Deildarforseti segir fagmennsku hafa ráðið ráðningu fjöldskyldumeðlima

Þeir þrír aðjunktar sem voru ráðnir við íslensku- og menn­ing­ar­deild Háskóla Íslands árið 2014 tengj­ast allir ýmist þáver­andi deild­ar­for­seta eða for­seta Hug­vís­inda­sviðs fjöl­skyldu­böndum. Núver­andi deild­ar­for­seti, Sveinn Yngvi Egilsson, segir að ráðn­ing­arnar hafi allar verið á fag­legum grund­velli.

Árið 2014 voru þrír aðilar ráðnir í stöðu aðjúnkts við íslensku- og menn­ing­ar­deild í Háskóla Íslands. Allir þrír aðil­arnir tengj­ast ýmist þáver­andi deild­ar­for­seta eða for­seta Hug­vís­inda­sviðs fjöl­skyldu­böndum. Aðjúnkt­arnir eru Heiða Jóhanns­dóttir, sem er mág­kona Ástráðs Eysteins­sonar, for­seta Hug­vís­inda­sviðs, Björn Þór Vil­hjálms­son, sem er svili Ástráðs, og Alda Björk Valdi­mars­dóttir, sem er eig­in­kona Guðna Elís­sonar, þáver­andi deild­ar­for­seta.

Ástráður Eysteinsson
Ástráður Eysteins­son Forseti Hug­vís­inda­sviðs lýsti sig van­hæfan við ráðn­ingu aðjúnkta í fyrra.

Hermann Stef­áns­son skáld vakti fyrst athygli á mál­inu í pistli á Kjarn­anum. „Talaði ein­hver um með­virkni kunn­ingja­sam­fé­lags­ins? Þetta er  hreinn brand­ari. Háskóla­deild þar sem helm­ingur starfs­fólks er skyldur og vensl­aður. Hvar sem er í heim­inum væri slík deild orðin að almennu athlægi,“ skrif­aði hann í grein sinni.

Stundin ræddi við núver­andi deild­ar­for­seta íslensku- og menn­ing­ar­deild, Svein Yngva Egilsson, og full­yrðir hann að bæði Guðni og Ástráður hafi vikið frá allri aðkomu að ráðn­ingu fjöl­skyldu­með­lima þeirra. Athygli vekur að báðir gerðu það strax við gerð aug­lýs­ingar á stöð­unum. Eig­in­kona Guðna var nýverið ráðin í lekt­ors­stöðu við skól­ann í kjöl­far þess að hún lauk við dokt­ors­próf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár