Nýtt efni

Hátt í fjörutíu vitni í aðalmeðferð meints eltihrellis
Íris Helga Jónatansdóttir mun sitja ein í Héraðsdómi Reykjaness á mánudaginn og svara til saka. Hátt í fjörtíu vitni hafa verið boðuð vegna aðalmeðferðar málsins sem tekur fjóra daga.

Novaja Gazeta hættir starfsemi vegna þrýstings yfirvalda
Aðalritstjóri Novaja Gazeta segir rússnesk yfirvöld hafa þvingað ritstjórnina til að hætta, eftir húsleit hjá honum og handtöku blaðamannsins Olegs Roldugins. „9. nóvember slökkvum við ljósin á heimili okkar“, segir Sergej Sokolov um blaðið sem hefur starfað í 30 ár.

Landsbankinn hagnaðist um 33 milljarða en stjórnendur áhyggjufullir
Hagnaður Landsbankans jókst um 3,7 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins og nam 33,1 milljarði. Stjórnendur bankans hafa áhyggjur af mögulegu útlánatapi vegna versnandi stöðu byggingarfyrirtækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hægari sölu íbúða. Ríkissjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæplega 35 milljarða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Efnahagur Frakklands stefnir á vegg
Landsframleiðsla Frakklands dregst saman og vextir af skuldum þyngjast. Fjármálaráðherra segir brýnt að samþykkja fjárlög sem dragi úr halla ríkissjóðs, en almenningur mótmælir.

Hagnaður Krónunnar jókst um 500 milljónir en afkoma N1 versnaði
Krónan hagnaðist um 2,6 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins, um hálfum milljarði meira en á sama tíma í fyrra. Verslunarkeðjan hefur aukið sölu sína og frysti í september verð á 647 vörum í tengslum við baráttuna gegn verðbólgu. Á sama tíma hefur hagnaður N1 dregist verulega saman og heildarhagnaður móðurfélagsins Festis minnkað.

Spænsk yfirvöld rannsaka orsök lestarárekstursins
Ættingjar leita frétta af ástvinum sínum eftir árekstur Renfe- og Iryo-lesta í Castilla-La Mancha. Að minnsta kosti 74 létust og fleiri eru slasaðir. Rannsókn á orsök slyssins er hafin.

Íslandsbanki hagnaðist um 7,3 milljarða á þremur mánuðum
Hagnaður Íslandsbanka jókst um rúmlega 13 prósent á fyrstu níu mánuðum ársins og nam 21,8 milljörðum króna. Bankinn hefur hagnast meira á vaxtamun en á sama tíma í fyrra, en jafnframt lagt til hliðar meira fé vegna mögulegs útlánataps. Bankinn hefur greitt 31,5 milljarða króna til hluthafa á árinu og stefnir að fækkun starfsfólks.

Trump og Pútín hækka íslensk fasteignalán
Vísitala neysluverðs rís um 0,44 prósent í október, aðallega vegna hærra eldsneytisverðs.

Verðbólgan stendur í stað
Vísitala neysluverðs hækkar um 0,44 prósent á milli mánaða en verðbólga á tólf mánaða grundvelli breytist ekki.

Hafa hagnast um 24 milljarða í ár en gagnrýna hækkun bankaskatts
Hagnaður Arion banka jókst um hálfan milljarð króna á þriðja ársfjórðungi miðað við sama tímabil í fyrra og nam 8,7 milljörðum króna. Arðsemi eigin fjár var 16,3 prósent. Bankastjórinn gagnrýnir fyrirhugaða hækkun bankaskatts sem gæti kostað bankann 1,7 milljarða króna á þessu ári.

Konur stýra nú sex af 27 félögum í Kauphöllinni
Guðný Helga Herbertsdóttir er sjötta konan sem stýrir félagi í Kauphöll Íslands eftir stjórnendaskipti hjá Skaga. Konum í æðstu stjórnendastöðum skráðra félaga hefur fjölgað á undanförnum árum, en þær eru enn aðeins rúmlega fimmtungur forstjóra. Engin kona stýrir skráðum banka, fasteignafélagi eða sjávarútvegsfyrirtæki.

Sautján missa vinnuna hjá SORPU
SORPA hefur sagt upp tíu starfsmönnum og ákveðið að endurnýja ekki tímabundna ráðningarsamninga við sjö til viðbótar. Starfsfólki fækkar því um sjö prósent. Aðgerðirnar koma í kjölfar umfangsmikilla uppsagna hjá Reykjavíkurborg í gær og á sama tíma og atvinnuleysi hefur aukist verulega á milli ára.

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri hafnar því að meirihlutinn í Reykjavík hafi þurft að bakka með áform um hagræðingu í rekstri Borgarbókasafnsins vegna mótmæla. „Það stendur ekki til að loka bókasöfnum,“ segir hún. Í tillögunni er meðal annars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstrareiningum og sameina starfsemi bókasafna.


Athugasemdir