Ferðatakmarkanir í gildi hér til 15. maí

Íslensk stjórn­völd munu stað­festa fram­leng­ingu á ferða­tak­mörk­unum sem eru í gildi á ytri landa­mærum aðild­ar­ríkja Schengen. Tak­mark­an­irnar verða því í gildi til 15. maí.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Stjórnarráðið

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra sagði á blaða­manna­fundi rík­is­stjórn­ar­innar í Safna­hús­inu í dag að enn væru ekki komnar fram neinar til­lögur um auknar ferða­tak­mark­anir hér á landi en að ýmsir þættir væru í skoðun. „Auðvitað veltur þetta ekki aðeins á okkur heldur á sam­starfi ann­arra ríkja og við­brögðum ann­arra ríkja.“

Hins vegar myndu stjórn­völd, að til­lögu fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, fram­lengja ferða­tak­mark­anir sem gilda á ytri landa­mærum aðild­ar­ríkja Schengen. Enn væru svo ýmis lönd með tak­mark­anir á sínum innri landa­mærum. „Í morgun barst orð­send­ing frá fram­kvæmda­stjórn ESB þar sem er lagt til að aðild­ar­ríkin fram­lengi ferða­tak­mark­an­irnar til og með 15. maí næst­kom­andi. Ríki eru þegar farin að stað­festa slíka fram­leng­ingu og Ísland mun gera slíkt hið sama í þess­ari viku.“

[adspot]

Hún sagði að ákvarð­anir okkar væru háðar ýmsu, m.a. fram­boði og eft­ir­spurn ann­arra ríkja á tak­mörk­unum á þeirra landa­mærum. Leitað væri upp­lýs­inga hjá öðrum löndum vegna þessa.

Áslaug sagði að almanna­varna­kerfið, sem er sam­starf margra aðila, hafi skilað mjög miklum árangri. „En við erum enn á neyð­ar­stigi almanna­varna og við munum vera þar áfram á meðan ein­hverjar tak­mark­anir eru í gildi.“

[links]Dóms­mála­ráð­herra sagði að aflétt­ing á ýmsum tak­mörk­unum sem nú hafa verið kynntar muni hafa jákvæð áhrif á þús­undir manna. „Það verður ánægju­legt að sjá skóla­starf fara í gang með eðli­legum hætti sem og fyr­ir­tæki að eiga auð­veld­ara með að starfa með hefð­bundn­ara sniði.“

Áslaug sagði að aðgerð­irnar hefðu haft þau jákvæðu áhrif að draga úr smitum en að nei­kvæðu áhrifin væru einnig til staðar. „Við höfum fyrst og fremst verið að fást við þetta sem heil­brigð­isvá og höfum tek­ist á við verk­efnið undir þeim for­merkjum og frum­hlut­verk okkar í þessu, almanna­varna og allra, er að vernda líf og heilsu fólks.“

Sagði hún Íslend­inga ekki hafa látið ótt­ann ná yfir­hönd­inni og að „hvernig við bregð­umst við mót­læti segir mikið um okkur sjálf“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár