Sextán greinst í seinni sýnatöku – meira en Þórólfur átti von á

Hlutfall virkra smita í landamæra­skimun hefur tífald­ast á síð­ustu dögum. Sótt­varna­læknir segir að ef slakað yrði á tak­mörk­un­unum myndi hann hafa áhyggjur af þró­un­inni. „Við erum með lítið smit inn­an­lands út af þessum aðgerðum. Það er ástæðan.“

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Bára Huld Beck

„Enn erum við að sjá nokkur [inn­an­lands] smit á hverjum degi en virkum smitum í heild fer heldur fækk­andi,“ sagði Þórólfur Guðnason, sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi land­læknis og almanna­varna í dag. Enn eru flestir sem grein­ast í sótt­kví eða um 60 pró­sent að með­al­tali. Sama afbrigði veirunnar er enn að smit­ast manna á milli hér á landi og staðan er áfram sú að ekki tekst alltaf að finna aug­ljós tengsl milli smit­aðra. Frá 15. júní hafa tæp­lega 220 greinst inn­an­lands og í dag eru rúm­lega 600 manns í sótt­kví.

Fjöldi þeirra sem er að grein­ast á landa­mærum hefur hins vegar heldur auk­ist und­an­farið þrátt fyrir að ferða­mönnum hafi fækkað á sama tíma. Milli 15. júní og 19. ágúst var hlut­fall far­þega með virk smit 0,04 pró­sent. Síðan þá hefur það hækkað upp í 0,3 pró­sent. „Það hefur tífald­ast,“ sagði Þórólfur um virku smitin. Spurður hvort að hann hefði áhyggjur af þess­ari þróun sagði hann að ef lítið væri gert hefði hann vissu­lega áhyggjur. „Ef þessi þróun heldur áfram og við slökum á skimunum þá munum við fá fleiri smit hérna inn.“

Ekki sé skyn­sam­legt að slaka á tak­mörk­unum inn­an­lands og við landa­mærin sam­tímis. „Þetta er bara eins og að fara yfir stór­fljót. Við verðum að feta okkur áfram.“

Þórólfur sagði að mögu­lega væri fjölgun smit­aðra á landa­mær­unum að end­ur­spegla útbreiðslu far­ald­urs­ins erlendis eða að hingað væri að koma fólk frá öðrum svæðum en fyrr í sumar.´

[adspot]

Um 100 hafa sam­tals greinst með virk smit við landa­mærin frá því að skimun við þau hófst um miðjan júní. Þar af hafa 84 greinst í fyrri sýna­töku og sextán í þeirri seinni, þ.a. fólk sem var nei­kvætt í þeirri fyrri. Þórólfur sagði þetta hærra hlut­fall en hann hafði fyr­ir­fram búist við. Um 60 pró­sent þeirra sem greinst hafa á landa­mærum eru með lög­heim­ili á Íslandi. Af þeim sextán sem greinst hafa jákvæðir í seinni sýna­töku er um þriðj­ungur með íslenskt rík­is­fang og búsettur hér, þriðj­ungur erlendir ein­stak­lingar með tengsl hér og sama hlut­fall svo af hefð­bundnum erlendum ferða­mönnum.

[links]Þórólfur greindi frá til­lögum sínum um til­slak­anir á tak­mörk­unum inn­an­lands á fundi dags­ins, m.a. að tveggja metra reglan yrði að eins metra reglu og að fjölda­tak­mörk­unum yrði breytt úr 100 manns í 200. Von er á aug­lýs­ingu heil­brigð­is­ráð­herra um breyttar reglur fljót­lega, jafn­vel í dag.

Hann sagði einnig frá því að í und­ir­bún­ingi væri end­ur­skoðun á skimunum á landa­mærum. Frá 19. Ágúst hefur sú regla verið í gildi að allir sem koma til lands­ins þurfa að fara í tvær sýna­tökur með 4-6 daga milli­bili og vera í sótt­kví þeirra á milli. „Ég tel að menn þurfi að skoða áfram­hald­andi fyr­ir­komu­lag á landa­mærum í ljósi þeirrar reynslu sem við höfum fengið,“ sagði Þórólfur en hann mun senda heil­brigð­is­ráð­herra til­lögur sínar í næstu viku.

Veiran ekki vægari en áður

Á fund­inum benti Þórólfur á að ekk­ert hefði komið fram, hvorki hér né erlendis, sem styddi þá kenn­ingu að veiran væri væg­ari núna en í vetur. Skýr­ing­una á minni veik­indum nú megi lík­lega finna í sam­setn­ingu sjúk­linga­hóps­ins – yngra fólk er nú að smit­ast en í fyrstu bylgj­unni. Spurður um þá gagn­rýni, sem m.a. hefur komið fram í leið­urum Frétta­blaðs­ins um að aðgerðir við landa­mærin væru of harðar svar­aði Þórólfur: „Ég bendi á það að við erum með lítið smit út af þessum aðgerðum sem við höfum verið að grípa til. Það er ástæðan. Við erum að sjá aukna útbreiðslu í mörgum löndum og á mörgum svæðum er verið að grípa til harð­ari aðgerðir en áður.“ Hann sagð­ist stundum líkja þess­ari umræðu við bólu­setn­ing­ar­sjúk­dóma: „Við erum ekki að sjá neina bólu­setn­ing­ar­sjúk­dóma og hvers vegna erum við þá að bólu­setja?“

Þórólfur vill að hægt verði farið í aflétt­ingu tak­mark­ana og segir ekki skyn­sam­legt að draga úr tak­mörk­unum á landa­mærum og inn­an­lands sam­tímis. „Hvar liggur hættan? Í mínum huga er hún sú að við fáum mikið af veiru inn erlendis frá. Menn þurfa að finna jafn­vægi á milli þessa að gera of mikið og of lítið. Þartil­bær stjórn­völd verða að leggja mat á það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár