Köttur um kött frá ketti til kattar

Hvað er svona merki­legt við kisur? Borgþór Arn­gríms­son kann­aði hætti katta.

Þessi kisi er eitthvað hræddur; er eflaust að horfa á bíómynd sem er bönnuð innan 12.
Þessi kisi er eitt­hvað hræddur; er eflaust að horfa á bíó­mynd sem er bönnuð innan 12. Mynd: Pexels

Brandur, Snúlla, Högni, Moli, Snælda, Rósa, Elvis, Simbi, Grámann, Stalín, Perla, Depla, Skotta, Kleópatra, Maó, Rómeó, Hamlet, Emilía, Ófelía, Nóra, Megas, Dimmalimm, Pjúska, Snúlli, Keli, Bjartur, Þor­steinn, Grámann, að ógleymdum Njáli (aðstoðar hjá póst­inum Páli).

[links]Þetta eru aðeins örfá þeirra nafna sem millj­ónir katta­eig­enda um allan heim hafa gefið fer­fætta heim­il­is­vin­inum, honum kisa eða henni kisu. Fullyrða má að hvert ein­asta manns­barn í ver­öld víðri þekki þetta dýr, kött­inn, sem kannski er ekki und­ar­legt því kettir eru lang algeng­asta gælu­dýrið á jarð­ar­kringl­unni. Margfalt fleiri en hundar og páfa­gaukar.

Lengi vel voru elstu heim­ildir um til­vist katta frá Egypta­landi en fyrir nokkru síðan fund­ust á Kýpur heim­ildir sem eru mun eldri en þær egyp­sku, eða frá um 7500 f.Kr. Talið er að kettir hafi komið til Íslands á land­náms­öld.

Enginn veit með vissu hve margir kettir eru til í henni ver­öld en talið að þeir séu um það bil 700 millj­ónir, þar af 30 til 40 þús­und á Íslandi. Stór hluti þessa mikla fjölda er það sem kalla mætti heim­il­is­k­etti en villikatta­hóp­ur­inn er líka mjög stór.

[adspot]

Af hverju vill fólk eiga kött?

Fyrir því eru margar ástæður. Í nýlegri könnun í dönsku blaði (í Danmörku eru vel á aðra milljón katta) voru svör katta­eig­enda af ýmsum toga. Sumir sögð­ust vera aldir upp við að hafa kött á heim­il­inu og katt­ar­laust líf væri óhugs­andi, aðrir sögðu kött­inn skemmti­legan og vand­ræða­lít­inn.

Margir, sem sögð­ust búa einir, nefndu félags­skap­inn, það væri hægt að tala við kött­inn sem iðu­lega horfi skiln­ings­ríkum augum á eig­and­ann og segði ekki frá því sem honum væri trúað fyrir. „Nágranna sem heyrir mann tala við kött­inn þykir það full­kom­lega eðli­legt en væri maður að tala við sjálfan sig þætti maður skrýt­inn,“ sagði einn katt­ar­eig­andi.

„Mýsnar kom­ast ekki upp með neitt þar sem köttur er í hús­inu,“ sögðu nokkrir. „Það er róandi að sitja með kött­inn og strjúka honum, heyra malið og sjá hvernig hann lygnir aftur aug­unum,“ var algengt svar. Og danskir katta­eig­endur eru ekki einir um þessa skoðun.

Sér­fræð­ingar við háskól­ann í Minnesota í Banda­ríkj­unum hafa árum saman rann­sakað hvort það að eiga og umgang­ast kött hafi jákvæð áhrif á hjarta­sjúk­linga. Og nið­ur­stöður þeirra hafa leitt í ljós að svo sé.

[box]

Kattaorð

Mörg orð eru til í íslensku sem tengj­ast köttum. Talað er um að hinn eða þessi sé katt­lið­ugur, eða jafn­vel köttur lið­ugur. Sumir eru katt­þrifnir, naumt skammtað er ekki upp í nös á ketti, það sem mis­tekst fer í hund og kött. Það að vera eins og grár köttur (ein­hvers staðar) er iðu­lega notað, sama gildir um að vera katt­þrif­inn. Að „fara eins og köttur í kringum heitan graut“ skýrir sig sjálft, það gerir líka „ leikur katt­ar­ins að músinni“ og „ köttur í bóli bjarnar“.


Allt teng­ist þetta, og ýmis fleiri orða­til­tæki, hegðun og hæfi­leikum katt­ar­ins. Enginn vill „fara í jóla­kött­inn“. Eitt orð sem tals­vert er notað er all sér­stakt í þessu katta­sam­hengi. Það er þegar talað er um katt­ar­þvott; „ótta­legur katt­ar­þvottur“. Það orð hefur nei­kvæða merk­ingu því engir aðrir, hvorki dýr né menn eyða jafn löngum tíma á degi hverjum í að snyrta sig.

End­ur­skins­merki á reið­hjólum og bílum eru iðu­lega kölluð katt­ar­augu, sökum þess að þau end­ur­varpa ljós­inu, eins og augu katt­ar­ins. Lengi hefur verið til súkkulaði sem nefnt er katta­tungur, nafnið vænt­an­lega dregið af lög­un­inni. Kettir myndu aldrei líta við slíku, því þeir eru ekki fyrir sæt­indi.

Eru kettir gáfaðir?

Svarið við þess­ari spurn­ingu fer nokkuð eftir því við hvað er miðað, og kannski hver svarar. Mörgum katta­eig­endum þykir sinn köttur gáf­aður, oft­ast gáf­aðri en aðrir kettir. Eins og flest dýr býr kött­ur­inn yfir mörgum hæfi­leikum. Þeir eru ann­ars eðlis en hjá mann­inum þótt vís­inda­menn segi heila katt­ar­ins ekki ólíkan manns­heil­anum.

Kettir geta lært marga hluti, oft­ast praktíska en eitt er það sem þeir neita algjör­lega að taka mark á, sama hvernig eig­and­inn skamm­ast og brýnir raustina. Það er að leggja af veiði­skap. Þeir eru alltaf á útkikki. Ef allt gengur upp koma þeir stoltir með bráð­ina, t.d. mús eða fugl, og leggja fyrir fætur eig­and­ans og skilja ekk­ert í upp­námi eig­and­ans sem ekki fagnar þess­ari björg í bú.

Kettir eru tæki­fær­is­sinnar, einkum þegar kemur að nær­ing­ar­hlið­inni. Margir katta­eig­endur þekkja það að kött­ur­inn er kannski kom­inn í fæði hjá nágrann­anum og ástæðan auð­vitað sú að þar er betra í boði en í eld­hús­inu heima.

Fræg er sagan af Humphrey, ketti breska for­sæt­is­ráð­herr­ans. Humphrey, sem sett­ist að í bústað for­sæt­is­ráð­herr­ans árið 1989, var orð­inn alltof þungur og auk þess nýrna­veikur og var því settur á sér­stakt heilsu­fæði. Humphrey fýldi grön við þessum nýja lífs­stíl sem eig­and­inn ætl­aði honum að laga sig að og þegar heilsu­fæðið hafði mætt sjónum hans í mat­ar­skál­inni í nokkra daga hvarf hann.

For­sæt­is­ráð­herra­hjónin höfðu áhyggjur af Humphrey, héldu kannski að hann hefði orðið fyrir slysi. En nei, eftir nokkurn tíma kom í ljós að hann var kom­inn í fæði í húsi í nágrenn­inu. Á þeim bæ var ekk­ert heilsu­jukk í boði (eins og Humphrey hefði örugg­lega orðað það hefði hann mátt mæla), bara almenni­legt katta­fæði.

Hug­myndir um heilsu­á­tak Hump­hreys voru að mestu lagðar á hill­una og hann gaf upp önd­ina (vænt­an­lega saddur og sæll) í mars 2006. Þá hafði hann um ára­bil búið á katta­elli­heim­ili í Suður-London. Fjöl­miðlar víða um heim greindu frá því að Humphrey hefði kvatt þetta jarð­líf og haldið á hinar eilífu veiði­lendur, kannski fræg­asti köttur allra tíma, ef frá er tal­inn teikni­mynda­kött­ur­inn Tommi.

Um ketti hafa verið skrif­aðar margar bækur. Ein sú óvenju­leg­asta er lík­lega sú sem banda­ríski tón­list­ar­mað­ur­inn Charles Mingus, sem var mik­ill áhuga­maður um ketti, skrif­aði. Þessi bók, eða bæk­lingur, heitir „The Charles Mingus CAT-alog for Toilet Training Your Cat“. Hún fjallar um það sem nafnið gefur til kynna, kló­sett­þjálfun fyrir ketti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár