Ýmis þjónusta getur hafist á ný 4. maí en miklar hömlur áfram í gildi

Sam­komu­bann mun frá 4. maí mið­ast við 50 manns í stað 20 nú og ýmis þjón­usta getur haf­ist á ný. Þá verður íþrótta­starf barna leyft á ný, en þó er ljóst að áfram verða miklar hömlur á dag­legu lífi fólks.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra á blaðamannafundinum í dag.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra á blaða­manna­fund­inum í dag. Mynd: Bára Huld Beck

Frá 4. maí munu fjölda­mörk sam­komu­banns mið­ast við 50 ein­stak­linga í stað 20 og skóla­starf í leik- og grunn­skólum verður með eðli­legum hætti. Fram­halds- og háskólar geta einnig opnað dyr sínar fyrir nemum á ný, en meg­in­reglan um að ein­ungis 50 manns megi vera í sama rými verður í gildi.

Þetta kynnti Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra á blaða­manna­fundi sem fram fór í Safna­hús­inu við Hverf­is­götu kl. 12.

Hár­greiðslu­stofur, nudd­stofur, sjúkra­þjálfun, söfn, snyrti­stofur og fleiri þjón­ustur sem þurftu að loka í mars­mán­uði munu geta opnað á ný, en þó ber að tryggja tveggja metra fjar­lægð á milli við­skipta­vina eins og hægt er.

Tann­lækn­ingar verða heim­ilar á ný, rétt eins og öll önnur heil­brigð­is­starf­semi sem ekki felur í sér val­kvæðar skurð­að­gerðir eða aðrar ífar­andi aðgerðir.

Skipu­lagt íþrótta­starf barna á leik- og grunn­skóla­aldri getur haf­ist að nýju, utandyra, en þó með þeim tak­mörk­unum að ekki mega fleiri en 50 vera saman í hóp og halda skal tveggja metra fjar­lægð­inni eins og mögu­legt er, sér­stak­lega hjá eldri börnum.

Annað skipu­lagt íþrótta­starf verður heim­ilt utandyra, en þó áfram með miklum tak­mörk­unum. Þannig mega ekki fleiri en fjórir ein­stak­lingar æfa eða leika saman, snert­ingar verða óheim­ilar og halda skal tveggja metra fjar­lægð á milli fólks. Þá þarf að halda notkun á sam­eig­in­legum bún­aði í lág­marki, en ann­ars sótt­hreinsa bún­að­inn á milli notk­unar.

Ýmislegt annað helst óbreytt. Þannig verða sund­laugar og lík­ams­rækt­ar­stöðvar áfram lok­aðar og einnig skemmti­staðir, barir, spila­salir og aðrir svip­aðir staðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár