Fatasóun dregst saman en fatnaður orðinn stærsti flokkurinn í netverslun

Dregið hefur úr fata­sóun hér á landi síð­ustu fimm ár eftir öran vöxt fimm árin þar á undan. Á sama tíma eru föt, skór og fylgi­hlutur vin­sæl­asti vöru­flokkur í net­verslun Íslend­inga.

Umhverf­is­spor hverrar flíkur er gíf­ur­legt, allt frá fram­leiðslu til förg­unar en óhætt er að full­yrða að vit­und­ar­vakn­ing hafi orðið um umhverf­is­mál hér á landi á und­an­förnum árum. Samkvæmt umhverfiskönnun Gallup, sem fram­kvæmd var fimmta árið í röð á þessu ári, hafa fjórir af hverjum fimm Íslend­ingum breytt hegðun sinni til þess að lág­marka áhrif á umhverfi og lofts­lags­breyt­ingar. Þeim hefur fjölgað til muna en fyrir þremur árum sögð­ust tveir af hverjum þremur Íslend­ingum hafa breytt hegðun sinni.

Dregið hefur úr fata­sóun hér á landi síð­ustu fimm ár en á sama tíma sækir net­verslun á fatn­aði í sig veðrið og eru föt, skór og fylgi­hlutir stærsti vöru­flokk­ur­inn sam­kvæmt net­versl­anapúlsi Prósents, auk þess sem 11 pró­sent lands­manna gera ráð fyrir að versla meira á net­inu næstu 12 mán­uði.

Síðustu ár hafa stjórn­völd aukið aðgerðir í umhverf­is­málum. Í sept­em­ber 2018 var gefin út aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum til árs­ins 2030 sem sam­anstendur af 50 aðgerðum til að stuðla að sam­drætti í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Nægjusemi, nýtni og minni sóun

Árið 2016 inn­leiddi umhverf­is­ráðu­neytið, nú umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neytið, almenna stefnu um úrgangs­for­varnir. Yfir­skrift stefn­unnar er Saman gegn sóun og í henni er lögð áhersla á nægju­semi, betri nýtni og minni sóun ásamt því að auka fræðslu til að koma í veg fyrir myndun úrgangs.

Markmið stefn­unnar er að magn textíls og skófatn­aðar á hvern íbúa fari ekki yfir 10 kíló á íbúa á ári. Það náð­ist síð­ast árið 2013. Fatasóun náði hápunkti árið 2016 þegar hver íbúi henti að með­al­tali 15 kílóum af textíl og skóm yfir árið, eða alls 5.700 tonn­umm.

Stefnan gildir til árs­ins 2027 og er umsjón hennar í höndum Umhverf­is­stofn­unar. Ákveðnir úrgangs­flokkar eru í brennid­epli á hverju ári og á meðan hver flokkur er í for­gangi er hægt að sækja um verk­efna­styrki til umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­is­ins.

Textíll var í brennid­epli 2020-2021 undir yfir­skrift­inni Vist­vænni textíll. Meðal mark­miða var að minnka dreif­ingu á efnum í vörum sem standa almenn­ingi hvað næst, sem og að bæta nýt­ingu auð­linda.

Markmið stjórnvalda að komast niður fyrir 10 kg á ári á hver íbúa

Árið 2016 henti hver Íslend­ingur að með­al­tali 15 kílóum af textíl og skóm yfir árið sem er nærri því tvö­falt meira magn en hver Íslend­ingur henti árið 2012 þegar með­al­talið var átta kíló á ári.

Frá 2016, sama ár og stefnan Saman gegn sóun tók gildi, hefur dregið smám saman úr fata­sóun. Markmið stjórn­valda er að kom­ast niður fyrir 10 kíló á ári á hvern íbúa. Enn er tölu­vert í að það náist. Frá 2016 hefur með­al­talið lækkað um um það bil kíló á ári. Í fyrra henti hver Íslend­ingur að með­al­tali 11,5 kílóum af textíl og skóm á ári.

Inni­falið í þessum kílóum er bæði magnið sem fer til end­ur­nýt­ingar og magnið sem ratar í bland­aðan úrgang og endar í flestum til­fellum í urðun. Umhverf­is­stofnun áætlar að um 60 pró­sent af vefn­að­ar­vöru á Íslandi fari í ruslið og endar annað hvort í urðun eða brennslu. Aðeins 40 pró­sent fer í end­ur­notkun og end­ur­nýt­ingu.

Flíkur enda fyrr í ruslinu

Fram­leiðsla á fötum hefur nær tvö­fald­ast frá alda­mótum og líf­tími þeirra styst. Með­al­fjöldi skipta sem hver flík er notuð hefur dreg­ist saman um fjórð­ung frá árinu 2000, hver flík er nú notuð 150 sinnum í stað 200 sinnum, áður en hún endar í rusl­inu.

Ástæðuna má að stórum hluta rekja til hrað­tísku (e. fast fas­hion), það er þegar að tísku­fyr­ir­tæki fram­leiða mikið magn af flíkum og selja á mjög lágu verði. Flík­urnar eru yfir­leitt úr gæða­litlum efnum og fram­leiddar í löndum þar sem vinnu­skil­yrði eru slæm, fólkið sem býr flík­urnar til fær ekki mann­sæm­andi laun og jafn­vel eru börn að störf­um.

Úr hraðtísku í háhraðatísku

Hugtakið hrað­tíska var fyrst notað yfir við­skipta­módel spænska tísku­vöru­merk­is­ins Zara. „Á sínum tíma fór Zara úr því að hanna árs­tíða­bundnar tísku­línur yfir í að bjóða neyt­endum upp á stöðugan straum af nýjum fatn­aði allan árs­ins hring. Hrað­inn átti þó eftir að aukast til muna og nú væri nær að tala um háhraðat­ísku (e. ultra fast fas­hion),“ segir í Neyt­enda­blað­inu þar sem til­efni umfjöll­un­ar­innar var kín­verski hrað­tískuris­inn Shein.

Shein er kín­verskt fata­fyr­ir­tæki sem hefur vaxið gríð­ar­lega á und­an­förnum árum og er í dag eitt stærsta tísku­vöru­fyr­ir­tæki í heimi. Með til­komu Shein er hrað­inn í tísku­straumum orð­inn svo mik­ill að hefð­bundnu hrað­tísku­fyr­ir­tækin eins og H&M og Zara blikna í sam­an­burði. Hraðinn gerir það að verkum að gæðin eru lítil sem engin. Dæmi eru um að fötin séu aðeins notuð í eitt skipti, mögu­lega til að ná góðri mynd á Instagram, áður en þau enda í rusl­inu.

Íslendingar kaupa mest af fötum, skóm og fylgihlutum á netinu

Íslenskir neyt­endur hafa tekið Shein opnum örmum og reglu­lega birt­ast færslur í Facebook-hópum eins og „Beauty Tips!“ og „Góða systir“ þar sem stelpur, sem eru margar hverjar að stíga sín fyrstu skref í kaupum á net­inu, leita ráða um hvað sé best að kaupa á Shein og hversu lengi þurfi að bíða eftir að hrað­tísku­vör­unum.

Þegar kemur að net­verslun Íslend­inga verða föt, skór og fylgi­hlutir fyrir val­inu í 14 pró­sent til­vika, oft­ast allra vöru­flokka. Síð­ast­liðin tvö ár hefur Prósent, í sam­starfi við Samtök versl­unar og þjón­ustu og Rann­sókn­ar­setur versl­un­ar­innar, tekið saman ýmsar upp­lýs­ingar um kaup­hegðun Íslend­inga á net­inu. Gögnin upp­fær­ast í raun­tíma og byggja á 200 svörum Íslend­inga, 18 ára og eldri, sem valdir eru af handa­hófi. Gögnum er safnað í hverjum mán­uði og ná aftur til mars 2021.

Net­versl­un­ar­púls­inn sýnir meðal ann­ars að konur versla meira af fötum, skóm og fylgi­hlutum en karlar. Af kaupum á net­inu sam­an­standa 19 pró­sent kaup kvenna af fötum, skóm og fylgi­hlutum en átta pró­sent kaup karla.

Skandinavía, Bretland og Kína

39 pró­sent af kaupum Íslend­inga á fötum, skóm og fylgi­hlutum fara fram á inn­lendum net­versl­unum en 61 pró­sent á erlendum net­versl­unum. Þar trónir skand­in­av­íska net­versl­unin Boozt á toppnum með 37 pró­sent hlut­deild. Þar á eftir kemur breska tísku­fyr­ir­tækið Asos og loks Shein með átta pró­sent hlut­deild.

Mark­hópur Shein er Z-kyn­slóðin, ein­stak­lingar ​​fæddir milli áranna 1997 og 2012, einna helst ung­lings­stúlkur og fer hin árang­urs­ríka mark­aðs­setn­ing fyrst og fremst fram á sam­fé­lags­miðlum eins og TikT­ok, Instagram og Youtu­be.

Samkvæmt kyn­slóða­mæl­ingu Prósents gerir Z-kyn­slóðin minnst, sam­an­borið við aðrar kyn­slóðir, til að huga að umhverf­inu og draga úr mengun. Mæling Prósents á Z-kyn­slóð­inni nær til ein­stkal­inga sem eru fæddir á milli áranna 1997-2007. 76 pró­sent þeirra fara með gömul föt í end­ur­vinnslu, selja eða gefa, sam­an­borið við 91 pró­sent eldri kyn­slóða. Z-kyn­slóðin kaupir hins vegar meira magn af not­uðum fötum en hinar kyn­slóð­irnar, eða 32 pró­sent.

Hvað er til ráða?

Almenn­ingur er kom­inn mis­langt á veg­ferð­inni að breyttri hegðun í umhverfis- og lofts­lags­málum. Þrátt fyrir vit­und­ar­vakn­ingu í umhverf­is­mál á und­an­förnum árum er mark­mið stjórn­valda að draga úr fata­sóun að því marki að hún verði jafn mikil og fyrir níu árum.

Stjórn­völd vilja þannig ná því mark­miði að hver Íslend­ingur hendi að með­al­tali tíu kílóum af textíl og skóm, rétt eins og árið 2013, í stað 15 kílóa á ári líkt og raunin var árið 2016.

Í marg­nefndri stefnu, Saman gegn sóun, er verk­efnið ein­faldað og lögð til nokkur ráð til að auka líf­tíma fatn­aðar og textíls sem sam­ræm­ast hug­mynda­fræði hringrás­ar­hag­kerf­is­ins. Með því að kaupa minna, nota lengur, kaupa notað, koma fatn­aði og skóm í áfram­hald­andi notkun eða skila á réttan stað má minnka fata­sóun til muna. Þá leggur Umhverf­is­stofnun mikla áherslu á að fólk fari með allan textíl, líka það sem er ónýtt, blettótt eða með götum, í end­ur­vinnslu.

„Það er margt sem við getum gert til að vera partur af lausn­inni. Það mik­il­væg­asta er að draga úr neyslu þar sem inn­kaupin ráð­ast í dag að miklu leyti af löngun en ekki þörfum,“ segir í stefnu stjórn­valda um úrgangs­for­varnir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fatasóun

Mest lesið undanfarið ár