Rússar reyna að stela rannsóknargögnum um þróun bóluefna

Vís­inda­menn við Oxford-háskóla hafa klórað sér í höfð­inu yfir þeirri stað­reynd að mikil lík­indi eru með þeirra nálgun á þróun bólu­efnis við COVID-19 og þeirri sem kollegar þeirra í Rúss­landi hafa farið. Stjórn­völd í vest­rænum ríkjum saka Rússa um þjófnað.

Kapphlaupið um þróun bóluefnis er hafið.
Kapp­hlaupið um þróun bólu­efnis er hafið. Mynd: EPA

Rúss­neskir tölvu­þrjótar eru að reyna að stela rann­sókn­ar­gögnum um þróun bólu­efna gegn COVID-19. Þessu halda stjórn­völd í Banda­ríkj­unum, Bret­landi og Kanada fram. Þau saka rúss­nesk stjórn­völd um nýtt áhlaup í njósnum gegn Vest­ur­löndum nú þegar bar­áttan við far­aldur kór­ónu­veirunnar stendur sem hæst.

Í frétt New York Times kemur fram að Þjóðar­ör­ygg­is­stofnun Banda­ríkj­anna, NSA, segir að hópur hakk­ara, sá hinn sami og braust inn í net­þjóna Demókra­ta­flokks­ins fyrir for­seta­kosn­ing­arnar árið 2016, hafi nú reynt að stela trún­að­ar­gögnum frá háskólum, fyr­ir­tækjum og heil­brigð­is­stofn­unum. Hópurinn er tengdur rúss­nesku leyni­þjón­ust­unni og er ýmist kall­aður APT29 eða Cozy Bear. Segir NSA að hakk­ar­arnir séu að reyna að nýta sér það öng­þveiti sem skap­ast eftir í far­aldri COVID-19.

New York Times hefur enn fremur eftir banda­rísku leyni­þjón­ust­unni að Rússar ætli sér að stela rann­sókn­ar­gögnum til að þróa sitt eigið bólu­efni hraðar. Til­gang­ur­inn sé ekki sá að eyði­leggja til­raunir ann­arra ríkja í þróun slíkra efna. Haft er eftir sér­fræð­ingi í tölvu­glæpum að ekki sé talið að heilsu almenn­ings sé stefnt í voða vegna þess­ara aðgerða Rússa.

Þetta er þó talið minna mikið á það sem gerð­ist í kalda stríð­inu milli rúss­neskra og banda­rískra stjórn­valda þar sem njósn­arar voru gerðir út til að stela trún­að­ar­gögnum sem gagn­ast gætu í geim­ferða­kapp­hlaup­inu sem þá stóð sem hæst.

[links]Rúss­nesku hakk­ar­arnir hafa beint spjótum sínum að breskum, kanadískum og banda­rískum stofn­unum og notað til verks­ins spilli­for­rit sem senda fals­aða tölvu­pósta til starfs­manna stofn­anna til að lokka þá til að senda lyk­il­orð og aðrar örygg­is­upp­lýs­ingar.

Banda­rísk stjórn­völd hafa und­an­farið varað við því að Kín­verjar og Íranir séu að stela rann­sókn­ar­gögnum um bólu­efni.

Rússnesk stjórn­völd hafa þegar neitað því að tengj­ast mál­inu með nokkrum hætti og segj­ast enga ábyrgð bera á því.

Emb­ætt­is­menn innan stjórn­kerfis land­anna þriggja, sem orðið hafa fyrir árás­unum, segj­ast hins vegar að mjög sterkar vís­bend­ingar séu fyrir hendi um að hakk­ara­hóp­ur­inn Cozy Bear, sem er undir stjórn rúss­nesku leyni­þjón­ust­unnar S.V.R., standi þar að baki.

„Við for­dæmum þessar fyr­ir­lit­legu árásir á þá sem eru að sinna lífs­nauð­syn­legu starfi sem miðar að því að berj­ast gegn far­aldri kór­ónu­veirunnar,“ hefur New York Times eftir Paul Chichester, fram­kvæmda­stjóra hjá bresku Tölvu­ör­ygg­is­mið­stöð­inni (National Cyber Security Center).

Frétta­stofa banda­rísku sjón­varps­stöðv­ar­innar NBC hefur eftir for­stjóra mið­stöðv­ar­innar að fyrst hafi orðið vart við árás­irnar í febr­úar. Ekki er þó talið að hökk­ur­unum hafi tek­ist að koma höndum yfir mik­il­væg gögn. Vís­inda­menn við Oxford-háskóla furða sig þó á því að mikil og óvænt lík­indi séu milli nálg­unar þeirra á þróun bólu­efnis og þeirrar sem rúss­neskir vís­inda­menn hafa tekið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár