Ætlum ekki að „renna í skriðunni og lenda á nefinu“

Þrátt fyrir að ýmsum tak­mörk­unum verði aflétt eftir 4. maí er „mikið átaks­verk­efni eftir sem við þurfum að klára saman, allt sam­fé­lagið,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra í dag.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Stjórnarráðið

For­sæt­is­ráð­herra segir að margt hafi gerst frá því að síð­ast var hald­inn blaða­manna­fundur og sam­komu­tak­mark­anir settar á. „Ég er nokkuð viss um að okkur líður öllum eins og sá tími sé lengri en hann er í raun og veru,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra á blaða­manna­fundi rík­is­stjórn­ar­innar í Safna­hús­inu við Hverf­is­götu í dag þar sem kynnt voru áform um aflétt­ingu sam­komu­tak­mark­ana í skrefum.

Katrín sagði að hér á landi hafi frá upp­hafi verið beitt hörðum sótt­varn­ar­að­gerðum til að hefta útbreiðslu veirunnar. Þær aðgerðir munu enn allar verða við lýði til 4. maí er fyrstu skrefin í að aflétta tak­mörk­unum verða tekin. For­sæt­is­ráð­herra sagði að með þessum aðgerðum hafi tek­ist að fækka smitum dag frá degi. „En það þýðir ekki að kálið sé sopið þó það sé komið í aus­una. Sigurinn er ekki í höfn.“

[adspot]

Frá upp­hafi var það mark­mið yfir­valda á Íslandi að hefta útbreiðslu far­ald­urs­ins, vernda við­kvæm­ustu hópana og tryggja að heil­brigð­is­kerfið myndi ráða við álagið. „Við getum sagt það að jú, það lítur út fyrir að við séum að ná þessum mark­miðum,“ sagði Katrín og benti á að næstu skref væru að fækka smitum enn meira og að ná „full­komnum tökum á veirunni.“

Katrín líkti því sem framundan er við fjall­göngu þar sem síð­asta brekkan er eftir. Freist­andi væri að taka sér hvíld á göng­unni, setj­ast niður og borða nestið og sleppa því að fara upp á tind­inn. „En það er ekki í boði,“ sagði hún.

[links]Og ef haldið væri áfram upp brekk­una og alla leið á tind­inn þá væri hætta enn fyrir hendi, hætta á að maður flýti sér ansi hratt niður. „Þá rennur maður í skrið­unni og endar á nef­inu og það ætlum við ekki að gera.“

Katrín sagði að tak­mörk­unum yrði aflétt í fáum en stórum skrefum. „Við þurfum að hafa úthald til að fara niður brekk­una nægi­lega hægt til að tryggja að smitið blossi ekki upp aftur.“

Stóra mark­miðið sé að ná fullum tökum á veirunni.

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra sagði á fund­inum að far­ald­ur­inn hefði hingað til verið öllum mikið lær­dóms­ferli; álags­próf á inn­viði íslensks sam­fé­lags. Ísland gæti síðar meir sagt að það hefði stað­ist það álag en próf­inu er ekki enn lokið. „Þetta er senni­lega eitt stærsta verk­efni sem við höfum tek­ist á hendur sem sam­fé­lag,“ sagði Svandís. Við nytum góðs af því að vera eyland og lítið sam­fé­lag þar sem hægt væri að koma upp­lýs­ingum hratt á fram­færi. Íslend­ingar hefðu sýnt að þeir standa saman þegar á móti blæs.

Í kynn­ingu sinni á aflétt­ingu tak­mark­ana lagði hún ríka áherslu á að mik­il­vægt væri að huga áfram vel að sótt­vörnum svo sem hand­þvotti og að virða tveggja metra fjar­lægð­ar­mörkin.

Aflétting takmarkana í hnotskurn:

Frá 4. maí munu fjölda­tak­mörk sam­komu­banns mið­ast við 50 ein­stak­linga í stað 20 og skóla­starf í leik- og grunn­skólum verður með eðli­legum hætti. Fram­halds- og háskólar geta einnig opnað dyr sínar fyrir nemum á ný, en meg­in­reglan um að ein­ungis 50 manns megi vera í sama rými verður í gildi.

Hár­greiðslu­stofur, nudd­stofur, sjúkra­þjálfun, söfn, snyrti­stofur og fleiri þjón­ustur sem þurftu að loka í mars­mán­uði munu geta opnað á ný, en þó ber að tryggja tveggja metra fjar­lægð á milli við­skipta­vina eins og hægt er.

Tann­lækn­ingar verða heim­ilar á ný, rétt eins og öll önnur heil­brigð­is­starf­semi sem ekki felur í sér val­kvæðar skurð­að­gerðir eða aðrar ífar­andi aðgerðir.

Skipu­lagt íþrótta­starf barna á leik- og grunn­skóla­aldri getur haf­ist að nýju, utandyra, en þó með þeim tak­mörk­unum að ekki mega fleiri en 50 vera saman í hóp og halda skal tveggja metra fjar­lægð­inni eins og mögu­legt er, sér­stak­lega hjá eldri börnum.

Annað skipu­lagt íþrótta­starf verður heim­ilt utandyra, en þó áfram með miklum tak­mörk­unum. Þannig mega ekki fleiri en fjórir ein­stak­lingar æfa eða leika saman, snert­ingar verða óheim­ilar og halda skal tveggja metra fjar­lægð á milli fólks. Þá þarf að halda notkun á sam­eig­in­legum bún­aði í lág­marki, en ann­ars sótt­hreinsa bún­að­inn á milli notk­unar.

Ýmislegt annað helst óbreytt. Þannig verða sund­laugar og lík­ams­rækt­ar­stöðvar áfram lok­aðar og einnig skemmti­staðir, barir, spila­salir og aðrir svip­aðir staðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár