Borgaði sjálfri sér milljarða

Hvernig getur venju­legur rík­is­starfs­maður árum saman stungið undan háum fjár­hæðum úr opin­berum sjóði án þess að upp kom­ist? Þessari spurn­ingu hafa margir Danir velt fyrir sér, en ekki fengið svar við.

Haustið 2017 sat Søren H. Madsen bók­hald­ari hjá borg­ar­stjórn Hró­arskeldu við tölv­una og fór yfir reikn­ings­færslur. Þar var flest með venju­bundnum hætti. Bók­haldar­ann rám­aði þó í að upp­hæð sem borgin hafði fengið greidda frá félags­mála­ráðu­neyt­inu væri lægri, en hann hafði skömmu áður fengið til­kynn­ingu um að yrði milli­færð.

Hann fann til­kynn­ing­una og mikið rétt, upp­hæðin sem greidd hafði verið inn á reikn­ing­inn stemmdi ekki við til­kynn­ing­una. Það mun­aði kr. 69.047.- dönskum ( ca. 1.3 millj­ónir íslenskar). Hann hringdi strax til félags­mála­ráðu­neyt­is­ins, en þar fékk hann þau svör að upp­hæðin sem yfir­færð var stemmdi við áður­nefnda til­kynn­ingu. Þetta þótti Søren bók­hald­ara ein­kenni­legt. Skömmu síðar sendi hann ráðu­neyt­inu yfir­lit vegna þeirra greiðslna sem Hró­arskeldu­borg hefði fengið frá ráðu­neyt­inu og bað um stað­fest­ingu á að þetta stemmdi við bók­hald ráðu­neyt­is­ins. Eftir nokkra daga fékk hann svar þar sem fram kom að upp­hæðin sem hann hefði til­greint pass­aði ekki við það sem ráðu­neytið hefði greitt Hró­arskeldu­borg.

Bókhaldarinn óskaði skýringa

Søren bók­hald­ari sætti sig ekki við þetta svar og eftir að hafa óskað nán­ari upp­lýs­inga fékk hann að vita að krón­urnar 69.047 hefðu verið lagðar inn á annan reikn­ing. Britta Nielsen, sem venju­lega sá um þessar greiðslur, var í fríi en sá sem leysti hana af spurði hvort ,,þessi hinn reikn­ingur væri ekki í eigu Hró­arskeldu­borgar“. Það kann­að­ist Søren bók­hald­ari ekki við. Og ákvað að láta ekki við svo búið sitja. Hann ræddi við yfir­mann sinn, sem hafði sam­band við ráðu­neyt­is­stjóra félags­mála­ráðu­neyt­is­ins. Sá óskaði aðstoðar rann­sókn­ar­deildar lög­regl­unnar, og lagði sér­staka áherslu á að starfs­fólk ráðu­neyt­is­ins fengi ekki vit­neskju um rann­sókn­ina. Til að gera langa sögu stutta kom í ljós að reikn­ing­ur­inn sem krón­urnar 69.047.- höfðu verið lagðar inn á reikn­ing í eigu starfs­manns ráðu­neyt­iss­ins, áður­nefndrar Brittu Nielsen.

Byrjaði fyrir 25 árum

Rann­sókn­ar­lög­reglu­menn­irnir trúðu vart eigin augum þegar þeir fóru að skoða bók­haldið hjá ráðu­neyt­inu. Þeir sáu nefni­lega fljót­lega að marg­nefndar 69.047.- krónur voru bara dropi í hafið. Britta Nielsen hafði yfir­fært, á eigin banka­reikn­inga, sam­tals um það bil 120 millj­ónir danskra króna (rúma 2.2 millj­arða íslenska) á 25 ára tíma­bili, frá 1993 – 2018. Upp­hæð­irnar sem Britta Nielsen færði inn á eigin banka­reikn­inga (fleiri en einn) voru mis­mun­andi eftir árum. Hæsta upp­hæð á einu ári var um það bil 17 millj­ónir árið 2010. Alls voru yfir­færsl­urnar 298 tals­ins.

Britta Nielsen og starfið

Britta Nielsen er 65 ára, fædd 28. maí 1954. Hún hóf störf hjá félags­mála­ráðu­neyt­inu 27. jan­úar 1977 og hafði starfað óslitið hjá und­ir­stofn­unum ráðu­neyt­is­ins til árs­ins 2018. Þess má geta að 27. jan­úar 2017, þegar hún hafði starfað hjá ráðu­neyt­inu í 40 ár, fékk hún starfs­ald­ur­svið­ur­kenn­ingu drottn­ingar (for­tj­en­st­meda­lje), fyrir að sinna störfum sínum sam­visku­sam­lega og af trú­mennsku. Britta Nielsen vann alla tíð hjá sér­stökum sjóði innan ráðu­neyt­is­ins en sá sjóður deilir út pen­ingum til sveit­ar­fé­laga, sam­kvæmt reglum um fjár­hags­að­stoð til þeirra sem á þurfa að halda. Britta Nielsen bjó yfir mik­illi tölvu­þekk­ingu og var sökum þekk­ingar sinnar og reynslu mik­il­vægur starfs­maður hjá sjóðnum, en þar eru örfáir starfs­menn. Það var þessi þekk­ing, ásamt slæ­legu innra eft­ir­liti ráðu­neyt­is­ins, sem gerði henni kleift að draga sér þessa miklu fjár­muni, 120 millj­ónir.

Rúmlega tví­tug gift­ist Britta Nielsen Khursheed Hayat, starfs­manni Carlsberg verk­smiðj­anna, hann var ell­efu árum eldri en Britta. Þau eign­uð­ust tvær dætur og einn son og bjuggu í Hvidovre við Kaup­manna­höfn. Khursheed lést árið 2005.

Flúði til Suður-Afríku

25. sept­em­ber 2018 kærði félags­mála­ráðu­neytið Brittu Nielsen til lög­regl­unnar. Hand­töku­skipun á hendur Brittu Nielsen var gefin út tveimur dögum síðar en var haldið leyndri fyrir fjöl­miðlum. 29. sept­em­ber bank­aði lög­reglan uppá hjá Britte Nielsen i Hvidovre en eng­inn kom til dyra. Þegar lög­reglan hafði sam­band við dætur hennar sögðu þær að hún hefði farið í frí, en sögðu ekki hvert. Hvort Britte Nielsen vissi að lög­reglan væri á hælum hennar er ekki vitað en lög­reglan telur að dæurnar hafi strax látið móður þeirra vita að lög­reglan leit­aði hennar. Lög­reglan taldi sig vita að hún hefði farið til Suður-Afríku og síðar kom í ljós að hún hafði flogið til Jóhann­es­ar­borgar 23. sept­em­ber og strax áfram til Durban, en þar bjó sonur hennar. 9. októ­ber greindi danski inn­an­rík­is­ráð­herr­ann frá mál­inu á frétta­manna­fundi í Kaup­manna­höfn og fyrr sama dag hafði dóm­ari í Bæj­ar­rétti Kaup­manna­hafnar heim­ilað rann­sókn og hald­lagn­ingu allra eigna Brittu og barna hennar, í Danmörku og öðrum löndum.

Handtakan

Að morgni 5. nóv­em­ber 2018 hand­tók suður-afríska lög­reglan Brittu Nielsen. Hún hafði þá verið á flótta í sex vikur og meðal ann­ars fengið að búa hjá kunn­ingja­fólki í smá­bænum Southbroom fyrir sunnan Durban. Sonurinn Jimmy var sömu­leiðis hand­tek­inn. Mánuði fyrr, 4. októ­ber höfðu mæðginin keypt hús í þessum sama bæ, sama dag og Britta Nielsen var lýst gjald­þrota heima í Danmörku.

8. nóv­em­ber komu mæðginin fyrir dóm­ara í Suður-Afríku. Þar féllust þau á að verða flutt til Dan­merkur og jafn­framt að þau yrðu hand­tekin við kom­una þangað. Þegar til Dan­merkur var komið voru þau bæði úrskurðuð í ótíma­bundið gæslu­varð­hald. Sá úrskurður er enn í gildi.

Auk þeirra Brittu og Jimmy eru dæt­urnar tvær grun­aðar um að hylma yfir afbrot móð­ur­innar og sama gildir um eig­in­mann ann­arar dótt­ur­innar. Þau neita öll sök. Dæturnar komu fram í sjón­varpi í Danmörku nokkru eftir hand­töku móður þeirra, þær sögð­ust hafa haldið að þeir miklu fjár­munir sem móðir þeirra hafði úr að spila væri arfur, sparn­aður, eða líf­trygg­ing sem móð­irin hefði fengið greidda eftir and­lát eig­in­manns­ins.

Í sam­vinnu dönsku og suður-afrísku lög­regl­unnar hefur tek­ist að leggja hald á tals­vert af eignum Brittu Nielsen og barna hennar í Suður- Afríku, lög­regla hefur ekki viljað upp­lýsa nákvæm­lega um þau mál.

Krafa um tólf ára fangelsi

Síð­ast­lið­inn föstu­dag, 31. maí var Brittu Nielsen birt ákæra. Sak­sókn­ari fór fram á 12 ára fang­elsi enda þótt refsiramm­inn geri ráð fyrir 8 ára hámarks­refs­ingu. Sak­sókn­ari sagði afbrotin sér­lega alvar­leg og þess vegna væri í ákærunni farið út fyrir refsirammann, en það er heim­ilt ef um svo alvar­leg afbrot er að ræða

Í lokin er rétt að geta þess að árið 2013 hafði efna­hags­brota­deild lög­regl­unnar (Bagmand­spolitiet) sam­band við danska skatt­inn vegna fimm millj­óna króna inn­borg­unar á reikn­ing Brittu Nielsen. Skatt­ur­inn aðhafð­ist ekk­ert í því máli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár