Aukning á töku óverðtryggðra lána hjá lífeyrissjóðunum

Alls lán­uðu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins sjóðs­fé­lögum sínum 18,5 pró­sent meira til íbúð­ar­kaupa á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins en þeir gerðu á fyrsta árs­fjórð­ungi í fyrra. Nú taka lands­menn hins vegar í auknu máli óverð­tryggð lán.

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins lán­uðu 18,5 pró­sent meira til sjóðs­fé­laga sinna til íbúð­ar­kaupa á fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins 2019 en þeir gerðu á sama tíma­bili í fyrra. Alls námu ný útlán, að frá­dregnum upp- og umfram­greiðslum, líf­eyr­is­sjóða til sjóðs­fé­laga sinna 25,6 millj­örðum króna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2019. Á sama tíma­bili í fyrra námu ný útlán 21,6 millj­örðum króna. Þetta kemur fram í nýjum hag­tölum Seðla­banka Íslands um stöðu líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins sem birtar voru fyrir helgi.

Um er að ræða við­snún­ing frá þeirri stöðu sem var uppi í útlánum líf­eyr­is­sjóða á fyrsta árs­fjórð­ungi í fyrra, en þá dróg­ust sam­an­lögð ný útlán saman um 1,7 millj­arð króna frá því sem þau höfðu verið á sama tíma árið 2017.

[adspot]Fjöldi nýrra útlána hefur líka auk­ist milli ára. Þau voru 1.903 á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2019 eða tæp­lega 17 pró­sent fleiri en á sama árs­fjórð­ungi í fyrra. Alls var heild­ar­fjöldi útlána líf­eyr­is­sjóða til sjóðs­fé­laga 38.131 í lok mars­mán­aðar.

Hlutfall óverðtryggðra lána eykst

Sögulega séð þá hafa Íslend­ingar fyrst og síð­ast tekið verð­tryggð hús­næð­is­lán. Sú þróun hefur haldið áfram á und­an­förnum árum þrátt fyrir að fram­boð af óverð­tryggðum lánum hafi stór­auk­ist. Verð­tryggðu lánin hafa hins vegar, mörg hver, bæði verið ódýr­ari og afborg­anir af þeim við­ráð­an­legri á und­an­förnum árum vegna þess að verð­bólga hefur hald­ist mjög lág á íslenskan mæli­kvarða og vextir lána hafa lækkað mjög mikið á fáum árum.

Verð­bólgan var undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði Seðla­banka Íslands frá því í febr­úar 2014 og fram á síð­asta haust og hefur síðan hald­ist um og yfir þrjú pró­sent. Sem stendur mælist hún 3,3 pró­sent. Lægstu verð­tryggðu hús­næð­is­lána sem bjóð­ast nú eru hjá Frjálsa líf­eyr­is­sjóðnum (2,15 pró­sent) og Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna (2,18 pró­sent). Það eru lægstu vextir sem boðið hefur verið upp á hér­lendis. Alls bjóða níu íslenskir líf­eyr­is­sjóðir upp á verð­tryggða hús­næð­is­lána­vexti sem eru undir þremur pró­sentum.

Í októ­ber 2018 voru til að mynd 77 pró­sent af heild­ar­skuldum heim­ila verð­tryggðar. Á fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins 2018 voru verð­tryggð útlán líf­eyr­is­sjóð­anna í full­komnum takti við það hlut­fall. Þ.e. 77 pró­sent nýrra útlána sjóð­anna voru verð­tryggð lán. Í ár hefur hins vegar orðið við­snún­ingur á því og á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins voru 58 pró­sent nýrra útlána verð­tryggð.

[adspot]Ástæðuna er lík­ast til að finna í því að verð­bólga hefur auk­ist síð­ustu mán­uði og að vænt­ingar voru uppi um að hún myndi aukast umtals­vert í ár ef gengið yrði að kröfu­gerð verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar í kjara­samn­inga­við­ræðum sem stóðu hátt í byrjun árs. Á end­anum var samið um afar hóf­legar launa­hækk­anir og veru­lega hefur dregið úr verð­bólgu­þrýst­ingi und­an­farið. Ný þjóð­hag­spá gerir ráð fyrir að verð­bólga verði 3,4 pró­sent að með­al­tali á þessu ári.

Hafa lækkað veðhlutfall sitt

Þrír stærstu líf­eyr­is­sjóð­irnir lands­ins: Gildi, Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna og Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR) eru umsvifa­mestir í veit­ingu hús­næð­is­lána. Þeir hafa hins vegar allir lækkað veð­hlut­fall sitt frá því sem það var hæst eftir að þeir hófu fulla sókn inn á íbúða­lána­markað að nýju haustið 2015.

Gildi líf­eyr­is­sjóður lækk­aði veð­hlut­fall sjóðs­fé­lags­lána sinna niður í 70 pró­sent um síð­ustu ára­mót. Líf­eyr­is­sjóður verszlunarmanna lækk­aði veð­hlut­fall á sjóðs­fé­lags­lánum sínum úr 75 í 70 pró­sent sum­arið 2017. LSR lækk­aði sitt láns­hlut­fall með sama hætti í fyrra.

Þegar Gildi lækk­aði sitt veð­hlut­fall í byrjun árs sagði sjóð­ur­inn að ákvörð­unin byggði meðal ann­ars á var­úð­ar­sjón­ar­miði vegna mik­illa verð­hækk­ana á fast­eigna­mark­aði á und­an­förnum árum, og hins vegar vegna auk­innar ásóknar í lán hjá Gildi. Heim­ildir Kjarn­ans herma að sú ásókn hefði auk­ist umtals­vert eftir að hinir tveir stóru líf­eyr­is­sjóð­irnir sem lána sjóðs­fé­lögum til íbúð­ar­kaupa lækk­uðu veð­hlut­fall sitt niður í 70 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár