Frumdrögin að fyrstu lotu Borgarlínu opinberuð á næstu dögum

Frum­draga­skýrsla vegna fyrsta hluta Borg­ar­línu á að koma út á næstu dögum. Efni hennar var kynnt kjörnum full­trúum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fyrir jól. Í henni verður dregin fram heild­stæð mynd af leið­inni á milli Ártúns­höfða og Hamra­borgar.

Í væntanlegum frumdrögum verður meðal annars farið yfir það hvernig fyrsta lota Borgarlína gæti mögulega legið um höfuðborgarsvæðið. Þetta sem hér sést er dæmi um kjörsnið Borgarlínu.
Í vænt­an­legum frum­drögum verður meðal ann­ars farið yfir það hvernig fyrsta lota Borg­ar­lína gæti mögu­lega legið um höf­uð­borg­ar­svæðið. Þetta sem hér sést er dæmi um kjör­snið Borg­ar­línu. Mynd: Úr Borgarsýn Umhverfis- og skipulagssviðs.

Stefnt er að því að frum­draga­skýrsla um fyrsta áfanga Borg­ar­línu verði gefin út á allra næstu dögum, en útgáfan hefur dreg­ist tölu­vert frá því sem áætlað var. Efni skýrsl­unnar var kynnt fyrir öllum kjörnum full­trúum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á fundi 18. des­em­ber síð­ast­lið­inn.

Í við­tali við Kjarnann í lok ágúst sögðu full­trúar Verk­efna­stofu Borg­ar­línu, sem heldur utan um verk­efnið, að það stytt­ist í útgáf­una. Mögulega yrði skýrslan kynnt eftir um það bil mánuð, eða í sept­em­ber. Síðan hefur tím­inn liðið.[links]

Hrafn­kell Á. Proppé hjá Verk­efna­stofu Borg­ar­línu segir nú við Kjarnann í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn að ekki sé hægt að neita því að dreg­ist hafi að koma skýrsl­unni út, en að stefnt sé að útgáfu innan skamms og að félagið Betri sam­göngur ohf. sé að und­ir­búa við­burð í tengslum við útgáf­una. Hrafn­kell segir jan­ú­ar­mánuð hafa farið í snurfus og und­ir­bún­ing fyrir prentun skýrsl­unnar.

Hvað verður í þessari skýrslu?

Frum­draga­skýrsl­unni hafa margir beðið eftir, en hún mun í reynd veita fyrstu heild­stæðu mynd­ina af því hvernig fyrsta lota Borg­ar­línu á liggja um höf­uð­borg­ar­svæðið, nánar til­tekið frá Ártún­höfða að Hlemmi og frá Hlemmi í gegnum mið­borg­ina, út í Vatns­mýri, yfir vænt­an­lega Foss­vogs­brú og upp Kárs­nesið að Hamra­borg.

[adspot]

Fjallað var um vænt­an­lega skýrslu í rit­inu Borg­ar­sýn, sem Umhverfis- og skipu­lags­svið Reykja­vík­ur­borgar gaf út í des­em­ber­mán­uði. Í grein Birkis Ingi­bjarts­sonar og Eddu Ívars­dóttur var boðað að skýrslan kæmi út í byrjun jan­úar, eftir árslanga vinnu hóps verk­fræð­inga, arki­tekta og borg­ar­hönn­uða á vegum Vega­gerð­ar­innar, Reykja­vík­ur­borgar og Kópa­vogs­bæjar.

Fram kemur í grein­inni að skýrslan verði tví­skipt. Fyrri hlut­inn mun fjalla í víðu sam­hengi um þær for­sendur sem liggja til grund­vallar áætl­ana um áherslur á efl­ingu almenn­ings­sam­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu undir nafni Borg­ar­lín­unnar, þar á meðal hvernig sam­þætt leiða­kerfi Strætó og Borg­ar­línu muni vinna saman og hvaða hönn­un­ar­for­sendur sé mik­il­vægt að hafa í huga þegar götu­rými Borg­ar­lín­unnar er hannað.

Í síð­ari hluta skýrsl­unnar er síðan rýnt með nán­ari hætti en hingað til hefur verið gert í ein­stök atriði sem snúa að Borg­ar­lín­unni og vænt­an­legum fram­kvæmdum henni tengdum, sam­kvæmt þeim Birki og Eddu.

Verður meðal ann­ars fjallað um val á stað­setn­ingum stöðva og upp­bygg­ingar- og þró­un­ar­mögu­leikar í grennd við þær skýrðir betur. Auk þess verður farið yfir upp­skipt­ingu götu­rým­is­ins og lagðar til útfærslur sem henta eiga umhverfi og breidd þeirra gatna sem Borg­ar­línan fer um hverju sinni.

Frum­draga­skýrslan á að draga fram heild­stæða mynd af fyrstu lotu Borg­ar­línu og um leið leggja grunn að frek­ari hönnun innan hvers hluta hennar, en þau Birkir og Edda skrifa að lega fyrstu lot­unnar sé um mjög fjöl­breytt umhverfi og því margar ólíkar áskor­anir sem takast þarf á við milli ólíkra hluta borg­ar­innar.

„Engin end­an­leg hönnun liggur þó fyrir enda er nauð­syn­legt að fá álit og athuga­semdir frá hags­muna­að­ilum og íbúum um efni frum­draga­skýrsl­unnar áður en eig­in­legt hönn­un­ar­ferli Borg­ar­lín­unnar byrjar og á meðan á því stendur,“ segir í grein­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár