„Við eigum langt eftir til þess að geta virkilega hrósað sigri“

Þrátt fyrir jákvæða fram­vindu COVID-19 far­ald­urs­ins hér á landi þá bendir sótt­varna­læknir á að þrátt fyrir að til­efni sé til að gleðj­ast þá sé enn langt í land.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir hefur sent Svandísi Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra minn­is­blað með til­lögum að aðgerðum varð­andi næstu skref í COVID-19 far­aldr­inum. Frá þessu greindi hann á dag­legum upp­lýs­inga­fundi í dag. Hann sagði að það væri ráð­herra að ákveða hvernig sam­komu­banni yrði aflétt. Ráð­herr­ann myndi vænt­an­lega til­kynna það í vik­unni.

Hann sagði enn fremur að gott væri að leggja mat á þennan far­aldur hér og að við gætum „full­yrt að far­ald­ur­inn er veru­lega á nið­ur­leið hér og það er lítið sam­fé­lags­legt smit í gangi. Ég vil þakka það öllum þeim sam­fé­lags­legu aðgerðum sem í gangi hafa verið og sér­stak­lega þakka sam­taka­mætti almenn­ings, fyr­ir­tækja, félaga­sam­taka og stjórn­valda“.

Það væri ótrú­legt að sjá hvernig allir hefðu tekið höndum saman og staðið sig vel. Fyrir það bæri að þakka sér­stak­lega.

Stað­­fest smit af kór­ón­u­veirunni eru orðin 1.703 hér á landi. Í gær voru þau 1.693 og hefur þeim því aðeins fjölgað um tíu síð­­asta sól­­­ar­hring­inn. Núna eru 2.711 ­manns í sótt­­­kví en í gær var fjöld­inn 2.861. Alls hafa 15.751 lokið sótt­­­kví.

Í dag eru 770 ein­stak­l­ingar með virk COVID-19 smit en í gær var fjöld­inn 804. Alls hafa 933 manns náð bata eftir að hafa smit­ast af veirunni. Búið er að taka alls 35.788 sýni hér á landi.

Á svipuðum stað og Norðmenn

Sótt­varna­læknir bar árangur Íslend­inga saman við það sem gerst hefur erlendis – en benti þó á að oft væri var­huga­vert að bera tölur saman milli landa þar sem þau væru stödd á mis­mun­andi stað í far­aldr­inum og að verið væri að safna mis­mun­andi upp­lýs­ingum.

Þórólfur bar þó tölur saman varð­andi aukn­ingu á fjölda smita á hvern íbúa. Ísland er þar í þriðja neðsta sæti – en hann sagði að lægsta talan í Evrópu væri hér á landi frá byrjun mars en fyrir neðan Íslend­inga væru Fær­ey­ingar og Lichtenstein. „Ef við skoðum líka fjölda dauðs­falla hér á landi sam­an­borið við önnur lönd – en við höfum því miður misst átta ein­stak­linga úr þessum sjúk­dómi hér á landi – þá kemur í ljós að við erum mörgum sinnum lægri heldur en flestar aðrar þjóðir og þó að víða væri leitað.“

Af Norð­ur­lönd­unum væru það ein­ungis Finnar sem væru lægri en Íslend­ingar. „Við erum á svip­uðum stað og Norðmenn. En Danir og sér­stak­lega Svíar eru miklu hærri hvað þessar tölur varðar,“ sagði hann.

Tilefni til að gleðjast

Þórólfur sagði að þetta gæfi til­efni til að gleðj­ast yfir þeim árangri sem Íslend­ingar hefðu náð en þó væri engin sér­stök ástæða til þess að berja sér á brjóst núna.

„Því enn er langt í land. Við eigum langt eftir til þess að geta virki­lega hrósað sigri. Og eins og við höfum oft talað um áður: Í hönd fer sá tími að mik­il­vægt er að aflétta hægt þeim sam­fé­lags­legu aðgerðum sem að hér eru í gangi.“ Hann benti á að litlar hóp­sýk­ingar gætu komið upp og „verðum við að vera við­búin að bregð­ast hart við þegar það ger­ist.“

Þórólfur sagði að sam­komu­tak­mörk­unum yrði að aflétta hægt, eins og áður hefur komið fram í máli hans, en hann greindi frá því á fund­inum í dag að hann hefði sent heil­brigð­is­ráð­herra minn­is­blað með til­lögum að aðgerðum og að það væri ráð­herra að ákveða með aug­lýs­ingu hvernig þetta verði útfært. Ráð­herr­ann myndi vænt­an­lega gera það í vik­unni, eins og áður segir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár