Visa Inc. Eigendur þess hafa tvö­faldað upp­haf­lega fjár­fest­ingu sína.

Hópur fólks mótmælti fyrir utan höfuðstöðvar Landsbankans árið 2016 vegna Borgunarmálsins.
Hópur fólks mót­mælti fyrir utan höf­uð­stöðvar Lands­bank­ans árið 2016 vegna Borg­un­ar­máls­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun, sem keypti 31,2 pró­sent hlut Lands­bank­ans í Borgun í nóv­em­ber 2014 á tæp­lega 2,2 millj­arða króna, hefur rúm­lega tvö­faldað þá fjár­fest­ingu á þeim tæpu sex árum sem liðin eru frá því að kaupin áttu sér stað. Síðan þá hefur félagið fengið rúm­legt kaup­verðið til baka í formi arð­greiðslna, selt hlut­inn sinn til alþjóð­legs greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tækis og fengið bréf hlut í félagi sem heldur á bréfum í Visa Inc. Samtals er virði ofan­greinds um 4,5 millj­arðar króna því sem fram kemur í opin­berum gögnum og umfjöllun fjöl­miðla.

Lands­bank­inn hefur stefnt Eign­ar­halds­fé­lag­inu Borgun, Borgun, BPS ehf. og fyrr­ver­andi for­stjóra Borgunar vegna upp­haf­lega við­skipt­anna vegna þess að rík­is­bank­inn telur að ekki hafi verið upp­lýst um sann­virði Borgunar þegar þau fóru fram. Lands­bank­inn telur sig hafa verið blekktan til að selja hlut sinn á hrakvirði og áætlar að tjón sitt hafi verið 1,9 millj­arðar króna. Vinni Lands­bank­inn það mál, og Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun þarf að greiða sinn hluta af því tjóni, má ætla að félagið þurfi að greiða um 590 millj­ónir króna til rík­is­bank­ans.

Grunsemdir um að virði hafi verið falið

Kaupin á hlut Lands­bank­ans í Borgun áttu sér þann aðdrag­anda að maður að nafni Magnús Magn­ús­­son, með heim­il­is­­festi á Möltu, setti sig í sam­­band við rík­­is­­bank­ann og fal­að­ist eftir eign­­ar­hlutnum fyrir hönd fjár­­­festa.

Á meðal þeirra sem stóðu að kaup­enda­hópnum voru þáver­andi stjórn­­endur Borg­un­­ar. Þrír stærstu aðil­­arnir sem stóðu að Eign­­ar­halds­­­fé­lag­inu Borgun voru gamla útgerð­­ar­­fyr­ir­tækið Stál­­skip, félagið P126 ehf. (eig­andi er félag í Lúx­em­borg og eig­andi þess er Einar Sveins­­son), og félagið Pétur Stef­áns­­son ehf. (Í eigu Pét­­urs Stef­áns­­son­­ar).

Salan fór fram á bak við luktar dyr og hlut­ur­inn var ekki aug­lýstur til sölu.

[adspot]Fljót­lega vökn­uðu grun­semdir um að Borgun væri mun verð­mæt­ara fyr­ir­tæki en árs­reikn­ingar þess gáfu til kynna, sér­stak­lega vegna þess að á meðal eigna Borg­unar var hlutur í Vísa Europe, sem var keyptur af Visa Inc. skömmu eftir að kaupin gengu í gegn. Þessi eign­­ar­hlutur var marga millj­­arða króna virði en hafði ekki verið metin þannig við söl­una á eign­­ar­hlut Lands­­bank­ans. Enn fremur var ekki gerður neinn fyr­ir­vari í kaup­­­samn­ingnum um við­­­bót­­­ar­greiðslur vegna val­réttar Borg­unar vegna mög­u­­­legrar sölu Visa Europe til Visa Inc., en slíkur fyr­ir­vari var til að mynda verið gerður þegar Arion banki keypti hlut Lands­bank­ans í öðru greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæki sem átti hlut í Visa Europe, Valitor.

Mikill hagnaður og háar arðgreiðslur

Næstu árin hagn­að­ist Borgun veru­lega. Greiddar voru út 800 millj­ónir króna í arð til eig­enda á árinu 2015 vegna frammi­stöðu fyrra árs. Ári síðar nam arð­greiðslan 2,2 millj­örðum króna og árið 2017 voru greiddir út 4,7 millj­arðar króna vegna frammi­stöðu árs­ins 2016, þegar hlut­irnir í Visa Europe voru seldir.

Á rúmum þremur árum fengu fjár­fest­arnir sem keyptu 31,2 pró­sent hlut rík­is­bank­ans Lands­bank­ans því allt útlagt kaup­verð til baka og græddu til við­bótar 218 millj­ónir króna í reiðufé. Árið 2017 var hagn­að­ur­inn svo 350 millj­ónir króna en engin arður greiddur út.

Ofan á það áttu þeir auð­vitað enn hlut­inn í Borgun.

Halla fer undan fæti og Borgun selt

Á árunum 2018 og 2019 fór rekst­ur­inn hins vegar að versna til muna. Sam­an­lagt tap á þeim árum nam um tveimur millj­örðum króna og á fyrri hluta árs­ins 2020 var tap­ið 635 millj­ónir króna.

Fyrr á þessu ári sam­þykktu svo eig­endur 96 pró­sent hluta­fjár í Borgun, þar á meðal stærsti eig­and­inn Íslands­banki og Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun, að selja hluti sína til alþjóð­lega greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Salt Pay. Formlega var gengið frá söl­unni 7. júlí síð­ast­lið­inn.

Kaup­verðið var sagt trún­að­ar­mál en en Frétta­blaðið greindi frá því viku síðar að það hafi verið sam­tals 27 millj­ónir evra, um 4,3 millj­arðar króna. Það hafði lækkað um átta millj­ónir evra, um 1,3 millj­arða króna, frá því að kaup­samn­ingur var und­ir­rit­aður 11. mars 2020. Helsta ástæða þess að verðið lækk­aði voru áhrif COVID-19 far­ald­urs­ins á starf­semi Borg­un­ar. Sé það rétt er hlutur Eign­ar­halds­fé­lags­ins Borgunar í kaup­verð­inu ætti sam­kvæmt því að vera um 1,3 millj­arðar króna.

[links]Áður en að gengið var frá söl­unni á Borgun var hlutafé í félag­inu lækk­að. Sú lækkun fór fram þannig að for­gangs­hluta­bréf í Visa Inc, sem Borgun eign­að­ist árið 2016 við að selja hlut sinn í Visa Europe, voru færð inn í félagið Borg­un-VS ehf. Frá­far­andi eig­endur Borg­unar eign­uð­ust svo það félag. Virði for­gangs­hluta­bréf­anna er sagt vera rúm­lega 3,1 millj­arður króna í árs­hluta­upp­gjöri Íslands­banka. Hlutur Eign­ar­halds­fé­lags­ins Borgunar í Borgun-VS ehf. ætti því að vera um eins millj­arðs króna virði.

Því ætti félagið að hafa fengið um 2,3 millj­arða króna út úr söl­unni. Samtals hefur Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun því breytt tæp­lega 2,2 millj­arða króna fjár­fest­ingu sem ráð­ist var í haustið 2014 í 4,5 millj­arða króna. Á tæpum sex árum hefur fjár­fest­ingin tvöld­ast í krónum talið, og fjár­fest­arnir leyst út þorra þeirrar virð­is­aukn­ingar í formi arð­greiðslna og sölu­and­virðis. Einungis hlut­ur­inn í Borgun-VS er enn bund­inn í bréfum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár