End­ur­vinnsla á textíl á Íslandi er alfarið í höndum Rauða kross­ins. Fatnaður frá Shein er ekki vel­kom­inn í versl­anir Rauða kross­ins vegna eit­ur­efna en er sendur til end­ur­vinnslu­að­ila í Þýska­landi líkt og 95% alls textíls sem skilað er í fata­söfn­un­ar­gáma. Mynd: Rauði krossinn/Facebook

Örlög hraðtískuflíka frá Shein: Frá Kína til Íslands til Þýskalands

Fötum frá Shein á að skila í fata­söfn­un­ar­gáma Rauða kross­ins þó svo að Rauði kross­inn vilji ekki sjá föt frá kín­verska tískuris­anum í versl­unum sínum. Örlög fatn­aðs frá Shein sem skilað er í fatagáma hér á landi ráð­ast hjá end­ur­vinnslu­að­ila í Þýska­landi.

Kjóll sem keyptur er á 700 íslenskar krónur hjá kín­verska net­versl­un­ar­ris­anum Shein, og er ef til vill bara not­aður í örfá skipti, endar hjá end­ur­vinnslu­að­ila í Þýska­landi. Það er að segja, ef honum er skilað í fata­söfn­un­ar­gám Rauða kross­ins.

Rauði kross­inn sendi frá sér til­kynn­ingu í byrjun mán­að­ar­ins þar sem greint var frá því að héðan í frá verði allt gert til að forð­ast að vörur frá Shein endi í fata­versl­unum Rauða kross­ins. Flíkum frá Shein á samt sem áður að skila í fata­söfn­un­ar­gáma Rauða kross­ins.

Björg Kjart­ans­dóttir, sviðs­stjóri fjár­öfl­unar- og kynn­ing­ar­sviðs hjá Rauða kross­inum, segir að með ákvörð­un­inni vilji Rauði kross­inn koma í veg fyrir að föt sem kunni að inni­halda skað­leg efni endi hjá skjól­stæð­ingum sem félagið úthlutar fötum til eða til við­skipta­vina versl­ana Rauða kross­ins.

„En það er aldrei hægt að tryggja það. Við vitum hins vegar að það geta farið föt inn í búðir okkar sem áttu ekki að enda þar. En ábyrgðin stendur á end­anum hjá neyt­and­anum, hvernig föt hann velur sér,“ segir Björg í sam­tali við Kjarnann.

„Við hugsum það þannig að við viljum gera það sem við getum til að minnka umferð af þessum fötum hér á landi til okkar skjól­stæð­inga og við­skipta­vina. Það er fyrst og fremst ástæðan.“

Skaðleg efni í flíkum frá kínverskum hraðtískurisa

Ákvörðun Rauða kross­ins var tekin í kjöl­far frétta um eit­ur­efni í fötum frá kín­verska tískuris­anum Shein. Kjarninn sagði frá því í lok októ­ber að hringrás­ar­versl­unin Hringekjan, þar sem bása­leigj­endum gefst kostur á að selja notuð föt, hefur tekið allar vörur frá Shein úr end­ur­sölu vegna magns eit­ur­efna í flíkum.

Shein er kín­verskt fata­fyr­ir­tæki sem hefur vaxið gríð­ar­lega á und­an­förnum árum og er í dag eitt stærsta tísku­vöru­fyr­ir­tæki í heimi. Með til­komu Shein er hrað­inn í tísku­straumum orð­inn svo mik­ill að hefð­bundnu hrað­tísku­fyr­ir­tækin eins og H&M og Zara blikna í sam­an­burði. Hrað­inn gerir það að verkum að gæðin eru lítil sem eng­in. Dæmi eru um að fötin séu aðeins notuð í eitt skipti, mögu­lega til að ná góðri mynd á Instagram, áður en þau enda í rusl­inu.

Í ítar­legri frétta­skýr­ingu um Shein í Kjarn­anum í sumar vís­aði Rakel Guð­munds­dóttir í rann­sóknir sem sýnt hafa að vörur frá Shein inni­halda skað­leg efni. Af þeim vörum sem rann­sak­aðar voru inn­i­hélt ein vara af hverjum fimm umtals­vert magn eit­­ur­efna, meðal ann­­ars blý, PFAS og þalöt. Shein hefur sótt í sig veðrið í net­verslun á Íslandi og er með átta pró­sent hlut­deild í net­verslun Íslend­inga á fatn­aði í erlendum net­versl­unum.

Allur textíll á að fara í fatsöfnunargámana

Þó svo að Rauði kross­inn vilji ekki að föt frá Shein endi í versl­unum Rauða kross­ins eða hjá skjól­stæð­ingum sem þiggja fata­út­hlut­anir frá félag­inu á fatn­aður frá Shein samt sem áður að fara í fata­söfn­un­ar­gáma Rauða kross­ins. Starfs­fólk Rauða kross­ins fer í gegnum fatn­að­inn og gerir sitt besta til að koma í veg fyrir að föt frá Shein endi í versl­unum Rauða kross­ins eða hjá skjól­stæð­ingum.

„Við tökum á móti öllum textíl. Við hvetjum fólk ein­dregið til að setja allan textíl í gámana,“ segir Björg, sem hvetur fólk jafn­framt til að setja textíl­inn í glæran poka ef það getur. „Þá getum við séð hvað er í pok­anum og sent það strax í end­ur­vinnslu.“

Aðeins fimm prósent textíls endurnýttur hér á landi

End­ur­vinnsla á textíl á Íslandi er ekki á for­ræði Sorpu heldur er hún alfarið í höndum Rauða kross­ins. Allur textíll úr grennd­ar­gámum og frá mót­töku­stöðvum Sorpu fer í flokk­un­ar­stöð Rauða kross­ins. „Allt sem endar í búðum hjá Rauða kross­inum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fer í gegnum þessa flokk­un­ar­mið­stöð hjá okkur. Það fer í gegnum for­flokkun, svo fer það í gegnum fínni flokkun og svo er því pakkað og sent í búð­irnar okkar,“ segir Björg.

Árlega safn­ast á bil­inu tvö til þrjú þús­und tonn af fatn­aði í söfn­un­ar­gáma Rauða kross­ins. Aðeins fimm pró­sent af því, um 100-150 tonn á ári, fer til skjól­stæð­inga Rauða kross­ins eða í versl­anir. Restin fer til flokk­un­ar­að­ila í Brem­er­haven í Þýska­landi en sá háttur hefur verið hafður á í tugi ára að sögn Bjargar.

Endurvinnsla á textíl á Íslandi er alfarið í höndum Rauða krossins. Fatnaður frá Shein er ekki velkominn í verslanir Rauða krossins vegna eiturefna en er sendur til endurvinnsluaðila í Þýskalandi líkt og 95% alls textíls sem skilað er í fatasöfnunargáma.
End­ur­vinnsla á textíl á Íslandi er alfarið í höndum Rauða kross­ins. Fatnaður frá Shein er ekki vel­kom­inn í versl­anir Rauða kross­ins vegna eit­ur­efna en er sendur til end­ur­vinnslu­að­ila í Þýska­landi líkt og 95% alls textíls sem skilað er í fata­söfn­un­ar­gáma.

Í Brem­er­haven er hver ein­asta flík hand­flokkuð en flokk­arnir skipta hund­ruðum. „60 pró­sent af því sem kemur til þeirra er hægt að nýta aftur. Annað er tætt niður eða fer í gegnum end­ur­vinnslu. Eingöngu níu pró­sent er ekki hægt að nýta,“ segir Björg.

Metið í Þýskalandi hvort föt eru endurunnin eða tætt niður

Fatnaður frá Shein, sem kom alla leið frá Kína til Íslands, er því sendur áfram til Brem­er­haven þar sem örlög hans ráð­ast. Föt frá Shein fara því mögu­lega áfram í end­ur­vinnslu þrátt fyrir að rann­sóknir sýna að fatn­að­ur­inn inni­haldi skað­leg efni.

„Þau eru ekki endi­lega með­höndluð þannig að þau eru tætt niður. Ef að þau telja að hægt sé að nýta flík­ina aftur þá eru þau ekki að með­höndla hana þannig að hún fer í tæt­ingu. En reyndin er hins vegar sú að þessi föt hafa þá til­hneig­ingu að þau end­ast fremur stutt. Það er flókn­ara að end­ur­vinna föt sem eru úr miklum gervi­þræði, en hvort að það sé nákvæm­lega þessi fram­leið­andi, Shein, sem þau eru að tæta, ég get ekki svarað því,“ segir Björg.

Aukin sala en einnig aukinn kostnaður

Í til­kynn­ingu Rauða kross­ins frá því í byrjun nóv­em­ber segir að ákvörðun varð­andi hvernig gengið verður frá fatn­aði frá Shein verði tekin í sam­ráði við Sorpu. Gunnar Dofri Ólafsson, sam­skipta- og við­skipta­þró­un­ar­stjóri Sorpu, segir stöð­una eftir sam­tal við Rauða kross­inn í raun vera óbreytta, það er: Sorpa er þjón­ustu­að­ili fyrir Rauða kross­inn þar sem fata­söfn­un­ar­gámar eru á mót­töku­stöðvum Sorpu en Rauði kross­inn sinnir áfram þessum hluta úrgangs­mála.

Dregið hefur úr fata­sóun Íslend­inga síð­ustu fimm ár eftir öran vöxt fimm árin þar á undan. Í fyrra henti hver íbúi að með­al­tali 11,5 kílóum af textíl og skóm yfir árið, sem er 3,5 kílóum minna en árið 2016 þegar fata­sóun náði hápunkti. Á sama tíma hefur sala í versl­unum Rauða kross­ins auk­ist jafnt og þétt en kostn­aður við end­ur­vinnslu textíls auk­ist gríð­ar­lega.

Aðspurð hvort það sé of umfangs­mikið verk­efni fyrir Rauða kross­inn að sjá alfarið um end­ur­vinnslu textíls segir Björg: „Þetta er kannski ekki spurn­ing um það heldur er spurn­ing hvort þetta sé arð­bært? Í dag þurfum við að hugsa hlut­ina öðru­vísi, þetta er ekki að borga sig með þeim hætti sem við getum sagt að það gerði til dæmis árið 2016 eða 2017.“

Björg segir að meðal verk­efna hjá Rauða kross­inum í þessum efnum er að horfast í augu við breytta tíma. „Við búum yfir mik­illi þekk­ingu, ára­tug­a­reynslu, við byrj­uðum að safna fötum í seinni heims­styrj­öld­inni. En það sem hefur gerst er að magnið er orðið svo mikið og það þýðir það að við erum að fram­leiða svo mikið, mikið, mikið meira af fötum en við höfum gert fyrir tíu árum síðan, hvað þá tutt­ugu. Það er orðin meiri sam­keppni á milli ódýrs fatn­aðar og end­urunn­ins fatn­aðar.“

Stað­reyndin er sú, að mati Bjargar, að á meðan fram­leiðsla á fatn­aði er jafn mikil eins og hún er núna mun end­urunn­inn fatn­aður eiga undir högg að sækja, sama hversu mikið umhverf­is­vit­und eykst.

„Við erum að glíma við svo gríð­ar­legt magn af ódýrum fötum. Það þýðir að við erum að fá lægra greitt fyrir end­urunnin föt, greiðslur frá end­ur­vinnslu­að­ilum erlendis hafa lækkað mark­tækt síðan 2016.“

27 prósent söluaukning í verslunum Rauða krossins á þremur árum

Vit­und­ar­vakn­ing um umhverf­is­mál hefur orðið á Íslandi á und­an­förnum árum og sést meðal ann­ars í sölu­aukn­ingu í versl­unum Rauða kross­ins. „Við erum að sjá bestu sölu­tölur á þessu ári sam­an­borið við síð­ustu ár, allt frá 2013 erum við með met­mán­uði í sölu.“ Björg segir nokkuð snúið að bera söl­una í ár saman við sölu síð­ustu ár, þar spili áhrif kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins inn í þar sem versl­an­irnar voru lok­aðar í langan tíma.

„Við sjáum hins vegar skýr merki um auk­inn áhuga á end­ur­nýt­ingu í búð­unum okkar. Ef við berum saman það sem af er ári 2022 við sama tíma á síð­asta ári, þá er aukn­ingin 17 pró­sent en ef við berum saman það sem af er ári 2022 við sama tíma­bil 2019 þá er sölu­aukn­ingin 27 pró­sent.“

Tímabært að endurskoða endurvinnsluferlið

Þó salan hafi auk­ist í krónum talið hefur kostn­að­ur­inn við útflutn­ing fatn­aðs til end­ur­vinnslu auk­ist gríð­ar­lega á móti. „Kostn­að­ur­inn við að gera það kleift að selja í búð­unum hefur auk­ist á sama tíma alveg gríð­ar­lega mikið.“

Björg segir að kostn­að­ur­inn við að flytja þús­undir tonna af fatn­aði úr landi árlega sé kom­inn á það stig að end­ur­skoða þurfi ferlið í sam­ráði við þá sem koma að mála­flokknum, það er Sorpu og Umhverf­is­stofnun, auk þess sem hún kallar eftir frek­ari aðkomu stjórn­valda.

Björg segir stöð­una ekki komna á það stig að verði að senda fatnað út. „En við þurfum að skoða hvernig við gerum það öðru­vísi.“

„Það er dýr­ara að flytja á milli landa til end­ur­vinnslu­að­ila og það er það sem ég þarf að skoða núna, hvernig ég geri það öðru­vísi. Þetta er ekki eitt­hvað sem er bara gert á Íslandi, Rauði kross­inn um allan heim er að safna fötum, ann­ars vegar til að gefa skjól­stæð­ingum sínum og hins vegar til sölu í fjár­öfl­un­ar­skyni. En við erum ekki end­ur­sölu­að­ili. Þess vegna þarf þetta sam­tal, um að við horfum fram á breyt­ingar í þessum geira, að eiga sér stað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fatasóun

Mest lesið undanfarið ár