Anonymous ræðst á fimm ráðuneytissíður vegna hvalveiða Íslendinga

Anonymous-sam­tökin hafa ráð­ist að, og náð að loka, vef­síðum for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins. Auk þess hafa þau ráð­ist á, og náð að loka, heima­síðum inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins á ensku og síð­unni govern­ment.is, enskri útgáfu af heima­síðu stjórn­ar­ráðs­ins. Allar síð­urnar liggja sem stendur niðri.

Meðlimir sam­tak­anna sögðu frá þessu á Twitter fyrr í kvöld. Árás­irnar eru gerðar til að mót­mæla hval­veiðum Íslend­inga.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Anonymous hefur gert atlögu að vef­síðum á Íslandi. Kjarninn greindi frá því 16. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn að með­limir sam­tak­anna hafi ráð­ist á fjöl­margar íslenskar vef­síður í vik­unni áður. Atlagan olli miklum á net­þjón­ustu og þjón­ustu­að­ilar til­kynntu við­skipta­vinum sínum um þær. Á meðal þeirra síðna sem með­limir tengdir Anonymous hreyktu sér af á Twitter að hafa náð að loka tíma­bundið fyrir erlendri umferð voru síða for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, Mbl.is, Símans, Menn.is, Iceland.is og Visiticeland.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár