Brýnt fyrir ráðamönnum að tjá sig ekki um tekjur vegna haftalosunar

Brýnt hefur verið fyrir ráða­mönnum að tjá sig ekk­ert opin­ber­lega um þær tekjur sem frum­vörp um losun hafta geti skilað. Slíkt tal er talið geta styrkt mál­flutn­ing kröfu­hafa fyrir dómi, en fast­lega er búist við að málið endi þar. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Til að hægt verði að ganga frá nauða­samn­ingum föllnu bank­anna Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans er ljóst að slitabú þeirra þurfa öll að gefa eftir miklar eignir í krónum. Ástæðan er sú að Ísland getur ekki skipt krón­unum þeirra í gjald­eyri án þess að ógna greiðslu­jöfn­uði sem myndi hafa þær afleið­ingar að íslenska krónan myndi falla mikið. Takist ekki að ljúka nauða­samn­ingum slita­bú­anna á vik­unum eftir að frum­vörpin verða lögð fram, en þau voru kynnt fyrir rík­is­stjórn í gær, stendur til að leggja svo­kall­aðan stöð­ug­leika­skatt á slita­búin. Í DV í gær­morgun kom fram að hann ætti að vera um 40 pró­sent. Skatt­ur­inn er nú orðin skil­yrtur. Þ.e. hann leggst ein­ungis á ef ekki tekst að semja. Búist er við að upp­gjör slita­bú­anna með þessum hætti skili allt að 500 millj­örðum króna.

Þótt að ráða­menn eigi ekki að tjá sig um tekjur sem gætu skap­ast vegna frum­varpa um losun hafta þá hafa þeir samt sem áður gert það opin­ber­lega. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra sagði í yfir­lits­ræðu sinni á flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins í apríl að „sér­stakur stöð­ug­leika­skattur mun þá skila hund­ruðum millj­arða króna og mun ásamt öðrum aðgerðum gera stjórn­völdum kleift að losa um höft án þess að efna­hags­legum stöð­ug­leika verði ógnað.“ Sig­mundur Davíð árétt­aði síðan í við­tali við Morg­un­blaðið þremur dögum síðar að fjár­magn sem kæmi út úr áætl­un­inni um losun, sem felur meðal ann­ars í sér álagn­ingu svo­kall­aðs stöðu­leika­skatts, yrði ekki hugsað til þess að ráð­stafa í fram­kvæmdir eða verða hluti útgjalda rík­is­sjóðs.

Bjarni vill lækka skuldir ríkissjóðs


Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir í Morg­un­blað­inu í dag að í hans huga sé eina rétta ráð­stöf­unin á því fé sem verður til við upp­gjör slita­bú­anna að lækka skuldir rík­is­sjóðs.

Það er hægt að rétt­læta slíka ráð­stöfun án þess að slita­búin eða kröfu­hafar gangi fram og seg­ist hafa orðið fyrir óbil­gjarnri eigna­upp­töku sem sé í and­stöðu við stjórn­ar­skrá, enda varð þorri skulda rík­is­ins vegna efna­hags­hruns­ins. Það væri því verið að hreinsa upp skuldir vegna þess með upp­gjör á einu af stærstu vanda­mál­unum sem hrunið skóp.

Ekki eru allir á því að nið­ur­greiðsla skulda væri skyn­sam­leg ráð­stöfun. Í nið­ur­stöðu skýrsl­unnar Drög að upp­gjöri, sem hag­fræð­ing­arnar Ásgeir Jónsson og Hersir Sig­ur­geirs­son unnu fyrir slita­stjórn Glitnis, og var birt í maí, sagði að Ísland væri að glíma við svo­kall­aðan færslu­vanda. Það hug­tak lýsi vanda sem felst í að flytja mikil verð­mæti frá einu mynt­svæði, því íslenska, til ann­ars, t.d. evru­svæð­is­ins, án þess að geng­is­skrán­ing fari á skjön við eðli­legt jafn­vægi í utan­rík­is­við­skiptum. Með öðrum orðum þá þýðir það að hægt verði að borga út kröfur í íslenskum krónum til erlendra aðila án þess að gengi krónu sökkvi eins og steinn.

Í skýrsl­unni segja Ásgeir og Hersir að grunn­á­stæða vand­ans sé fjór­földun pen­inga­magns á árunum 2003-2008. „Pen­inga­magn í umferð er að lang­mestu leyti inn­lán í bönkum og staðan er því sú að fjár­mála­kerfið er fullt af lausu fé sem vill leita útgöngu í gegnum gjald­eyr­is­mark­að­inn. Þannig skap­ast hætta á veru­legu geng­is­falli krón­unnar við losun fjár­magns­hafta sem hefði nei­kvæð áhrif á lífs­kjör í land­inu.“

Þegar íslenskir eigna­mark­aðir hættu að skila undur-arð­semi og bólan sprakk hafi hinn bráði færslu­vandi skap­ast þar sem stór hluti af hinni miklu seðla­prentun sem átti sér stað fyrir hrun sé nú kom­inn í eigu erlendra fjár­festa sem vilji skipta útgáf­unni í erlendan gjald­eyri og flytja hana af landi brott. „Þetta á bæði við um hina svoköll­uðu snjó­hengju, sem eru krónur fyrrum vaxta­mun­ar­fjár­festa, en einnig inn­lendar eignir slita­búa föllnu bank­anna. Það er eðli slita­búa að breyta eignum í laust fé til útgreiðslu. Frá hruni hafa búin eign­ast íslenskt lausafé sem liggur nú sem umfram eigið fé og inn­stæður í nýju bönk­unum.“

Skýrslu­höf­undar segja að allar lausnir á færslu­vand­anum hljóti að byggja á því að pen­inga­magn sé tekið úr umferð eða því umbreytt úr inn­lánum í lang­tíma­fjár­mögnun fyrir banka­kerfið. „Ella mun færslu­vand­inn ekki leys­ast þrátt fyrir að slita­búin hverfi úr sög­unni. Og jafn­vel þótt þessu umfram pen­inga­magni sé varnað að flæða úr landi með fjár­magns­höftum munu áhrifin þess í stað koma fram inn­an­lands með bæði verð­bólgu og hækkun eigna­verðs.“

Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri hefur einnig talað um krón­urnar sem eru í eigu útlend­inga sem mengun og því sé rétt­læt­an­legt að leggja á meng­un­ar­skatt til að eyða þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár