Magasin du Nord, Den gamle dame, 150 ára

Íslend­ingar ættu flestir að þekkja Magasín du Nord úr heim­sóknum sínum til Kaup­manna­hafnar og frá þeim tíma sem íslenskir athafna­menn áttu þessa sögu­frægu verslun um stutt skeið. Hún á stóraf­mæli í ár.

Árið 1868, þegar þeir Theodor Wessel og Emil Vett opn­uðu verslun í Árósum undir heit­inu Emil Vett & Co hefur þeim lík­lega ekki dottið í hug að það væri upp­hafið á rekstri einnar þekkt­ustu versl­unar á Norð­ur­löndum. Emil Vett & Co var vefn­að­ar­vöru­verslun, sem Danir köll­uðu þá hvidevarer.

Versl­unin í Árósum naut frá upp­hafi vin­sælda og 1870, tveimur árum eftir stofnun fyr­ir­tæk­is­ins, opn­uðu þeir Wessel og Vett útibú í Álaborg. Sama ár settu þeir á lagg­irnar heild­verslun á Østergade (hluti af því sem síðar fékk nafnið Strøget, Strikið). Árið 1871 var versl­unin í Árósum flutt í stærra hús­næði og sama ár flutti heild­versl­unin í Kaup­manna­höfn í hluta Hotel du Nord við Kóngsins Nýjatorg, og þar var jafn­framt opnuð smá­sölu­verslun. Versl­unin við Kóngsins Nýjatorg fékk nafnið „De for­enede Hvidevare Forretn­inger ved Th. Wessel & Co“. Við­skiptin gengu vel og vöru­úr­valið var ekki ein­skorðað við vefn­að­ar­vörur, í nýju búð­inni voru jafn­framt seld föt og hús­gögn.

Magasin du Nord

Eins og áður sagði var „ríf­andi gangur“ í við­skipt­unum og árið 1879 höfðu tví­menn­ing­arnir opnað fjölda úti­búa víða um land, og breyttu jafn­framt nafn­inu, fyr­ir­tækið og allar versl­an­irnar fengu nú nafnið „Magasin du Nord“. Eig­end­urnir sögðu að þeim þætti við hæfi að tengja nafnið hinu þekkta hót­eli í mið­borg Kaup­manna­hafnar, Hotel du Nord. Þeir leigðu jafn­framt æ stærri hlut hót­els­ins og árið 1890 höfðu þeir keypt allt húsið og jafn­framt tvö hús við hlið­ina.

Kaup­menn­irnir hugs­uðu stórt og á árunum 1893 – 95 voru gamla hót­elið og húsin við hlið­ina rifin og á lóð­inni reist stór­hýsið sem enn stendur og snýr fram­hlið­inni að Kon­ung­lega leik­hús­inu við torgið. Húsið er í frönskum ný-end­ur­reisn­ar­stíl, sama stíl og Kon­ung­lega leik­húsið sem er í næsta nágrenni. Athygli vekur að á fram­hlið versl­un­ar­húss­ins hefur frá upp­hafi staðið skrifað, gylltum stöfum, „Hotel du Nord“, það var gert í virð­ing­ar­skyni við gamla hót­elið sem á sínum tíma þótti afar glæsi­legt. Arki­tektar húss­ins voru Henri Glæsel og Albert Jensen, báðir þekktir á sínu sviði og bygg­ing­ar­meist­ari var Olaus Mynster, sem bæði var lærður arki­tekt og múr­ari, sömu­leiðis þekktur og virtur fag­maður.

Magasin du Nord um allt land

Á síð­asta ára­tug 19. ald­ar­innar og fyrstu ára­tugum þeirrar tutt­ug­ustu óx veldi Magasin du Nord hratt. Versl­anir með Magasin nafn­inu spruttu upp en flestar þeirra voru í eigu ein­stak­linga eða fyr­ir­tækja sem fengu að nota nafnið og selja sömu vörur. Árið 1892 voru 50 versl­anir með Magasin du Nord nafn­inu í Danmörku, 1906 voru þær 98 og á þriðja ára­tug síð­ustu aldar voru 170 Magasin du Nord versl­anir í land­inu, flestar litlar. 1911 var opnuð verslun í Malmö í Svíþjóð, hún bar þó ekki Magasin du Nord nafnið, hét Th. Wessel & Vett. Á árunum eftir 1950 ákvað stjórn Magasin du Nord að reka fáar, en stórar versl­anir. Í dag eru Magasin versl­an­irnar sex tals­ins. Í Kaup­manna­höfn er, auk versl­un­ar­innar við Kóngsins Nýjatorg, minni verslun í Fields á Amager, í Lyngby er stór Magasin verslun, ein í Rødovre, í Óðins­véum á Fjóni er ein verslun og sömu­leiðis í Árósum á Jótlandi, þar sem fyr­ir­tækið var stofnað. Á næst­unni verður ein Magasin verslun til við­bótar opnuð, í Álaborg. Auk þess net­verslun þar sem við­skiptin aukast jafnt og þétt. Af stofn­endum Magasin du Nord, þeim Wessel og Vett er það að segja að þeir drógu sig að mestu út úr rekstr­inum um alda­mótin 1900, Wessel lést árið 1905 og Vett sex árum síðar.

Ekki fyrsta stórverslunin

Magasin du Nord var ekki fyrsta stór­versl­unin sem Danir kynnt­ust. Í Kaup­manna­höfn voru Fonnesbech (1847 – 1970), Crome & Goldschmidt (1860 – 1971). Síðar komu Messen (1875 – 1972) Illum (1891 -) og Daells Varehus (1910 – 1999) og fleiri mætti nefna. Þessar versl­anir, að Illum und­an­tek­inni, sem er í eigu ítalsks fyr­ir­tækis, heyra sög­unni til.

Kaupin á Illum og erfiðleikaáratugir

Árið 1991 keypti Magasin erki­keppi­naut­inn Illum. Ekki voru þau kaup ferð til fjár og síð­asti ára­tugur síð­ustu aldar reynd­ist Magasin þungur í skauti. Magasin seldi 80% af Illum árið 2003 en ári síðar keypti Baugur Group versl­un­ina Magasin og eign­að­ist þá jafn­framt 20% hlut í Illum.

Rekstur Magasin var sömu­leiðis erf­iður á fyrstu árum þess­arar aldar en smám saman rétti fyr­ir­tækið úr kútnum. Saga Baugs Group verður ekki rakin hér en fyr­ir­tækið komst í þrot árið 2009 og þá keypti breska fyr­ir­tækið Deb­en­hams Magasin og hefur rekið það síðan.

Sífelld endurnýjun og breytingar

Stundum er haft á orði að stöðnun og kyrr­staða beri dauð­ann með sér. Þetta á ekki síst við um versl­anir, þar skiptir öllu máli að hafa í boði, á sann­gjörnu verði, vörur sem við­skipta­vin­irnir vilja, bjóða góða þjón­ustu, koma með nýj­ungar, stunda öfl­uga og árang­urs­ríka aug­lýs­inga- og kynn­ing­ar­starf­semi, vera „á tánum“ eins og það er kallað. Líka er mik­il­vægt að inn­rétt­ingar og fyr­ir­komu­lag breyt­ist, slíkt þarf að ger­ast í litlum skrefum en þó nógu stórum til þess að við­skipta­vin­irnir skynji að ekki ríki stöðnun og allt sé „eins og það hefur alltaf verið“. Reyna að höfða til allra ald­urs­hópa, óháð stétt og stöðu, láta við­skipta­vin­ina finna að þeir séu vel­komnir. Alla þessa þætti hefur Magasin lagt rækt við. Eitt verður þó að nefna sem ekki hefur í ára­tugi þótt ástæða til að breyta, það er firma­merkið. Núver­andi merki var tekið í notkun árið 1954 og þá var nafn versl­un­ar­innar líka stytt og hún hefur síðan verið nefnd Magasin. Í litlu Magasin sögu­safni sem starf­rækt er í sömu bygg­ingu og versl­unin við Kóngsins Nýjatorg má meðal ann­ars sjá fjöld­ann allan af tíma­ritum og vöru­listum sem Magasin hefur gefið út í áranna rás. Þar má sjá það nýjasta sem versl­unin bauð upp á, á hverjum tíma. Þessi rit bera með sér að aug­lýs­ing­unum hefur einkum verið beint að kven­þjóð­inni, sem alla tíð hefur verið stærsti kaup­enda­hóp­ur­inn og konur eru 82% þeirra sem leggja leið sína í Magasin. Af ein­stökum vöru­flokkum hefur fatn­aður alla tíð, að fyrstu árunum und­an­teknum, vegið þyngst í söl­unni en snyrti­vörur eru sömu­leiðis veiga­mik­ill þáttur. Enn fremur selur Magasin skótau, bús­á­höld, leir­tau, rúm­fatnað, raf­tæki og heim­il­is­muni margs konar.

Eins og áður var nefnt hefur verslun á net­inu auk­ist jafnt og þétt og er nú rúm­lega fjórð­ungur veltu Magasin.

Á síð­asta ári komu rúm­lega 20 millj­ónir við­skipta­vina í versl­anir Magasin. Flestir komu í Magasin í Kaup­manna­höfn, um það bil 7.5 millj­ónir og næst­flestir í Árósum, tæp­lega 4 millj­ónir. Starfs­menn eru um 3 þús­und.

„Den gamle dame“ í fullu fjöri

Síðustu ár hefur rekst­ur­inn gengið vel en á næstu árum verða umtals­verðar breyt­ingar á næsta nágrenni versl­un­ar­innar í Kaup­manna­höfn, sem kalla má flagg­skip fyr­ir­tæk­is­ins. Breyt­ing­unum er ætlað að styrkja svæðið sem versl­unar- og þjón­ustu­miðju mið­borg­ar­innar og Magasin ætlar sér bita af þeirri köku, einsog for­stjór­inn orð­aði það í við­tali. Og, eins og áður sagði verður á þessu ári opnuð ný Magasin verslun í Álaborg Ekkert bendir því til ann­ars en „Den gamle dame“ eins og Magasin er stundum kallað muni hér eftir sem hingað til soga til sín við­skipta­vini í þús­unda­tali á degi hverjum.

Að lokum má geta þess að í Kaup­manna­höfn var 150 ára afmæl­inu fagnað með úti­skemmtun á Kóngsins Nýja­torgi 14. apríl síð­ast­lið­inn en 8. maí verður sér­stök Magasin afmæl­is­há­tíð í Árósum þar sem saga fyr­ir­tæk­is­ins hófst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár