Alma: Veiran er sjálfri sér samkvæm

„Þessi veira er sjálfri sér sam­kvæm; hún rís upp þegar slakað er á og það kæmi ekki á óvart þótt við yrðum í því að herða og slaka þar til bólu­efni er fram komið,“ segir Alma Möller land­læknir.

Alma Möller, landlæknir.
Alma Möller, land­læknir. Mynd: Lögreglan

Alma Möller land­læknir minnti á það á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag að snemm­grein­ing hefði verið einn af horn­steinum okkar við­bragða í far­aldr­inum. Því þyrftu allir að vera sér­stak­lega á varð­bergi nú – hefði fólk ein­kenni og minnsta grun um smit ætti það þegar í stað að láta taka sýni.

Alma minnti einnig á mik­il­vægi þess að verja við­kvæma hópa í sam­fé­lag­inu; fólk með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma og aldr­aða. Sam­ráðs­hópur hjúkr­un­ar­heim­ila kom saman til fundar í dag og fór yfir stöð­una. Leið­bein­ingar verða upp­færðar og birtar eftir helgi, sagði hún. „Það sem var ákveðið var að reyna eins og hægt er að starfs­menn sem koma erlendis frá komi ekki til vinnu fyrr en að lok­inni fjórtán daga sótt­kví.“

Sagði hún að nú ætti aðeins einn aðstand­andi að heim­sækja hvern íbúa á hjúkr­un­ar­heim­ili og að deildir innan heim­il­anna ættu að ein­angra sig hver frá annarri eins og best verði á kosið og að starfs­menn ættu ekki að fara á milli deilda nema að brýna nauð­syn bæri til.

[adspot]

Þar sem stað­bundin smit eru í sam­fé­lag­inu muni hjúkr­un­ar­heim­ili hins vegar ganga lengra með frek­ari heim­sókn­ar­tak­mark­anir.

[links]Alma fór yfir leið­bein­ingar um grímunotkun og sagði þær aldrei koma í stað ann­arra sýk­inga­varna, s.s. hand­hreinsun og þrif á snerti­flötum. Þær ætti að nota í lok­uðum rýmum þar sem ekki væri hægt að við­hafa 2 metra regl­una. „Það er mjög mik­il­vægt að fólk gæti hrein­lætis þegar það er að umgang­ast grím­urnar. Það þarf að þvo eða spritta hendur fyrir og eftir að gríman er sett upp. Það er æski­leg­ast að nota einnota grímur og það á að skipta ef þær verða rakar eða búnar að vera lengur í notkun en fjóra tíma. Það er hægt að nota margnota­grímur úr taui en þær þarf að þvo dag­lega.“

Land­læknir ítrek­aði að ekki er mælt með almennri grímunotkun á almanna­færi.

„Að lokum ætla ég að þakka almenn­ingi sem hefur brugð­ist vel við og af æðru­leysi þó að vissu­lega hitti þessar aðgerðir sem kynntar voru í gær mis­jafn­lega fyrir. Mér finnst fólk almennt sýna mik­inn skiln­ing og ég veit að það mun eng­inn láta sitt eftir liggja enda mikið í húfi. Skyn­semin ræður sagði við­mæl­andi á förnum vegi í sjón­varps­fréttum. Við þurfum öll að sýna yfir­vegun, við þurfum að tala af var­færni og skyn­semi, notum ekki stærri orð en þörf er á og völdum ekki öðrum kvíða.“

Sagði hún ein­hverjum finn­ast of lítið gert en öðrum of mikið en að sótt­varna­læknir reyni að fara bil beggja. „Það hefur alltaf verið helsta mark­miðið að grípa ekki til harð­ari ráð­staf­ana en þörf er á.

Þessi veira er sjálfri sér sam­kvæm; hún rís upp þegar slakað er á og það kæmi ekki á óvart þótt við yrðum í því að herða og slaka þar til bólu­efni er fram komið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár