Ákvörðun um landsfund tekin á miðvikudag

Fram­kvæmda­stjórn Sam­fylk­ingar ákveður dag­setn­ingu lands­fundar flokks­insað öllum lík­indum á mið­viku­dag. „Kominn tími að klára þetta mál," segir for­maður fram­kvæmda­stjórnar.

Fram­kvæmda­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar ákveður að öllum lík­indum á mið­viku­dag hvort lands­fundi verði flýtt og þar með for­manns­kjöri með alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu. Tíma­setn­ing lands­fundar verði þá ákveðin að sama skapi.

Sema Erla Serdar, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sam­fylk­ingar, segir að vegna laga flokks­ins sé óljóst hvort hægt verði að flýta lands­fundi og halda hann á þessu ári.

„Við erum að láta meta lög flokks­ins svo ákvörð­unin sem tekin verður stang­ist ekki á við þau,” segir hún. 

Hvenær sem lands­fundur verður boð­aður geta félags­menn farið fram á alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu um for­mann. Samkvæmt Semu getur sú atkvæða­greiðsla farið fram hvenær sem er, þó eigi síðar en 45 dögum fyrir lands­fund. 

„Líklegt er að sú krafa mun koma fram strax og tíma­setn­ing lands­fundar hefur verið ákveðin og hann boð­aður,” segir hún og bætir við að umræðan um for­manns­kjör hafi staðið lengi yfir, bæði á meðal flokks­manna og innan fram­kvæmda­stjórnar. 

„Nú er kom­inn tími til að klára þetta mál,” segir hún. Vænt­an­lega komi í ljós á mið­viku­dag hvort hægt verði að halda for­manns­kosn­ingu í vor eða í haust í tengslum við boð­aðan lands­fund. 

Árni Páll vill vera formaður áfram

Reglur Sam­fylk­ingar um kjör for­manns með alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu eru ítar­legar. Allir skráðir félags­menn flokks­ins sem eru 18 ára eða eldri eru kjör­gengir til for­manns og yfir­lýs­ingu um fram­boð skal skila inn ásamt skrif­legum með­mælum að minnsta kosti 20 skráðra félags­manna úr hverju kjör­dæmi lands­ins. Fram­kvæmda­stjórn ákveður svo hvort atkvæða­greiðsla verði raf­ræn eða atkvæði send í pósti.

Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ingar, sagði í síð­ustu viku að hann væri til í alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu hvenær sem er og býst ekki við öðru en að hann bjóði sig áfram fram til for­manns. 

Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ingar, er þeirrar skoð­unar að flokk­ur­inn verði að bregð­ast við lélegu fylgi flokks­ins í skoð­ana­könn­unum meðal ann­ars með því að kjósa nýja for­ystu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár