Fanney Birna nýr aðstoðarritstjóri Kjarnans

Fanney Birna Jóns­dóttir gengur til liðs við hlut­hafa­hóp Kjarnans. Tveir aðrir starfs­menn ráðnir til starfa.

Fanney Birna Jónsdóttir, nýr aðstoðarritstjóri Kjarnans, og Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri miðilsins.
Fanney Birna Jóns­dóttir, nýr aðstoð­ar­rit­stjóri Kjarnans, og Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri mið­ils­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fanney Birna Jóns­dóttir hefur verið ráðin aðstoð­ar­rit­stjóri Kjarnans. Hún mun hefja störf í dag. Fanney Birna mun sömu­leiðis koma inn í eig­enda­hóp Kjarnans.

Hún er fyrr­ver­andi aðstoð­ar­rit­stjóri Frétta­blaðs­ins og hefur und­an­farið ár stýrt póli­tíska þjóð­mála­um­ræðu­þætt­inum Silfrinu á RÚV ásamt Agli Helga­syni. Fanney Birna mun áfram stýra Silfrinu ásamt Agli.

Fanney Birna verður þriðji starfs­mað­ur­inn sem bæt­ist við hjá Kjarn­anum á skömmum tíma. Bára Huld Beck blaða­maður og Grettir Gautason verk­efna- og sölu­stjóri hófu einnig nýverið störf á miðl­inum.

Fanney Birna segir það mik­inn heiður fyrir sig að ganga til liðs við Kjarnann og sam­fé­lagið sem hefur mynd­ast í kringum mið­il­inn. „Ég er mjög spennt fyrir því að takast á við þetta verk­efni og þróa Kjarnann áfram með því öfl­uga fólki sem þar er fyrir. Íslenskt sam­fé­lag þarfn­ast nauð­syn­lega sterkra og óháðra fjöl­miðla. Á tímum þar sem blaða­mönnum fer fækk­andi og almanna­tenglum hratt fjölg­andi, ásamt því að valda­mestu menn sam­fé­lags­ins veigra sér ekki við því að vega að heiðri og þannig trausti fjöl­miðla, er beittur, gagn­rýn­inn og aðhalds­samur frétta­flutn­ingur ómet­an­legur. Ég fagna tæki­fær­inu til þess að fá að leggja mitt lóð á vog­ar­skál­arnar í þessum efnum hjá Kjarn­anum, sem hefur sýnt að mið­ill­inn er til þess gerður að veita bæði stjórn­völdum og stór­fyr­ir­tækjum það aðhald sem er nauð­syn­legt í okkar lýð­ræð­is­sam­fé­lagi.“

[adspot]Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri og fram­kvæmda­stjóri Kjarnans, segir það mik­inn lið­styrk að fá Fanneyju Birnu til liðs við mið­il­inn. „Kjarninn hefur vaxið mikið á und­an­förnum árum og mun fagna fimm ára afmæli á kom­andi ári. Rekstur mið­ils­ins er orð­inn sjálf­bær og stefnt er á mikla sókn á kom­andi árum. Þar hjálpar til að við höfum rekið fyr­ir­tækið heið­ar­lega og skyn­sam­lega frá fyrsta degi, alltaf gert upp við alla og skuldum engum neitt. Lesendur okkar hafa sýnt að þeir treysta Kjarn­anum til að vera leið­andi fjöl­mið­ill þegar kemur að umfjöllun um, og grein­ingu á, stjórn­málum, efna­hags­málum og við­skiptum. Fanney Birna verður feiki­lega öflug við­bót við teymið okkar. Hún hefur hæfi­leika, þekk­ingu og reynslu sem mun bæta miklu við það sem við höfum upp á að bjóða.“

[links]Kjarninn rekur frétta­vef, gefur út dag­legan morg­un­póst og heldur úti umfangs­mik­illi hlað­varps­þjón­ustu. Þá gefur Kjarninn út Vís­bend­ingu, viku­rit um við­skipti, efna­hags­mál og nýsköpun, og heldur úti enskri frétta­þjón­ustu. Kjarninn er einnig í sam­starfi við önnur fjöl­miðla­fyr­ir­tæki um fram­leiðslu á efni. Þar ber helst að nefna sjón­varps­þátt Kjarnans á Hring­braut og útgáfu mán­að­ar­lega frí­blaðs­ins Mannlíf sem er gefið út í sam­starfi við Birting.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjölmiðar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár