Landsfundi flýtt - Árni Páll óviss með formannsframboð

Lands­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar og for­manns­kjöri hefur verið flýtt fram í júní. Fram­kvæmda­stjórn flokks­ins ákvað þetta á fundi sínum í dag. Árni Páll Árnason er ekki viss um hvort hann ætli að gefa áfram kost á sér.

Lands­fundur Sam­fylk­ing­ar­innar verður hald­inn 4. júní næst­kom­andi. Í aðdrag­anda hans verður kosið um for­ystu flokks­ins.

Fram­kvæmda­stjórn Sam­fylk­ingar ákvað á fundi sínum í dag að lands­fundi skyldi flýtt, en það stendur í lögum flokks­ins að lands­fund eigi að halda á tveggja ára fresti. Samkvæmt því hefði átt að halda hann á næsta ári. Ákveðið hefur verið að breyta þessu.

Mikil umræða hefur verið innan flokks­ins und­an­farið varð­andi lands­fund og for­manns­kosn­ingar í ljósi slæms gengis Sam­fylk­ingar í ítrek­uðum skoð­ana­könn­unum und­an­farnar vikur og mán­uði.

Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ingar, sagði fyrir nokkru að hann væri til í alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu hvenær sem er og bjóst ekki við öðru en hann myndi bjóða sig fram áfram til for­manns. En í fréttum Stöðvar 2 í kvöld sagð­ist hann ekki hafa gert upp hug sinn varð­andi það og ætl­aði að hugsa málið.

Sema Erla Sedar sagði við Kjarnann á mánu­dag að það væri kom­inn tími til að ljúka þessu máli sem hafi verið allt of lengi í bígerð.

Kristján Guy Burgess, fram­kvæmda­stjóri Sam­fylk­ing­ar­innar, sendi fjöl­miðlum til­kynn­ingu nú undir kvöld:

„Fram­kvæmda­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar sam­þykkti í dag ein­róma að boða til lands­fundar 4. júní næst­kom­andi. Í tengslum við fund­inn fer fram alls­herj­ar­at­kvæða­greiðsla um emb­ætti for­manns meðal allra flokks­manna, komi fram ósk um það í sam­ræmi við lög flokks­ins, en Sam­fylk­ingin er eini stjórn­mála­flokk­ur­inn á Íslandi sem velur for­mann með beinni þátt­töku allra félaga. Fram­kvæmda­stjórn ákvað einnig að næsti reglu­legi lands­fundur yrði hald­inn 10.-11. mars 2017, 6 vikum fyrir alþing­is­kosn­ingar.

Fram­kvæmda­stjórn telur að staðan í stjórn­mál­unum kalli á að sótt verði í kraft­inn sem býr í 16.000 félögum í Sam­fylk­ing­unni um allt land til að veita for­ystu flokks­ins umboð og leggja lín­urnar fyrir kosn­ingar. Lands­fund­ur­inn verður not­aður til að skerpa á mál­efna­vinnu, ræða saman um kosn­inga­á­herslur, og til að sækja fram fyrir jafn­að­ar­stefn­una," segir í til­kynn­ing­unni.

Þá segir að lands­fund­ur­inn verði auka­lands­fundur sem boðað er til með lög­legum 16 vikna fyr­ir­vara.

„Það heim­ilar lands­fund­ar­full­trúum að marka stefnu flokks­ins, gera laga­breyt­ingar, koma fram með álykt­anir og kjósa í laus emb­ætti. Allir þeir sem kjörnir voru á lands­fund árs­ins 2015, eiga sjálf­krafa setu­rétt auk þess sem heim­ilda verður leitað til að aðild­ar­fé­lög fái að til­nefna upp í heild­ar­fjölda þeirra full­trúa sem þau hafa rétt á sam­kvæmt lögum flokks­ins, með það að mark­miði að allir flokks­fé­lagar sem áhuga hafa, geti sótt fund­inn. Auka­lands­fundur kemur ekki í stað reglu­legs lands­fundar sem halda skal annað hvert ár og verður næst hald­inn í mars 2017.

Í ljósi þess­arar ákvörð­unar fram­kvæmda­stjórnar verður á næstu dögum valin kjör­stjórn sem mun stýra alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu um emb­ætti for­manns og kosn­ingum til ann­arra emb­ætta sem verða laus á fund­inum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár