Árið sem Íslendingar hentu minna af fötum en kínverskur tískurisi hristi upp í hlutunum

Fatasóun Íslend­inga hefur dreg­ist saman síð­ustu fimm ár, úr 15 kílóum á íbúa að með­al­tali í 11,5 kíló. Á sama tíma blómstrar net­verslun. 85 pró­sent Íslend­inga versla á net­inu og vin­sæl­asti vöru­flokk­ur­inn er föt, skór og fylgi­hlutir.

Netverslun, fatasóun og fatasöfnun og tengslin þar á milli var til umræðu á árinu sem er að líða.
Net­verslun, fata­sóun og fata­söfnun og tengslin þar á milli var til umræðu á árinu sem er að líða. Mynd: Samsett

Umhverf­is­vit­und Íslend­inga virð­ist vera að aukast, að minnsta kosti ef aðeins er tekið til­lit til umfangs fata­só­unar. Hver Íslend­ingur henti að með­al­tali 11,5 kílóum af textíl og skóm á síð­asta ári, sem er 3,5 kílóum minna en árið 2016 þegar hver Íslend­ingur henti að með­al­tali 15 kílóum af fötum og textíl á ári.

[links]Enn er tölu­vert í að mark­mið stjórn­valda náist, að hver íbúi hendi að með­al­tali tíu kílóum á ári. Á sama tíma eru föt, skór og fylgi­hlutur vin­sæl­asti vöru­flokkur í net­verslun Íslend­inga.

Kjarninn fjall­aði um fata­sóun og ýmsar hliðar hennar á árinu sem er að líða, hér má sjá það helsta:

Kínverski tískurisinn Shein:

Rakel Guð­munds­dóttir fjall­aði um kín­verska tískuris­ann Shein í ítar­legri frétta­skýr­ingu í sumar. Shein hefur tek­ist að end­ur­skil­greina hug­takið hrað­tíska. Raunar er ekki lengur hægt að tala um hrað­tísku. Réttara er að tala um háhraðat­ísku.

Shein var stofn­aði árið 2008 og hét þá SheInside og ku aðal­lega hafa selt brúð­ar­kjóla. Árið 2012 breytti eig­and­inn, Chris Xu, áherslum fyr­ir­tæk­is­ins og byrj­aði að selja tísku­fatnað fyrir ung­lings­stúlkur og breytti síðar nafn­inu í Shein (borið fram she-in). Chris Xu var eng­inn sér­stakur tísku­fröm­uður en hann sér­hæfði sig í leit­ar­véla­bestun (e. search engine optim­ization) og er tækni­m­iðuð nálgun í mark­aðs­setn­ingu talin ein helsta ástæða þess hvað fyr­ir­tækið hefur vaxið hratt.

[adspot]Shein er í dag metið á 100 millj­arða Banda­ríkja­dala. Það er meira en sam­an­lagt virði tískurisanna H&M og Zara. Árið 2021 tók snjall­for­rit Shein fram úr Amazon sem vin­sælasta inn­kaupa-appið í Banda­ríkj­unum og er heima­síða Shein einnig mest heim­sótta fata­síða í heimi. Stærsti mark­aður Shein er í Banda­ríkj­un­um, Bras­il­íu, Frakk­landi og Spáni.

Fötin sem Shein selur eru fram­leidd við slæmar vinnu­að­stæður og hafa umhverf­is­sinnar bent á að þau séu úr svo litlum gæðum að oft séu þau aðeins notuð í eitt skipti, mögu­lega til að ná góðri mynd á Instagram, áður en þau enda í rusl­inu.

Fatasóun á Íslandi:

Í haust greindi Kjarninn frá því að dregið hefur úr fata­sóun Íslend­inga síð­ustu fimm ár eftir öran vöxt fimm árin þar á undan. Í fyrra henti hver íbúi að með­al­tali 11,5 kílóum af textíl og skóm yfir árið, sem er 3,5 kílóum minna en árið 2016 þegar fata­sóun náði hápunkti.

Árið 2016 inn­leiddi umhverf­is­ráðu­neyt­ið, nú umhverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­ið, almenna stefnu um úrgangs­for­varn­ir. Yfir­skrift stefn­unnar er Saman gegn sóun og í henni er lögð áhersla á nægju­semi, betri nýtni og minni sóun ásamt því að auka fræðslu til að koma í veg fyrir myndun úrgangs. Enn er tölu­vert í að mark­mið stjórn­valda náist, að hver íbúi hendi að með­al­tali tíu kílóum á ári.

Á sama tíma og fata­sóun minnkar örlítið sækir net­verslun á fatn­aði í sig veðrið og eru föt, skór og fylgi­hlutir stærsti vöru­flokk­ur­inn sam­kvæmt net­versl­anapúlsi Pró­sents, auk þess sem 11 pró­sent lands­manna gera ráð fyrir að versla meira á net­inu næstu 12 mán­uði.

Vinsældir erlendra tískurisa á Íslandi:

Í fram­haldi af umfjöllun um fata­sóun beindi Kjarninn sjónum sínum að net­verslun. Aðeins fimm Evr­ópu­þjóðir aðrar en Íslend­ingar versla meira á net­inu. Föt, skór og fylgi­hlutir er vin­sæl­asti vöru­flokk­ur­inn, jafnt í Evrópu og á Íslandi, og hér á landi er Boozt lang vin­sælasta net­versl­unin í þeim flokki með 38 pró­sent hlut­deild.

Shein hefur sótt í sig veðrið í net­verslun á Íslandi og er með átta pró­sent hlut­deild í net­verslun Íslend­inga á fatn­aði í erlendum net­versl­unum.

Rauði krossinn og Hringekjan taka fatnað frá Shein úr sölu:

Shein komst í frétt­irnar á árinu vegna eit­ur­efna í flíkum sem fyr­ir­tækið fram­leiðir. Rann­sóknir hafa sýnt að vörur frá Shein inni­halda skað­leg efni. Af þeim vörum sem rann­sak­aðar voru inn­­i­hélt ein vara af hverjum fimm umtals­vert magn eit­­­ur­efna, meðal ann­­­ars blý, PFAS og þalöt.

Í kjöl­far umfjöll­unar Kjarnans um fata­sóun, Shein og áhuga Íslend­inga á fata­kaupum á net­inu af erlendum tískurisum ákvað hringrás­ar­versl­unin Hringekjan, þar sem bása­leigj­endum gefst kostur á að selja notuð föt, að taka allar vörur frá tískuris­anum Shein úr end­ur­sölu vegna magns eit­ur­efna í flík­unum.

Nokkrum dögum seinna sendi Rauði kross­inn frá sér til­kynn­ingu þar sem greint var frá því að héðan í frá verði allt gert til að forð­ast að vörur frá Shein endi í fata­versl­unum Rauða kross­ins. Flíkum frá Shein á samt sem áður að skila í fata­söfn­un­ar­gáma Rauða kross­ins.

Kjarninn fjall­aði í kjöl­farið um örlög hrað­tískuflíka sem koma til Íslands frá Kína. Flíkum frá Shein sem er skilað í fata­söfn­un­ar­gáma Rauða kross­ins enda hjá end­ur­vinnslu­að­ila í Þýska­landi, þar sem óljóst er hvort magn eit­ur­efna í flík­unum hafi áhrif á end­ur­vinnslu þeirra.

Shein lofar bót og betrun:

Shein hefur ekki brugð­ist við umfjöllum um eit­ur­efni í flíkum en lofar bót og betrun á öðrum sviðum. Kín­verska fata­fyr­ir­tækið við­ur­kennir að hafa brotið gegn reglum um vinnu­tíma og heitir því að verja 15 millj­ónum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um tveimur millj­örðum króna, í að bæta vinnu­að­stæður starfs­manna í fata­verk­smiðjum sem fram­leiða fatnað sem Shein sel­ur.

En það er stórt en. Shein við­ur­kennir aðeins að hafa brotið gegn reglum um vinnu­tíma í tveimur verk­smiðjum af mörg þús­und sem fyr­ir­tækið á í við­skiptum við.

Shein við­ur­kenndi brotin eftir að starfs­fólk í tveimur verk­smiðjum steig fram í bresku heim­ild­ar­mynd­inni Inside the Shein Machine: UNTOLD og greindu frá gríð­ar­löngum vinnu­dögum og fáum, ef ein­hverj­um, frí­dög­um.

Shein full­yrðir að tveggja millj­arða króna fjár­fest­ing­ar­á­ætlun fyr­ir­tæk­is­ins sem snýr að bættum vinnu­að­stæðum starfs­fólk sem fram­leiðir flíkur tískuris­ans muni ná til mörg hund­ruð verk­smiðja á næstu þremur til fjórum árum.

Adam Win­ston, yfir­maður umhverf­is- og sam­fé­lags­mála hjá Shein á heims­vísu segir fyr­ir­tækið hafa unnið mark­visst að áætlun um upp­runa­á­byrgðir (e. responsi­ble sourcing programme) til að bæta vel­ferð og vinnu­að­stæður starfs­fólks sem fram­leiðir vörur Shein.

Shein hefur einnig komið á fót kerfi sem gerir starfs­fólki fata­verk­smiðj­anna kleift að senda inn nafn­lausar ábend­ingar eða kvart­anir með tölvu­pósti, sím­tali eða í gegnum WeChat. „Það er hluti af áætlun okkar til að sinna eft­ir­liti og við­halda rétt­indum starfs­fólks,“ segir Win­ston.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fatasóun

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár