Þriðji hver Dani býr einn

Í nýjum tölum kemur fram að þriðji hver Dani býr einn. Þessi tala hefur farið síhækk­andi á und­an­förnum árum. Fleiri karlar búa einir en konur, flestir ein­hleypir eru í höf­uð­borg­inni og hlut­fallið er hæst hjá fólki á aldr­inum 30-49 ára.

Þriðji hver Dani, 18 ára og eldri, býr einn. Rúmlega ein og hálf milljón. Ein­bú­arnir hafa aldrei verið fleiri síðan slíkar skrán­ingar hófust fyrir 30 árum. 100 þús­und Danir segj­ast vera ein­mana.

„Maðurinn einn er ei nema hálfur, með öðrum er hann meiri en hann sjálfur“ orti Einar Bene­dikts­son, „maður er manns gaman“ segir í Háva­málum og „huggun er manni mönnum að“ segir í öðrum Pass­íu­sálmi séra Hall­gríms Pét­urs­sonar. Þessar fleygu setn­ingar og ótal margar aðrar lýsa því hve mik­il­vægur félags­skapur ann­arra er sér­hverjum lif­andi manni. Margir taka sam­skiptum og félags­skap sem sjálf­sögðum hlut en því fer þó víðs­fjarri að sam­neyti við aðra sé sjálf­gefið og komi af sjálfu sér.

Hér áður fyrr voru heim­il­is­hættir með öðrum hætti en nú. Algengt var að þrjár, jafn­vel fjórar, kyn­slóðir byggju saman. Það gilti um þétt­býli en þó enn frekar um sveit­irnar. Í okkar heims­hluta heyra slík heim­ili nú nán­ast til und­an­tekn­inga. Á kyn­slóða­sam­býl­unum var hug­takið ”ein­mana­leiki” tæp­ast til. Fyrir örfáum ára­tugum var óal­gengt að fólk byggi eitt út af fyrir sig. Þannig er það ekki lengur.

Þriðji hver Dani eldri en 18 ára býr einn

Í nýju yfir­liti dönsku töl­fræði­stofn­un­ar­innar kemur fram að um þessar mundir býr þriðji hver Dani einn. Konur sem búa einar eru 760 þús­und og karl­arnir 852 þús­und. Und­an­farin ár hefur þessi tala, hjá báðum kynjum farið síhækk­andi en skrán­ing af þessu tagi í Danmörku hófst fyrir 30 árum. Með­al­aldur ein­hleypra kvenna er 54 ár en hjá körlum 46 ár.

[links]

Skýr­ing­una á þessum mun telur töl­fræði­stofn­unin að finna megi í því að konur lifa lengur. Rétt er að taka fram að það að vera ein­hleypur, sam­kvæmt þess­ari taln­ingu, þýðir ekki að við­kom­andi geti ekki átt kær­ustu eða kærasta, þarna er ein­göngu verið að tala um búset­una og hjú­skap­ar­stöðu.

Flestir einbúar í Kaupmannahöfn

Töl­fræði­stofn­unin skoð­aði sér­stak­lega ein­hleypa á aldr­inum 30 – 49 ára. Í ljós kom, sem stofn­unin sagði að kæmi ekki á óvart, að flesta ein­bú­ana er að finna í stærri bæjum lands­ins.

Hæst er hlut­fallið í Kaup­manna­höfn þar sem 43 pró­sent fólks í þessum ald­urs­hópi býr eitt. Lægst er hlut­fallið í sveit­ar­fé­lag­inu Allerød á Norður- Sjálandi, tæp­lega 20 pró­sent.

[adspot]

Hverjir eru einbúarnir?

Danska töl­fræði­stofn­unin svarar ekki þess­ari spurn­ingu. En það hafa aðrir reynt að gera. Þjóð­fé­lags­fræð­ing­ur­inn Christine Swane sagði í við­tali við Kristelig Dagblad að ein­bú­arnir væru mjög bland­aður hópur. Þar eru frá­skildir menn og konur (40 pró­sent Dana skilja), pip­ar­sveinn­inn, ekkjan og ekk­ill­inn, ógiftar konur, þeir sem vilja búa einir og þeir sem af ein­hverjum ástæðum hafa ekk­ert val.

Af hverju einbúi?

Þessari spurn­ingu hafa þjóð­fé­lags­rýn­arnir reynt að svara. Áður­nefnd Christine Swane nefnir nokkrar ástæður, sem tengj­ast inn­byrðis. Eins og tölur Dönsku töl­fræði­stofn­un­ar­innar sýna eru ein­bú­arnir flestir í borgum, því stærri borg þeim mun fleiri ein­búar. Christine Swane nefnir hátt íbúða­verð sem eina skýr­ingu. Ein­stak­lingur, með með­al­laun, á fullt í fangi með að standa straum af íbúð­ar­kostn­aði, hvort heldur er leigu­hús­næði eða eignar­í­búð. Ein­stak­lingur sem hefur kom­ist yfir litla íbúð telur sig hafa himin höndum tekið. Ef þessi sami ein­stak­lingur kynn­ist svo öðrum sem svipað er ástatt um tímir hvor­ugur að sleppa sinni íbúð. Aldrei að vita hvort sam­bandið end­ist og betra að halda bara sinni íbúð. Ef barn kemur til sög­unnar verður að skoða málið uppá nýtt.

Það er þó ekki gefið að barn komi til sög­unnar, fæð­ingum í Danmörku fækkar sífellt og þeim fjölgar sem velja til­veru án barns. Þeir sem á annað borð velja að eign­ast barn láta æ oftar eitt barn duga. Það barn verður kóngur í ríki sínu og á oft á tíðum erfitt með að deila með öðrum. Það eru ekki bara LEGO kub­b­arnir og Playmo sem barnið vill hafa fyrir sig, til­finn­ingin fylgir ein­stak­lingnum iðu­lega ævina á enda. „mót­andi upp­eld­is­á­hrif“ kallar Christine Swane þetta.

Mörgum vex líka í augum ýmis­legt sem fylgir því að búa með öðrum, sam­býl­ingnum líkar kannski ekki að föt­unum sé fleygt á gólfið þegar farið er að hátta og kló­sett­inu sé ekki lokað að notkun lok­inni og fleira og fleira. Smá­at­riði sem flokk­ast undir umgengn­is­venjur.

100 þúsund Danir segjast einmana

„Maður er manns gaman“ segir í Háva­málum. Þau láta lítið yfir sér þessi fjögur orð en segja mikið. Samband og sam­skipti við aðra er einn af grund­vall­ar­þáttum í lífi hvers ein­stak­lings. Ein­mana­leiki var lengstum hálf­gert „tabú“ sem ekki var talað um, það hefur breyst. En það er ekki nóg að tala megi um hlut­ina, það sést best þegar tölur eru skoð­aðar. Dönsk sam­tök um vel­ferð aldr­aðra geng­ust nýverið fyrir viða­mik­illi könnun þar sem reynt var að meta fjölda þeirra Dana sem finna fyrir ein­man­a­kennd. Útkoman var sú að 100 þús­und Danir séu haldnir ein­man­a­kennd.

Ein­man­a­kenndin ein­skorð­ast ekki við einn ald­urs­hóp. Hún leitar á gam­alt fólk, börn og ung­linga, fólk á öllum aldri. Það kom fram í skýrslu þeirra sem könn­un­ina unnu að 117 þús­und Danir á aldr­inum 30 – 50 ára sögð­ust mjög sjaldan eða aldrei hitta neina vini. Þetta kom skýrslu­höf­undum á óvart.

81 þús­und sögð­ust oft vera einir þótt þá lang­aði til að vera í félags­skap ann­arra og 62 þús­und hafa engan til að ræða við um vanda­mál til­ver­unnar. Í skýrslu áður­nefndra sam­taka um ein­mana­leik­ann var nefnt að all­margir á fimm­tugs­aldri nefndu for­eld­rana þegar spurt var um þá sem þeir væru í nán­ustu sam­bandi við. „Það er ekki gott fyrir ein­stak­ling á fimm­tugs­aldri að vera ekki í nánum tengslum við aðra en aldr­aða for­eldra. Þeir falla frá og hvað þá?“ spyrja skýrslu­höf­undar.

Hitta mann og annan

Kristeligt Dagblad, sem hefur að und­an­förnu fjallað tals­vert um ein­semd og ein­mana­leika, heim­sótti all­marga staði þar sem fólk kemur saman. Spila­klúbb, bóka­klúbb, bingóklúbb, skák­klúbb, leik­húss­ferða­klúbb og fleiri. Blaða­menn­irnir fóru líka á staði þar sem karlar hitt­ast, fá sér kaffi og spjalla. Alls staðar var við­kvæðið hið sama, til­gang­ur­inn væri fyrst og fremst að hitta mann og annan. Þetta gilti bæði um þá sem áttu maka og hina.

Eru tengsl á milli einmanaleika og þess að búa einn?

„Ekki endi­lega“ segir Christine Swane þjóð­fé­lags­fræð­ingur. Margir sem búa einir eru mjög virkir í alls kyns félags­lífi og svala sinni félags­legu þörf með þeim hætti. Aðrir fá þeirri þörf svalað á vinnu­staðnum. Líkurnar á því að finna til ein­mana­leika eru vissu­lega meiri hjá þeim sem búa einir en hinum.

Blaða­menn Kristelig Dagblad luku greina­flokki sínum á þeim orðum að vissu­lega hefði það komið þeim á óvart hve ein­mana­leiki væri algengur í dönsku sam­fé­lagi. Það væri hins­vegar jákvætt að ekki væri lengur bannað að tala um þessa hluti.

Að lokum má geta þess að sam­kvæmt árlegri nýbirtri skýrslu sem unnin var á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna eru Danir í öðru sæti yfir ham­ingju­söm­ustu þjóðir heims. Voru í efsta sæti þrjú ár þar á undan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár