Sigmundur vill setja bráðabirgðalög í vikunni fyrir kosningar

Sig­mund­ur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, vill að rík­is­stjórnin setji bráða­birga­lög strax í þess­ari viku til að koma í veg fyrir frek­ari tafir á vinnu við að tengja orku frá Þeista­reykjum við Kröflu við iðn­að­ar­svæðið á Bakka. Í dag eru fimm dagar í kosn­ingar. Þetta kemur fram í aðsendri grein eftir Sigmund Davíð í Morg­un­blað­inu í dag.

Þar ræðir hann um þá stór­sókn í byggð­ar­málum sem ráð­ist hefði verið í ef kjör­tíma­bilið hefði ekki verið stytt og fjár­lög fyrir árið 2017 lögð fram af rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks. Sig­mundur Davíð segir að stjórn­mála­menn verði að hafa þor til að beita sér fyrir því að rík­is­valdið liðki fyrir upp­bygg­ingu á sviði iðn­aðar utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. „Ný­leg dæmi sýna að ekki aðeins hef­ur kerfið til­hneig­ingu til að þvæl­ast fyr­ir því að slík verk­efni fari af stað, það get­ur jafn­vel gripið inn í til að stöðva stór og mik­il­væg verk­efni sem eru þegar far­in af stað. Rík­is­stjórn­in þarf strax í þess­ari viku að setja bráða­birgða­lög svo hægt sé að halda áfram vinnu við að tengja Þeista­reyki við Kröflu og upp­bygg­ing­una á Bakka. Ella geta get­ur því mik­il­væga verk­efni verið stefnt í óvissu mán­uðum sam­an og það jafn­vel sett í upp­nám fyr­ir vikið.“

Úrskurð­ar­nefnd umhverf­is- og auð­linda­mála stöðv­aði fram­kvæmdir vegna lagn­ingu á raf­línu frá Þeista­reykjum og Kröflu­svæð­inu að iðn­að­ar­svæð­inu á Bakka í ágúst. Ástæðan var kæra Land­verndar vegna máls­ins. Nið­ur­staða nefnd­ar­innar á að liggja fyrir um miðjan októ­ber.

Það þótti hins vegar of langur tími til að bíða eftir slíkri nið­ur­stöðu og því ákvað rík­is­stjórnin að leggja fram frum­varp um að kæru­ferlið yrði stöðvað og fram­kvæmdum áfram­hald­ið. Áður en frum­varpið fékk afgreiðslu kom nið­ur­staða nefnd­ar­innar fram og því varð sam­þykkt þess aldrei að veru­leika.

Í honum felldi úrskurð­ar­nefndin úr gildi fram­kvæmda­leyfi sem Skútu­staða­hreppur hafði veitt Lands­neti vegna Kröflu­línu 4.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár