Syndirnar í skólpinu

Fjórfalt meira kókaín mæld­ist í skólpi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins í mars í fyrra en tveimur árum áður. Þó er ekki aðeins hægt að mæla magn fíkni­efna í frá­rennsli heldur má einnig skoða ýmsa vísa um heil­brigði sam­fé­lags­ins.

Arndís Sue-Ching Löve, lyfja­fræð­ingur og dokt­or­snemi við lækna­deild, segir að ekki sé aðeins hægt að mæla magn fíkni­efna í frá­rennsli heldur megi einnig skoða ýmsa vísa um heil­brigði sam­fé­lags­ins.

Þetta kemur fram í nýjasta tölu­blaði Lækna­blaðs­ins en hún hefur síð­ustu fimm ár mælt fíkni­efni í skólpi hér á landi fyrir dokt­ors­verk­efni sitt sem hún vinnur á Rann­sókn­ar­stofu Háskóla Íslands í lyfja- og eit­ur­efna­fræði.

Hún segir að hægt sé að skoða umbrots­efni alkó­hóls, nikótíns, koff­íns og ýmis líf­merki sem bendi til dæmis til streitu eða sjúk­dóma.

Fram kemur í grein Lækna­blaðs­ins að Arndís hafi síð­ast­liðin fjögur ár tekið þátt í evr­ópsku sam­starfs­verk­efni þar sem algeng fíkni­efni eru mæld í frá­rennsli 85 Evr­ópu­borga. Nið­ur­stöð­urnar hafa verið birtar af Evrópsku rann­sókna­mið­stöð­inni, EMCDDA, fyrir eit­ur­lyf og eit­ur­lyfjafíkn.

Reykjavík í efsta sæti

Nið­ur­stöð­urnar sýna að fjór­falt meira kókaín mæld­ist í skólpi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins í mars í fyrra en tveimur árum áður. Það vermir efsta sæti borga Norð­ur­land­anna þegar kemur að kóka­íni en það tólfta sé litið til þeirra Evr­ópu­borga þar sem fíkni­efni voru mæld í skólpi á viku­tíma­bili í fyrra. Efst er Bristol á Englandi, þá Amster­dam í Hollandi og Zürich í Sviss í því þriðja þegar kemur að kóka­íni.

Arndís segir þetta vera í sam­ræmi við aukn­ingu kóka­íns í öku­mönnum hér á landi.

Aukning MDMA mikil um helgar

Reykja­vík er sam­kvæmt mæl­ing­unum í öðru sæti yfir mest amfetamín­magn á eftir Saarbrücken í Þýska­landi, þar sem notk­unin mælist þó nærri tvö­falt meiri. Hún mæld­ist í 14. sæti yfir metam­fetamín, þar sem Erfurt í Þýska­landi trónar á toppnum, og 9. sæti yfir MDMA, en Amster­dam í því efsta. Arndís seg­ist fylgj­ast sér­stak­lega vel með þróun metam­fetamíns hér á landi en aukn­ing hefur mælst í Noregi og Finn­landi.

„Við fylgjum oft hinum Norð­ur­lönd­unum í þróun og viljum því sjá hvort metam­fetamín-magn í frá­rennsli sé að aukast hér á landi,“ segir hún. Svo sé það MDMA, einnig kallað e-töflur eða Mollý. Heild­ar­magn MDMA hafi hald­ist stöðugt milli ára, en aukn­ing sé mikil um helgar.

Hægt er að hlusta á hlað­varp Lækna­blaðs­ins þar sem spjallað er við Arndísi hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár