Sendiherra Rússa: „Bólusetning gegn nasisma“ á undanhaldi

Vaxandi nynas­ista­hreyf­ingar í Evrópu eru mikið áhyggju­efni. Sendi­herra Rúss­lands á Íslandi gerir þetta að umtals­efni í inn­gangs­orðum nýrrar bókar.

„Til mik­illar óham­ingju virð­ist sem þessi bólu­setn­ing gegn nas­isma sé nú farin að missa áhrifa­mátt sinn eins og sjá má með upp­risu nýnas­isma á ýmsum stöðum í Evrópu.“

Þetta segir Anton Vasiliev, sendi­herra Rúss­lands á Íslandi, í inn­gangs­orðum nýrrar bókar, Föð­ur­lands­stríðið mikla og María Mitrofanova, eftir G. Jökul Gíslason.

Í bók­inni er fjallað um Föð­ur­lands­stríðið mikla, sem hófst með inn­rás Þjóð­verja 1941, en lauk ekki fyrr en 1.418 dögum síðar, 9. maí 1945, með sigri Rússa. María Mitrofanova, sem er á tíræð­is­aldri og býr í Breið­holti, barð­ist í stríð­inu, og er saga hennar rakin í bók­inni, innan um og saman við hina blóði drifnu sögu víg­valla Föð­ur­lands­stríðs­ins.

Vasiliev segir í inn­gangs­orðum sínum að það sé mik­il­vægt, ekki síst nú á tímum, að upp­lýsa fólk um sög­una og stríðs­tím­ann. „Eftir seinni heims­styrj­öld­ina virt­ist sem Evrópa, Banda­ríkin og heim­ur­inn allur hefðu dregið lær­dóm af ófrið­inum. En til mik­illar óham­ingju virð­ist sem þessi bólu­setn­ing gegn nas­isma sé nú farin að missa áhrifa­mátt sinn eins og sjá má með upp­risu ný-nas­isma á ýmsum stöðum í Evrópu. Þar dafnar nas­ista­á­róður blygð­un­ar­laust á ný. Þar verða minn­is­merki til heið­urs her­mönnum Rauða hers­ins, sem fórn­uðu lífi sínu til að frelsa fanga útrým­ing­ar­búða og her­setnar þjóðir undan oki nas­ista, fyrir skemmd­ar­verkum. Það er ekki aðeins móðgun við millj­ónir fórn­ar­lamba stríðs­ins, heldur ógnar það grund­vall­ar­sjón­ar­miðum lýð­ræðis og mann­rétt­inda. Það er sam­eig­in­leg skylda okkar allra að sjá til þess að nýjar kyn­slóðir gleymi ekki þessu hræði­lega stríði, né heldur þeim sem björg­uðu heim­inum og hinum sem vildu drottna yfir honum með valdi. Sumir af her­mönnum okkar eru enn á lífi og geta enn deilt með okkur reynslu sinni. Saga Maríu Alex­androvnu Mitrofanovu, einu kon­unni sem var her­maður í Föð­ur­lands­stríð­inu mikla og býr á Íslandi, er því afar mik­il­væg,“ segir Vasiliev.

Hörm­ung­arnar sem fylgdu stríð­inu á aust­ur­vígs­stöð­unum voru gríð­ar­legar. Samtals lét­ust 26 millj­ónir manna í Föð­ur­lands­stríð­inu þegar yfir lauk.

Vasiliev segir í inn­gangs­orðum sínum að enn í dag veiti hetju­dáð og óeig­in­girni her­manna fólki styr og hvatn­ingu, en ástæða sé til þess að hafa áhyggjur af því að áhrifin séu að dofna eftir því sem lengra líður frá atburð­unum. „Nas­ist­arnir töldu sig þurfa sex vikur til að leggja Sov­ét­ríkin undir sig. En hvorki vikur, mán­uðir eða fjögur löng ár dugðu þeim. Það var á aust­ur­víg­stöðv­unum sem óvin­ur­inn missti 73% af her­styrk sínum. Stríðið kost­aði landið okkar 26 millj­ónir manns­lífa. Um 13,5% af íbúum lands­ins fyrir stríð féll. Inn­rás­ar­her­inn lagði einnig í rúst 1.710 borgir, um 70 þús­und þorp og bæi og eyði­lagði ómet­an­leg menn­ing­ar­verð­mæti. Föð­ur­lands­stríðið mikla var hápunktur hug­rekkis, hetju­dáða og óeig­in­girni. Enn í dag veitir það okkur styrk og hvatn­ingu þegar við hugsum til þess­ara tíma. Stríðið mót­aði mann­gerð heillar kyn­slóðar og sig­ur­inn hvatti þetta fólk til frek­ari dáða. Við munum alltaf vera í skuld við þá her­menn sem mynd­uðu banda­lag gegn Hitler og þá sem sigr­uð­ust á fas­ism­anum. Saga skipa­lest­anna sem hættu sér Norður-Íshaf­s­leið­ina er hluti af sögu sam­skipta Rúss­lands og Íslands. Ísland varð ómet­an­leg útstöð. Í Hval­firði, við Reykja­vík og í Seyð­is­firði söfn­uð­ust saman enskar og banda­rískar skipa­lestir sem sigldu til Rúss­lands í stríð­inu. Rússar minn­ast hug­rekkis þeirra sjó­manna sem sigldu í þessum skipa­lestum og þeirra sem fórn­uðu lífi sínu á alt­ari sig­urs­ins,“ segir í Vasiliev í inn­gangs­orð­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár