Þetta flykki var einu sinni sætur lítill gullfiskur í búri

Að sleppa gull­fiski lausum í tjörn eða á getur haft alvar­legar afleið­ingar á við­kom­andi vist­kerfi. Við­leitni til að gefa frelsi getur þannig auð­veld­lega breyst í skemmd­ar­verk. Tíma­ritið TIME greinir frá mál­inu.

Samkvæmt rann­sókn vís­inda­manna við Murdoch háskóla í Ástralíu, getur fiskur sem eitt sinn var gælu­dýr, haft mjög meng­andi áhrif á vist­kerfi í tjörnum og ám og þar með valdið miklum skaða.


Gull­fiskar og koi fiskar, sem eru vin­sælar fisk­teg­undir til að halda sem gælu­dýr, eru smá­vaxnir í fiska­búrum, en ef þeir sleppa lausir út í stærra umhverfi geta þeir marg­fald­ast að stærð. Þá éta þeir ógrynni fæðu sem aðrar teg­undir í vist­kerf­inu nærð­ust á, og bera oft og tíðum með sér fram­andi sjúk­dóma.


Samkvæmt rann­sókn sem Murdoch háskól­inn gaf út á síð­asta ári eru fram­andi ferskvatns­fiskar ein mesta ógn sem steðjar að líf­fræði­legum fjöl­breyti­leika í við­kom­andi vatna­sviði.


„Þeir éta fæð­una frá fisk­unum sem þar eru fyrir, og eru fyr­ir­ferða­miklir í umhverf­inu,“ segir Jeff Cosgrove, vís­inda­maður hjá Murdoch háskól­anum, í sam­tali við ástr­alska rík­is­út­varpið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár