Sjúkrastofnanir telja „verulega áhættu“ felast í opnun landsins fyrir ferðamennsku

Bæði Land­spít­ali og Sjúkra­húsið á Akureyri telja áhættu fel­ast í opnun lands­ins með skimunum. Far­sótt­ar­nefnd Land­spít­ala telur skimun ein­kenna­lausra ferða­manna tak­markað úrræði og að lík­legra en ekki sé að ein­hverjir komi hingað smit­aðir.

Land­spít­al­inn telur sig geta sinnt verk­efnum sem myndu hljót­ast af opnun lands­ins fyrir ferða­mönnum þann 15. júní, að upp­fylltum ýmsum skil­yrðum, en telur þó að áhætta fyrir reglu­lega starf­semi spít­al­ans í sumar sé veru­leg. Spít­al­inn mun þurfa að fara á hættu­stig um leið og fyrsti COVID-19 smit­aði sjúk­ling­ur­inn þarfn­ast inn­lagnar, með til­heyr­andi röskun á starf­sem­inni.

Þetta kemur fram í bréfi sem Páll Matth­í­as­son for­stjóri spít­al­ans rit­aði ráðu­neyt­is­stjóra heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins, 20. maí. Þar tók hann saman áhættu­möt sem far­sótt­ar­nefnd spít­al­ans og rann­sókna­stofa hans unnu vegna fyr­ir­hug­aðrar opn­unar landamæra með skimunum fyrir veirunni á Kefla­vík­ur­flug­velli.[links]

Í þessu heild­ar­á­hættu­mati for­stjór­ans segir að helsta áskor­unin varð­andi opnun landamær­anna í sumar sé mönnun starfsein­inga, sem þurfi að end­ur­skoða í ljósi þess að orlofs­tími er við það að fara í hönd.

„Ljóst að strax við fyrsta smit mun mikið mæða á starf­semi sem orðin er þreytt af erf­iðri bar­áttu við far­sótt­ina og er á minni afköstum vegna sum­ar­leyfa. Mönnun verður mjög flókin og staða gjör­gæslu­deilda sér­stak­lega, þar sem aukið álag er á þær deildir yfir sum­arið vegna slysa, en tak­mörkuð geta til að bæta þar við mann­skap eins og gæti þurft,“ segir í mati Páls.

[adspot]

Einnig segir Páll að gera þurfi ský­lausa kröfu um að fólk hafi full­nægj­andi trygg­ingar það ferð­ast inn í landið, því ljóst sé að kostn­aður geti orðið mjög mik­ill hjá ein­stak­lingum með COVID-19 veik­indi á spít­al­anum.

Skimun einkennalausra takmarkað úrræði

Far­sótt­ar­nefnd spít­al­ans vann áhættu­mat, sem Már Krist­jáns­son for­maður nefnd­ar­innar und­ir­ritar. Þar segir að ljóst sé að fáir inn­lagðir ferða­menn myndu hafa tals­verð áhrif á dag­lega starf­semi Land­spít­ala og draga fljótt úr getu spít­al­ans til þess að sinna venju­bund­inni þjón­ustu, sem sé þó í lág­marki yfir sum­ar­tím­ann.

Talið er lík­legt af hálfu nefnd­ar­innar að ein­hverjir ferða­menn beri veiruna hingað til lands og útsetji eða jafn­vel smiti sam­ferða­menn sína eða Íslend­inga sem þeir hitta á ferðum sínum.

„Skimun ein­kenna­lausra er tak­markað úrræði þar sem nei­kvætt sýni þýðir ekki endi­lega að við­kom­andi verði jákvæður á næstu dögum. Það er því lík­legra en ekki að fólk veik­ist og ein­hverjir þurfi spít­ala­vist. Það verður mikil áskorun að manna spít­al­ann að sum­ar­lagi þegar stór hluti starfs­manna er í orlofi á hverjum tíma og margir eru úrvinda eftir nýaf­stað­inn far­aldur. Þá er óvissa um hversu margir myndu gefa kost á sér í bak­varða­sveit á þessum árs­tíma. Starfs­fólk Land­spít­ala eru miklir fag­menn og sýndu ein­stakan sam­taka­mátt og útsjón­ar­semi í bar­átt­unni við COVID. Flotinn er þreyttur og þarf að hvíl­ast en fyr­ir­sjá­an­lega þarf að kalla fólk inn úr sum­ar­leyfi ef ný bylgja fer af stað,“ segir í mati far­sótt­ar­nefnd­ar­innar.

Einnig er bent á það af hálfu far­sótta­nefnd­ar­innar að ef erlendir ferða­menn smit­ist hér á landi sé ekki hægt að útskrifa þá til sín heima fyrr en öll veik­indi þeirra eru yfir­staðin og þeir ekki lengur smit­andi.

SAk metur áhættuna einnig verulega

Sjúkra­húsið á Akureyri segir í sínu áhættu­mati, sem Bjarni Jónasson for­stjóri sendi til ráðu­neyt­is­stjór­ans, að áhættan fyrir röskun á venju­legri starf­semi sé veru­leg.

Um leið og fyrsti COVID-19 sjúk­ling­ur­inn þurfi inn­lögn þar verði sjúkra­húsið komið á hættu­stig og þurfi þá um leið að draga úr allri val­kvæðri starf­semi út árið. Auk þess mun slík staða hafa áhrif á sum­ar­leyfi og mönnun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár