Þórólfur minnkar bilið: Einn metri ásættanlegur

Sótt­varna­læknir hefur lagt til við heil­brigð­is­ráð­herra að nálægð­ar­regl­unni verði breitt í einn metra fyrir alla. Tveggja metra reglan yrði þar með afnumin. Ástæðan er sú að rann­sóknir sýna að einn metri milli fólks minnkar líkur á smiti fimm­falt.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Þórólfur Guðnason sótt­varna­lækir hefur sent heil­brigð­is­ráð­herra minn­is­blað þar sem hann leggur til að nálægð­ar­regl­unni verði breytt úr tveimur metrum í einn fyrir alla. Hingað til hefur sú regla aðeins gilt í skólum. Þórólfur sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna og land­læknis í dag að ástæðan fyrir breyt­ing­unni væri sú að nið­ur­stöður úr rann­sóknum sýndu að einn metri minnkar líkur á smiti fimm­falt. Það sé ásætt­an­legt auk þess sem það muni liðka fyrir ákveð­inni starf­semi. Þá hefur hann einnig lagt til að fjölda­tak­mörkum verði breytt úr 100 manns í 200.

Þessu greindi Þórólfur frá á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna og land­læknis í dag.

[adspot]

Núver­andi reglur inn­an­lands gilda til 10. sept­em­ber en Þórólfur leggur til að nýjar reglur taki gildi fyrr eða 7. sept­em­ber. Á hann von á aug­lýs­ingu ráð­herra fljót­lega, jafn­vel í dag.

Í nýj­ustu til­lögum Þórólfs til ráð­herra er einnig lagt til að lík­ams­rækt­ar­stöðvar og sund­staðir geti tekið á móti 75 pró­sent af leyfi­legum fjölda gesta í stað 50 pró­sent áður að sviðs­listir verði leyfðar með 200 manna áhorf­endum og að eins metra reglan verði þar sem ann­ars staðar höfð í heiðri. Þá leggur hann til að afgreiðslu­tíma skemmti­staða og ann­arra sem eru með vín­veit­inga­leyfi verði óbreyttur eða til kl. 23.

„Við erum að hefja veg­ferð á aflétt­ingu á ýmsum tak­mörk­unum í sam­fé­lag­inu. Allir þurfa að leggja sig sér­stak­lega vel fram og við­hafa ein­stak­lings­bundnar sýk­inga­varnir. Því það er það mik­il­væg­asta sem við gerum til að koma í veg fyrir hóp­sýk­ingu hér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár