Ferðaþjónustufyrirtæki þurfa að vera búin undir smit meðal viðskiptavina

Öll ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki verða að vera undir það búin að takast á við smit meðal við­skipta­vina sinna og þess verður að krefj­ast að allir aðilar geri við­bragðs­á­ætl­anir. Þetta kemur fram í skýrslu um fram­kvæmd skimunar meðal erlendra ferða­manna.

Ljóst er að sam­vinna við fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu er grund­vall­ar­at­riði við það að opna landa­mæri Íslands með því að bjóða komu­far­þegum að fara í sýna­töku eða fram­vísa vott­orði í stað þess að fara í sótt­kví.

Þetta kemur fram í skýrslu verk­efn­iss­stjórnar um sýna­töku fyrir COVID-19 á landa­mærum sem kynnt var heil­brigð­is­ráð­herra í gær.

Í skýrsl­unni er farið yfir það hvernig fyr­ir­komu­lagi við ferða­lög fólks hingað til lands gæti verið háttað en einnig um hvað svo takið við þegar ferða­lag inn­an­lands hefst. Verk­ferlar fyrir ferða­þjón­ustu og fram­línu­starfs­fólk vegna COVID-19 eru þegar til staðar og aðgengi­legir á heima­síðu land­læknis. Í for­grunni er grund­vall­arsmit­gát starfs­fólks og fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ustu. Í skýrslu verk­efn­is­stjórn­ar­innar kemur fram að mik­il­vægt sé að ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki séu vel und­ir­búin og hafi skýrar leið­bein­ingar um það verk­lag sem við­hafa þarf svo þau geti sinnt sínu hlut­verki á réttan hátt.

Verk­efn­is­stjórnin segir sam­vinnu við fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu vera grund­vall­ar­at­riði. Mikil ábyrgð muni hvíla á þeim og því þurfa kröfur til þeirra að vera skýrar og afdrátt­ar­lausar. „Öll ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki verða að vera undir það búin að takast á við smit meðal við­skipta­vina sinna og þess verður að krefj­ast að allir aðilar geri við­eig­andi við­bragðs­á­ætl­anir. Ferða­þjón­ustu­að­ilar munu einnig þurfa að gang­ast við ríkri eft­ir­lits­skyldu gagn­vart heilsu­fari ferða­manna og vera undir það búnir að senda þá í sýna­töku ef svo ber undir og jafn­vel sinna þeim í sótt­kví og/eða ein­angrun.“

[links]Ferill erlendra ferða­manna um íslenskt heil­brigð­is­kerfi er sá sami og á við um íbúa á Íslandi. Hins vegar þarf að tryggja aðgengi þeirra að upp­lýs­ingum, þ.e. hvert og hvernig fólk leitar upp­lýs­inga og leið­bein­inga og hvernig það ber sig að við að leita heil­brigð­is­þjón­ustu. Gera þarf ráð fyrir að ferða­fólk geti slasast eða veikst ótengt COVID-19 meðan á dvöl þeirra stendur. Taka þarf afstöðu til sótt­varna­ráð­staf­ana í sjúkra­flutn­ingum og innan heil­brigð­is­stofn­ana í ljósi þessa.

Áætlaður fjöldi komu­far­þega um Kefla­vík­ur­flug­völl frá því að sýna­taka hefst og tvær vikur þaðan í frá, er óljós. Hvorki liggur fyrir fram­boð á flugi, eft­ir­spurn ferð­manna til eða frá land­inu eftir flugi né hvort almennur ferða­vilji er til staðar ef val er um aðra mögu­leika við kom­una til lands­ins en tveggja vikna sótt­kví. Verk­efn­is­stjórnin skrifar í skýrslu sinni að til­kynn­ing um vænt­an­lega sýna­töku á Kefla­vík­ur­flug­velli og opnun lands­ins fyrir ferða­lögum hefur fengið tölu­verða athygli erlendis sem gæti leitt af sér aukna eft­ir­spurn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár