Rúmlega þriðjungur fatakaupa Íslendinga á netinu fara fram á Boozt

Aðeins fimm Evr­ópu­þjóðir aðrar en Íslend­ingar versla meira á net­inu. Föt, skór og fylgi­hlutir er vin­sæl­asti vöru­flokk­ur­inn, jafnt í Evrópu og á Íslandi, og hér á landi er Boozt lang vin­sælasta net­versl­unin í þeim flokki með 38 pró­sent hlut­deild.

85 prósent Íslendinga versla á netinu. Vinsælasti vöruflokkurinn er föt, skór og fylgihlutir og þar nýtur skandinavíska verslunin Boozt mestra vinsælda.
85 pró­sent Íslend­inga versla á net­inu. Vin­sæl­asti vöru­flokk­ur­inn er föt, skór og fylgi­hlutir og þar nýtur skand­in­av­íska versl­unin Boozt mestra vin­sælda. Mynd: Pexels

Net­verslun Íslend­inga hefur farið ört vax­andi á und­an­förnum árum. Í fyrra versl­uðu 85 pró­sent Íslend­inga á net­inu, sam­an­borið við 75 pró­sent árið 2018. Ef litið er tíu ár aftur í tím­ann nemur aukn­ingin 30 pró­sentum.

Net­verslun Íslend­inga er vel yfir með­al­tali ann­arra Evr­ópu­ríkja en sam­kvæmt nýjum tölum frá Eurostat er Ísland í sjötta sæti álf­unnar hvað varðar net­verslun. Ef kaup­hegðun íbúa allra Evr­ópu­ríkja er skoðuð keyptu 67 pró­sent Evr­ópu­búa, á aldr­inum 16-74 ára, vörur eða þjón­ustu á net­inu á síð­asta ári.

[adspot]92 pró­sent Norð­manna versla á net­inu, mest allra Evr­ópu­búa. Næst á eftir koma Danir, Hol­lend­ingar, Írar og Svíar. Net­verslun fer minnk­andi eftir því sem austar og sunnar er farið í álf­unni. Þannig versla aðeins 17 pró­sent Albana á net­inu.

Fleiri breyta hegðun sinni í umhverfisskyni en föt vinsælust í netverslun

Vit­und­ar­vakn­ing hefur orðið í umhverf­is­málum á und­an­förnum árum. Samkvæmt umhverfiskönnun Gallup hafa 82,5 pró­sent Íslend­inga breytt hegðun sinni síð­ast­liðin fimm ár til að þess að lág­marka áhrif sín á umhverfi og lofts­lags­breyt­ingar. Það er tæp­lega 20 pró­senta aukn­ing á tveimur árum, þegar um 63 pró­sent svar­enda sögð­ust hafa breytt hegðun sinni mikið eða nokkuð.

Dregið hefur úr fata­sóun hér á landi síð­ustu fimm ár, eftir öran vöxt fimm árin þar á undan, en á sama tíma sækir net­verslun í sig veðrið. Föt, skór og fylgi­hlutir er vin­sæl­asti vöru­flokk­ur­inn, jafnt á Íslandi sem og í Evrópu.

[links]Líkt og Kjarninn fjall­aði nýverið um verða föt, skór og fylgi­hlutir oft­ast fyrir val­inu þegar Íslend­ingar versla á net­inu, eða í 14 pró­sent til­vika. Konur versla meira af föt­um, skóm og fylgi­hlutum en karl­ar. Af kaupum á net­inu sam­an­standa 19 pró­sent kaup kvenna af föt­um, skóm og fylgi­hlutum en átta pró­sent kaup karla.

Þetta er meðal þess sem lesa má út úr Net­versl­un­ar­púlsi Prósents. Síð­ast­liðin tvö ár hefur Pró­sent, í sam­starfi við Sam­tök versl­unar og þjón­ustu og Rann­sókn­ar­setur versl­un­ar­inn­ar, tekið saman ýmsar upp­lýs­ingar um kaup­hegðun Íslend­inga á net­inu. Gögnin upp­fær­ast í raun­tíma og byggja á 200 svörum Íslend­inga, 18 ára og eldri, sem valdir eru af handa­hófi. Gögnum er safnað í hverjum mán­uði og ná aftur til mars 2021.

Boozt trónir á toppnum

61 pró­sent kaupa á fötum, skóm og fylgi­hlutum Íslend­inga á net­inu fara í gegnum erlendar net­versl­anir og þar trónir skand­in­av­íska tísku- og lífs­stíls­versl­unin Boozt á toppnum með 38 pró­sent hlut­deild. Þar á eftir kemur breska tísku­fyr­ir­tækið Asos með 13 pró­sent hlut­deild og loks kín­verski hrað­tískuris­inn Shein með átta pró­sent hlut­deild.

38 pró­sent af kaupum Íslend­inga á fötum, skóm og fylgi­hlutum á net­inu kemur frá Skand­in­avíu, það er í gegnum Boozt. 29 pró­sent kemur frá Bret­landi, 16 pró­sent frá Bana­ríkj­unum, 11 pró­sent frá Kína og sjö pró­sent frá öðrum löndum.

Ellefu prósent ætla að versla meira á netinu næstu 12 mánuði

Samkvæmt Net­versl­un­ar­púls­inum gera ell­efu pró­sent Íslend­inga ráð fyrir að versla meira á net­inu næstu 12 mán­uði og tvö pró­sent miklu meira. 57 pró­sent sjá ekki fram á að breyta hegðun sinni á næst­unni og ætla að versla jafn­mikið.

Sjö pró­sent telja að þeir ætli að versla tals­vert minna en aðeins fjögur pró­sent telja sig ætla að versla miklu minna á net­inu næstu 12 mán­uði. 19 pró­sent eru óviss um hvort kaup­hegðun þeirra á net­inu muni breyt­ast næstu mán­uði. En ef fram fer sem horfir mun net­verslun Íslend­inga vænt­an­lega halda áfram að aukast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

netverslun

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár