Bjarni fundaði nýlega með Guðlaugi og Sigmundi um kosti Gunnars Braga

Bjarni Bene­dikts­son bar vitni um kosti Gunnars Braga Sveins­sonar á fundi með Sigmundi Davíð og Guðlaugi Þór. Gunnar Bragi hefur sjálfur lýst því hvernig hann skip­aði Geir H. Haarde sendi­herra árið 2014 í von um að fá bit­ling síðar.

B

jarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ræddi við Guðlaug Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra og flokks­fé­laga sinn, um mann­kosti Gunnars Braga Sveins­sonar á fundi sem þeir sátu með Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, for­manni Mið­flokks­ins og þing­manni í stjórn­ar­and­stöðu, fyrir fáeinum vikum. 

Þetta stað­festi Sig­mundur Davíð í við­tali við frétta­stofu Stöðvar 2 í kvöld. Haft var eftir honum að Bjarni hefði setið fund­inn til að bera vitni um kosti Gunnars Braga. 

„Hann var ekki að sjá um greiðslu á ein­hverju lof­orði. Hann ein­fald­lega gaf þau skila­boð að Gunnar Bragi væri með mik­il­væga reynslu og hann þekkti hann úr rík­is­stjórn­inni og það ætti að virða það við hann, en ekki neitt annað,“ sagði Sig­mundur. 

Eins og Stundin, DV og Kvenna­blaðið greindu frá í síð­ustu viku liggur fyrir hljóð­upp­taka þar sem Gunnar Bragi og Sig­mundur tala opin­skátt um að Gunnar Bragi hafi skipað Geir H. Haarde sem sendi­herra í von um að fá sjálfur bit­ling í utan­rík­is­þjón­ust­unni ein­hvern tím­ann seinna. 

Full­yrðir Sig­mundur Davíð á upp­tök­unni að Bjarni Bene­dikts­son hafi fall­ist á að ef Geir yrði sendi­herra ætti Gunnar Bragi „inni hjá Sjálf­stæð­is­flokknum“ og þeir hafi fundað með Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni, núver­andi utan­rík­is­ráð­herra, um hvernig mætti fylgja mál­inu eftir.

Af upp­tök­unni má ráða að Bjarni hafi gefið Guðlaugi skila­boð um að vilji hans væri sá að Gunnar Bragi yrði skip­aður sendi­herra. Stundin hefur árang­urs­laust óskað eftir svörum frá Guðlaugi um þetta efni en hann ekki séð ástæðu til að svara þrátt fyrir að ráðu­neytið hafi boðað svör í gær­kvöldi.

Nú í kvöld stað­festi hins vegar Sig­mundur Davíð að Bjarni hefði borið Gunnari Braga gott orð á fund­inum, og að Bjarni hefði bein­línis setið fund­inn til þess að „bera vitni um kosti Gunnars Braga“.

Eftir að fluttar voru fréttir byggðar á upp­tök­unum hafa allir hlut­að­eig­andi neitað því að um gagn­kvæma greiða­semi hafi verið að ræða, þ.e. að Gunnar Bragi hafi átt inni hjá Sjálf­stæð­is­flokknum fyrir það að hafa skipað Geir Haarde sem sendi­herra.

Hins vegar bendir ekk­ert í frá­sögn þeirra Gunnars Braga og Sig­mundar Davíðs af sendi­herrakap­alnum á Klaustri til þess að þeir séu að fara með gam­an­mál eða báðir að skrökva. 

Í 128. gr. almennra hegn­ing­ar­laga er kveðið á um að ef opin­ber starfs­maður heimtar, tekur við eða lætur lofa sér eða öðrum gjöfum eða öðrum ávinn­ingi sem hann á ekki til­kall til í sam­bandi við fram­kvæmd starfa síns, þá skuli við­kom­andi sæta sektum eða fang­elsi allt að 6 árum. Samkvæmt 139. gr. sömu laga varðar það sektum eða fang­elsi alltað 2 árum ef opin­ber starfs­maður mis­notar stöðu sína sér eða öðrum til ávinn­ings. 

Í lögum um ráð­herra­á­byrgð kemur fram að ákvæði almennra hegn­ing­ar­laga um brot í opin­beru starfi taki til ráð­herra eftir því sem við getur átt. Ráð­herra­á­byrgð­ar­lögin leggja blátt bann við því að ráð­herrar mis­beiti stór­lega valdi sínu, líka þótt ráð­herra „hafi ekki bein­línis farið út fyrir emb­ætt­is­tak­mörk sín“. 

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, vakti máls á því í gær hvort Alþingi þyrfti ekki að skoða nýjar upp­lýs­ingar um skipun sendi­herra með til­liti til ráð­herra­á­byrgð­ar­laga og laga um lands­dóm. 

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis sam­þykkti á fundi sínum í morgun að kalla þá Bjarna Bene­dikts­son, Guðlaug Þór Þórð­ar­son, Sigmund Davíð Gunn­laugs­son og Gunnar Braga Sveins­son á fund nefnd­ar­innar vegna máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hug­sjóna­flokkur verður að borg­ara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síð­ustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trú­verð­ug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokk­ur­inn tal­aði áður skýrt á móti. Samhliða hefur rót­tækt fólk úr gras­rót­inni yfir­gefið Vinstri græn, kjós­enda­hóp­ur­inn breyst, hratt gengið á póli­tíska inn­eign Katrínar Jak­obs­dóttur og fylgi flokks­ins hrunið. Þetta er fórn­ar­kostn­aður þess að kom­ast að völdum með áður yfir­lýstum póli­tískum and­stæð­ingum sínum.

10 mín. lestur

ÚttektRíkisstjórn Katrínar

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár