Aðgerðir sem áttu að kosta 30 milljarða hafa enn sem komið er kostað tvo milljarða

Lok­una­styrkir og stuðn­ings­lán áttu að kosta yfir 30 millj­arða króna. Enn sem komið er nema útgreiðslur vegna aðgerð­anna vel undir tíu pró­sent af þeirri upp­hæð sem áætlað var að þær myndu kosta.

Aðgerðir fyrir lítil fyrirtæki voru hluti af aðgerðarpakka tvö, sem kynntur var af forsvarsmönnum ríkisstjórnarinnar 21. apríl síðastliðinn.
Aðgerðir fyrir lítil fyr­ir­tæki voru hluti af aðgerð­ar­pakka tvö, sem kynntur var af for­svars­mönnum rík­is­stjórn­ar­innar 21. apríl síð­ast­lið­inn. Mynd: Bára Huld Beck

Aðgerðir fyrir lítil fyr­ir­tæki, svo­kall­aðir lok­un­ar­styrkir og stuðn­ings­lán, áttu að fela í sér útgjöld upp á rúm­lega 30 millj­arða króna. Nú, fjórum mán­uðum eftir að aðgerð­irnar voru kynntar, er sam­an­lagður kostn­aður við þær um tveir millj­arðar króna.

Þetta má lesa út mæla­borði um stöðu aðgerða sem stjórn­völd hafa gripið til vegna COVID-19, sem birt var á vef fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins á þriðju­dag.

Þegar stjórn­völd kynntu annan aðgerða­pakka sinn vegna efna­hags­á­hrifa heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru var meðal ann­ars kynntur til leiks sér­stakur pakki fyrir lítil fyr­ir­tæki.

[adspot]Í honum voru ann­ars vegar svo­kall­aðir lok­un­ar­styrkir sem áttu að greið­ast til fyr­ir­tækja eða ein­yrkja sem þurftu að loka starf­semi sinni vegna lög­boðs stjórn­valda í tengslum við sótt­varn­ar­að­gerðir vegna útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum.

Styrkirnir voru í boði fyrir þau fyr­ir­tæki sem gátu sýnt fram á að minnsta kosti 40 pró­sent tekju­fall og að þau væru með opin­ber gjöld í skilum. Hver aðili myndi geta fengið allt að 800 þús­und krónur fyrir hvern starfs­mann en 2,4 millj­óna króna styrk að hámarki. Áætlað var að styrkirnir myndu geta náð til allt að tvö þús­und fyr­ir­tækja.

18. ágúst höfðu 170 umsóknir borist með reikn­uðum styrk upp á 196,5 millj­ónir króna. Af þeim hafa 125 umsóknir verið sam­þykktar og útgreiðslur nema 137 millj­ónum króna.

Lánin áttu að vera 28 milljarðar en eru undir tveimur

Hitt megin úrræðið í aðgerð­ar­pakka stjórn­valda fyrir lítil fyr­ir­tæki voru svokölluð stuðn­ings­lán, einnig kölluð sér­stök lán til lít­illa fyr­ir­tækja. Til að telj­ast til slíkra fyr­ir­tækja þurfti að vera með tekjur undir 500 millj­ónum króna á ári. Lánin, sem njóta 100 pró­sent rík­is­á­byrgðar, standa ein­ungis fyr­ir­tækjum sem hafa orðið fyrir að minnsta kosti 40 pró­sent tekju­falli til boða, sem er sama skil­yrði og gildir fyrir hin svoköll­uðu brú­ar­lán til stærri fyr­ir­tækja sem kynnt voru til leiks mán­uði áður.

[links]Lánin til fyr­ir­tækj­anna átti að verða hægt að sækja um með ein­földum hætti á Island.is en þau nema að hámarki sex millj­ónir krónur á hvert fyr­ir­tæki. Heild­ar­um­fang lán­anna átti að geta orðið allt að 28 millj­arðar króna í heild, að mati stjórn­valda.

Þann 18. ágúst höfðu alls 567 umsóknir um stuðn­ings­lán borist og heild­ar­fjár­hæð umsókna var 5,1 millj­arður króna. Búið var að afgreiða undir helm­ing umsókna, eða 237, og greiða út alls 1,9 millj­arða króna í stuðn­ings­lán.

Þegar aðgerð­irnar voru kynntar reikn­uðu stjórn­völd með að heild­ar­út­gjöld vegna þess­ara tveggja aðgerða gætu numið rúm­lega 30 millj­örðum króna. Enn sem komið er eru þau um tveir millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár