Seðlabankastjóri veit hvað stöðugleikaskattur er og líkir honum við mengunarskatt

Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri seg­ist vita hvað stöð­ug­leika­skattur sé og líkir skatt­inum, þegar að honum komi, við meng­un­ar­skatt. Krónu­stöður í eigu erlendra aðila sem séu fastar á efna­hags­reikn­ingi þjóð­ar­bús­ins megi líkja við mengun sem hafi áhrif á þriðja aðila án þess að hann hafi nokkuð til saka unnið. Því sé rétt­læt­an­legt að beita skatt­lagn­ingu til að verja þann þriðja aðila. Þetta kom fram í máli Más á opnum fundi í efna­hags- og við­skipta­nefnd sem fram fór í morgun. Már var gestur fund­ar­ins ásamt öðrum full­trúum úr pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands.

Hægt er að horfa á fund­inn hér:

Sigmundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra til­kynnti það í yfir­lits­ræðu sinni á flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins á föstu­dag að hrint yrði í fram­kvæmd áætlum um losun hafta áður en yfir­stand­andi þing lýkur störfum. Samkvæmt áætl­un­inni muni sér­stakur stöð­ug­leika­skattur skila hund­ruðum millj­arða króna sam­hliða þeim aðgerðum. Fyrir föstu­dag­inn 10. apríl hafði hug­takið stöð­ug­leika­skattur aldrei verið nefnt í íslenskum fjöl­miðlum eða opin­berum gögnum.

"Þá mætti líta á stöðugleikaskatt, þegar hann kemur til"...


Guð­mundur Stein­gríms­son, for­maður Bjartrar fram­tíðar, spurði Má hvort hann vissi hvað stöð­ug­leika­skattur væri og hvort hann væri fýsi­legur kostur við losun hafta.

Már svar­aði: „Já við vitum það. Það er ekki mitt á þessum punkti að útskýra það í ein­hverjum smá­at­riðum, en það hefur alla tíð legið fyrir að sá mögu­leiki er fyrir hendi að beita skatta­tæk­inu til þess að eiga við hluta af þessu vanda­máli[vegna eigna slita­búa föllnu bank­anna]. Það má eig­in­lega líkja, að ein­hverju leyti þessum krónu­stöðum sem eru hér fastar, þetta er eins og mengun í okkar efna­hags­reikn­ingi, efna­hags­reikn­ingi þjóð­ar­bús­ins. Þá mætti líta á stöð­ug­leika­skatt, þegar hann kemur til, sem ein­hvers­konar meng­un­ar­skatt.“

Már útskýrði þessi orð sín síðan þannig að mengun fylgdi svokölluð úthrif. Ef krónu­eignum kröfu­hafa föllnu bank­anna yrði sleppt lausum og þær myndu ryðj­ast í gegnum íslenskan gjald­eyr­is­markað þá yrðu feyki­leg áhrif á aðila sem hefðu ekk­ert með málið að gera. „Það er alltaf rétt­læt­ing inn­gripa að hálfu ríkis í ein­hverju formi[..]það er það sem er til skoð­unar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár