Mun minna kókaín í skólpinu í kórónuveirufaraldri

Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hefur breytt mynstri fíkni­efna­notk­unar í Reykja­vík, segir dokt­or­snemi sem hefur í fimm ár rann­sakað magn ólög­legra fíkni­efna í frá­rennsli borg­ar­innar. Magn kóka­íns í skólp­inu var 60 pró­sent minna í júní en í apríl í fyrra.

Magn kókaíns í frárennsli höfuðborgarinnar fjórfaldaðist milli áranna 2016 og 2018. Í sumar hafði verulega dregið úr því miðað við apríl í fyrra.
Magn kóka­íns í frá­rennsli höf­uð­borg­ar­innar fjór­fald­að­ist milli áranna 2016 og 2018. Í sumar hafði veru­lega dregið úr því miðað við apríl í fyrra. Mynd: Pexels

„Nið­ur­stöður úr rann­sóknum á frá­rennsli sýna að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn og sam­komu­tak­mark­anir sem honum fylgja hafa breytt mynstri fíkni­efna­notk­unar í Reykja­vík,“ segir Arndís Sue-Ching Löve, verk­efna­stjóri á rann­sókn­ar­stofu í lyfja-og eit­ur­efna­fræði við Háskóla Íslands og dokt­or­snemi við lækna­deild. Hún hefur frá árinu 2015 rann­sakað magn ólög­legra fíkni­efna í skólpi í Reykja­vík og nið­ur­stöður nýj­ustu sýn­anna, sem tekin voru í byrjun júní, eru veru­lega frá­brugðnar þeim sem hún hefur hingað til séð.

Síðustu ár hefur Arndís mælt aukn­ingu í notkun kóka­íns. Þannig mæld­ist fjór­falt meira magn þess fíkni­efnis í skólp­inu milli áranna 2016 og 2018. En í „sýnum á COVID tímum“ sem tekin voru í sumar, mátti hins vegar merkja mik­inn sam­drátt í notkun kóka­íns. Um 60 pró­sent minna af efn­inu fannst í skólp­inu í sumar miðað við sam­bæri­lega rann­sókn í apríl í fyrra. „Þetta sýnir fram á að það er breyt­ing í notk­un­ar­mynstr­inu,“ segir Arndís í sam­tali við Kjarnann.

[adspot]

Fleira áhuga­vert kemur upp úr kaf­inu þegar nið­ur­stöður mæl­ing­anna tveggja eru bornar saman. Á sama tíma og magn kóka­íns dregst veru­lega saman er ljóst að kanna­bis­neysla hefur auk­ist um þriðj­ung miðað við apríl í fyrra. Hins vegar var notkun á amfetamíni, metam­fetamíni og MDMA (e-töflur/Molly) svipuð milli ára.

[links]Rannsókn Arndísar á fíkni­efnum í skólpi er hluti af dokt­ors­verk­efni hennar sem hún er nú að leggja loka­hönd á. Að auki tengj­ast þær sam­an­burð­ar­rann­sókn sem nær til ann­arra Evr­ópu­landa og nið­ur­stöður hennar hafa verið birtar árlega síð­ustu ár.

Til rann­sókn­ar­innar tekur Arndís sýni í tveimur skólp­hreinsi­stöðvum í Reykja­vík; í Kletta­görðum og Ána­naustum. Hverju sýni er safnað í 24 klukku­stundir yfir heila viku í senn. Með þeim hætti sést sveifla í fíkni­efna­notkun innan vik­unnar, m.a. mun­ur­inn á neyslu um helgar, frá föstu­degi til sunnu­dags, og ann­arra daga.

Í sumar var sýnum safnað á tíma­bil­inu 4.-10. júní þegar sam­komu­tak­mörk­unum hafði nýlega verið breytt úr 50 í 200 manns. Barir og aðrir vín­veit­inga­staðir höfðu einnig verið opn­aðir á ný en aðeins til klukkan 23 á kvöldin.

Arndís ítrekar að þar sem sýni voru aðeins tekin þessa einu viku end­ur­spegli nið­ur­stöð­urnar ekki fíknefna­notkun yfir árið í heild. Alltaf megi vænta sveiflna á milli tíma­bila, og í ár mögu­lega á milli bylgja í far­aldr­inum og sam­komu­tak­mark­ana þeim tengdum. „En þetta gefur þó ákveðna hug­mynd um fíkni­efna­neysl­una þótt ákjós­an­leg­ast væri að taka sýni á hverjum ein­asta degi, árið um kring.“

Að sögn Arndísar er vel þekkt að notkun MDMA og kóka­íns auk­ist um helgar. Það hafi hennar rann­sóknir hingað til meðal ann­ars sýnt. Slík afþrey­ing­ar­neysla, eins og hún er kölluð, (e. recreational use) er einnig sjá­an­leg í kringum við­burði á borð við Iceland Airwaves. Árið 2017 tók Arndís sýni þá daga sem hátíðin stóð yfir og nið­ur­staðan var sú að neysla kóka­íns og MDMA jókst mark­tækt á því tíma­bili.

Þó að sveiflur milli helga og ann­arra daga vik­unnar megi sjá í þeim sýnum sem tekin voru í sumar er engu að síður áhuga­vert að hún er um margt ólík sveifl­unum sem fyrri rann­sóknir á skólp­inu í Reykja­vík hafa sýnt.

„Það var umtals­verð aukn­ing á neyslu MDMA þá helgi sem sýnin voru tekin í sumar,“ segir Arndís en að sveiflan milli helg­ar­innar og virku dag­anna hafi þó ekki verið eins afger­andi nú og í apríl 2019.

Nið­ur­staðan er enn for­vitni­legri þegar kemur að öðrum fíkni­efnum. „Hvað kóka­ínið varðar er sveiflan ekki eins mikil innan vik­unnar og hún var árið 2019,“ segir Arndís. Hún sá aðeins um tíu pró­sent aukn­ingu milli daga í júní sem er ekki mark­tækur munur. „Þetta er allt annað mynstur en var í apríl 2019. Þá var magn kóka­íns í skólp­inu 40 pró­sent meira um helgar en aðra daga vik­unnar. Og það voru tölur sem við höfðum séð áður í okkar rann­sóknum.“

Hins vegar mæld­ist í sumar sveifla í notkun á kanna­bis sem ekki hefur verið til staðar í fyrri rann­sóknum. „Yfir helg­ina í vik­unni sem sýnin voru tekin var hún 40 pró­sent meiri en aðra daga. Þetta er sveifla sem við höfum ekki séð áður. Í fyrri rann­sóknum okkar höfum við ekki verið að mæla mik­inn mun á viku­dög­unum þegar kemur að kanna­bis­notk­un­inni. Hún hefur verið stöðugri en neysla örvandi efna sem hefur gefið okkur vís­bend­ingu um að afþrey­ing­ar­neysla á kanna­bis væri ekki mikil. En það kann að hafa breyst.“

Arndís segir að ýmis­legt geti skýrt breytt neyslu­mynstur á fíkni­efnum í ár og að án efa leiki kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn og sótt­varna­að­gerðir stóran þátt. Framboð á efnum kann að hafa breyst vegna far­ald­urs­ins og þá er mögu­legt að styrk­leiki þeirra hafi gert slíkt hið sama.

Rann­sóknin sýnir notkun á ákveðnum efnum sem mæl­ast í skólp­inu, þ.e. magn þess­ara efna. Þannig að nið­ur­staðan getur annað hvort þýtt að hver skammtur af fíkni­efn­inu inni­haldi meira af hinu virka efni sem mælt er eða að fleiri séu að nota það nema að blanda að hvoru tveggja sé. „Þetta getum við ekki vitað út frá okkar gögnum en það er engu að síður hægt að nota þau til að bera saman tíma­bil og notkun milli landa. Þessi aðferða­fræði auð­veldar okkur allan slíkan sam­an­burð.“

Neyslan mögulega færst af skemmtistöðum og í heimahús

Nið­ur­staðan fæst með mæl­ingu á milli­grömmum af til­teknum efnum á dag á hverja 100 þús­und íbúa. Ýmsir þættir eru svo teknir inn í grein­ing­una, t.d. flæði vatns í gegnum hreinsi­stöðv­ar­innar. Það er því tekið til­lit til þess sem Veitur hafa greint frá að heita vatns notkun á hvern íbúa hafi auk­ist um 11 pró­sent á þessu ári.

Á rann­sókn­ar­tíma­bil­inu voru skemmti­staðir aðeins opnir til kl. 23 og mögu­lega hefur skemmt­ana­haldið færst meira í heima­hús. Fíkni­efna­neysla er önnur í heima­húsum en á skemmti­stöðum.

Spurð hvort fækkun ferða­manna vegna far­ald­urs­ins hafi ein­hver áhrif á sam­an­burð milli ára segir Arndís að fræði­lega séð sé það mögu­legt en hins vegar sé ómögu­legt að taka sveiflur í fjölda ferða­manna með í reikn­ing­inn. Þeir séu eðli máls­ins sam­kvæmt mikið á ferð­inni og ekki hægt að finna með ein­földum hætti gögn um hvar þeir eru hverju sinni. Því sé í rann­sókn­inni miðað við þann fjölda fólks sem búsettur er í Reykja­vík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár