Hætta að selja föt frá kínverska tískurisanum Shein vegna eiturefna

Hringrás­ar­versl­unin Hringekjan, þar sem bása­leigj­endum gefst kostur á að selja notuð föt, hefur tekið allar vörur frá tískuris­anum Shein úr end­ur­sölu vegna magns eit­ur­efna í flík­unum.

Hringrásarverslunin Hringekjan hefur tekið fatnað frá kínverska hraðtískurisanum Shein úr endursölu vegna magns eiturefna sem eru í flíkunum. Skila má flíkunum í nytjagám Sorpu en það er hlutverk Rauða krossins að skilgreina hvort þær eigi heima þar.
Hringrás­ar­versl­unin Hringekjan hefur tekið fatnað frá kín­verska hrað­tískuris­anum Shein úr end­ur­sölu vegna magns eit­ur­efna sem eru í flík­unum. Skila má flík­unum í nytjagám Sorpu en það er hlut­verk Rauða kross­ins að skil­greina hvort þær eigi heima þar. Mynd: Erla María Markúsdóttir

Hringrás­ar­versl­unin Hringekjan tók þá ákvörðun nýverið að taka allar vörur frá Shein úr end­ur­sölu í verslun sinni. Jana Mar­en Óskars­dótt­ir, annar eig­andi Hring­ekj­unn­ar, segir vörur frá Shein ekki falla að hug­mynda­fræði fyr­ir­tæk­is­ins, að sporna gegn fata­sóun og stuðla að heil­brigð­ari fatainn­kaupum. Hringekjan opn­aði í árs­byrjun 2021 og er í hópi ört fjölg­andi versl­ana þar sem fólki gefst kostur á að leigja bás og selja notuð föt, skó og fylgi­hluti.

Í aðdrag­anda ákvörð­un­ar­innar að hætta að selja föt frá Shein hafði Jana sam­band við Sorpu þar sem hún fékk þær upp­lýs­ingar að fatn­aður frá Shein flokk­ast sem eitr­aður textíll og eigi því að fara í sér­stakan gám fyrir eitr­aðan úrgang. „Okkur finnst mik­il­vægt að taka fram að skila þessum fatn­aði alls ekki í gáma góð­gerð­ar­sam­taka þar sem þau myndu halda áfram að eitra not­endur og umhverfið,“ segir Jana.

Gunnar Dofri Ólafsson, sam­skipta- og við­skipta­þró­un­ar­stjóri Sorpu, segir í sam­tali við Kjarnann að upp­lýs­ing­arnar sem Jana fékk hafi verið byggðar á mis­skilngi. Sorpa hefur ekki tekið málið til skoð­unar en Gunnar Dofri bendir á að það sé hlut­verk Rauða kross­ins, sem sér um nytjagámana, að taka afstöðu til þess hvort um eitr­aðan úrgang sé að ræða.

Í upp­haf­legri útgáfu frétt­ar­innar var full­yrt að Sorpa flokki vörur frá Shein sem eitr­aðan úrgang. Það hefur nú verið leið­rétt.

Stofnandi Shein sérfræðingur í leitarvélabestun

Shein var stofn­að árið 2008 og hét þá SheInside og seldi aðal­lega brúð­ar­kjóla. Árið 2012 breytti eig­and­inn, Chris Xu, áherslum fyr­ir­tæk­is­ins og byrj­aði að selja tísku­fatnað fyrir ung­lings­stúlkur og breytti síðar nafn­inu í Shein (borið fram she-in). Chris Xu var eng­inn sér­stakur tísku­fröm­uður en hann sér­hæfði sig í leit­ar­véla­bestun (e. search engine optim­ization) og er tækni­m­iðuð nálgun í mark­aðs­setn­ingu talin ein helsta ástæða þess hvað fyr­ir­tækið hefur vaxið hratt.

Shein er í dag metið á yfir 100 millj­arða Banda­ríkja­dala. Það er meira en sam­an­lagt virði tískurisanna H&M og Zara. Í fyrra tók snjall­for­rit Shein fram úr Amazon sem vin­sælasta inn­kaupa-appið í Banda­ríkj­unum og er heima­síða Shein einnig mest heim­sótta fata­síða í heimi. Stærsti mark­aður Shein er í Banda­ríkj­un­um, Bras­il­íu, Frakk­landi og Spáni.

Ónötuð föt frá Shein í endursölu sem notuð föt

Íslenskir neyt­endur hafa tekið Shein opnum örmum. Ef kaup­hegðun Íslend­inga á net­inu er skoðuð eru föt, skór og fylgi­hlutir vin­sæl­asti vöru­flokk­ur­inn og er Shein með átta pró­sent hlut­deild erlendra net­versl­ana þegar kemur að fata­kaupum, á eftir Boozt og Asos.

[links]Föt og fylgi­hluti frá Shein hafa verið að sjást í auknum mæli í Hringekj­unni að sögn Jönu en dæmi eru um að föt frá Shein komi í Hringekj­una enn með mið­anum á. „Og þá kannski sömu eða svip­aða flík í mis­mun­andi munstrum eða litum sem er þá ekki verið að nota. Fólk er þá kannski að panta sér alls konar og sjá svo hvað passar og hvað er flott.“

Þetta er hættu­leg þróun að mati Jönu. „Það er akkúrat það sem við viljum ekki vera að ýta undir, að það sé auð­velt að versla sér eitt­hvað svona á net­inu og svo end­ur­selja það hjá okkur. Okkur finnst það ekki alveg passa þar sem starf­semin snýst um að leið­rétta ofneyslu á fatn­aði. Við fórum að velta fyrir okkur af hverju við værum að selja þessar vörur þar sem við höfum heyrt ýmis­legt slæmt um starf­semi þess. Því meira sem við fórum að lesa okkur til um þetta, því meira varð þetta bara lausnin. Við viljum ekki hafa þetta í versl­un­inni okkar.“

Blý, PFAS, þalöt og önnur eiturefni langt yfir viðmiðunarmörkum

Rann­sóknir hafa sýnt að vörur frá Shein inni­halda skað­leg efni. Í októ­ber 2021 sýndi kanadíska sjón­varps­stöðin CBC frétta­skýr­inga­þátt um skað­leg efni í vörum frá Shein. Af þeim vörum sem rann­sak­aðar voru inni­hélt ein vara af hverjum fimm umtals­vert magn eit­ur­efna, meðal ann­ars blý, PFAS og þalöt. Flík­urnar sem CBC rann­sak­aði voru meðal ann­ars ætluð börnum og ófrískum kon­um. Rann­sak­endur komust að því að jakki fyrir unga­barn, keyptur af heima­síðu Shein, inni­hélt nán­ast 20 sinnum meira blý en heil­brigð­is­stofnun Kanada telur öruggt fyrir börn. Taska frá Shein inni­hélt efni sem var fimm sinnum yfir við­mið­un­ar­mörk­um.

Hvatning til að stíga skrefi lengra

Við­brögðin við ákvörðun Hringekj­unnar eru fyrst og fremst jákvæð að sögn Jönu. „Við eig­in­lega trúðum því ekki hvað þetta var allt jákvætt. Við vorum alveg búin að búa okkur undir ein­hverja gagn­rýni en það var lítið sem ekk­ert af því.“

Hrósum hefur aftur á móti rignt yfir Hringekj­una og Jana hefur fengið fyr­ir­spurnir frá kúnnum um önnur hrað­tísku­merki, til að mynda H&M og spænsku merkin Stra­di­varius og Pull and Bear. „Við erum að reyna að taka eitt skref í einu og kynna okkur málin vel áður,. Við viljum aðal­lega vekja fólk til umhugs­unar um inni­halds­efni í fatn­aði, og hvaða áhrif offram­leiðsla og neysla hefur á umhverfið og sam­fé­lagið okkar.“

„Margir nota þau rök að aðeins sé hægt að kaupa ódýran fatnað í gegnum fyr­ir­tæki á borð við Shein, en í raun hafa þær flíkur að með­al­tali stuttan líf­tíma. Það er miklu betri lausn til lengdar að velja vel flíkur úr hringrás­ar­versl­unum á góðum kjörum heldur en að kaupa mikið magn af ódýrum flíkum sem end­ast í styttri tíma,“ segir Jana, sem úti­lokar ekki að Hringekjan muni hætta end­ur­sölu á á vörum frá fleiri merkjum.

Eftir því sem Kjarninn kemst næst er Hringekjan fyrsta versl­unin sem selur not­aðan fatnað og fylgi­hluti sem bannar vörur frá ákveðnum fram­leið­anda.

Jana segir að með ákvörð­un­inni hafi Hringekjan ekki viljað setja pressu á aðrar versl­anir til að gera slíkt hið sama. „Okkar rök eru eit­ur­efnin og skað­lega dótið og í raun­inni að breyta hugs­un­ar­hætt­inum um að fólk hætti að versla við þau þannig að það þurfi ekki að losa sig við svona hluti.“

„Þetta erum við að hugsa um hver við erum sem fyr­ir­tæki og hvernig okkur langar að kynna okkur fyrir almenn­ingi. Það eru margir sem hafa ekki hug­mynd um þetta og vissu ekki einu sinni hvaða merki þetta væri en áttu þetta til inni í skáp af því að það hafði verið að kaupa þetta á mörk­uð­unum.“

Með því að úti­loka vörur frá Shein vill Hringekjan fyrst og fremst vekja fólk til umhugs­unar um kaup­hegðun sína og umhverf­is­vit­und.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fatasóun

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár