Mynd: Heiða Helgadóttir

Ætlaði aldrei að afsala sér föðurhlutverkinu

Hugi Ingi­bjarts­son stóð frammi fyrir þeirri spurn­ingu hvort hann ætti að fá for­ræði yfir dóttur sinni og ala hana upp sem ein­stæður faðir eða gefa hana alfarið frá sér. Hann ákvað að gefa hana í trausti þess að hjá fóst­ur­for­eldrum myndi hún eign­ast betra líf en hann gæti gefið henni. Hann var hins vegar ekki til­bú­inn til þess að afsala sér föð­ur­hlut­verk­inu og stóð í þeirri trú að hann gæti haldið umgengni við dóttur sína. Hann seg­ist hafa verið svik­inn um það, þegar hann fær aðeins að taka hana tvisvar í mán­uði, fimm tíma í senn. Nú vill hann fá hana aftur.

Hugi var ekki í sam­bandi við barns­móður sína þegar hún varð ólétt. Þau höfðu kynnst lít­il­lega í bænum og farið nokkrum sinnum heim saman. Tveimur mán­uðum eftir síð­asta stefnu­mótið fékk hann sím­tal, þar sem hann sat á Saffran og smjatt­aði á kjúklingi. Hann heyrði strax að það væri eitt­hvað mikið undir og brá í brún þegar hún til­kynnti honum að hún væri ólétt, 45 ára gömul. Það var sem tím­inn stæði í stað. Sjálfur var hann 48 ára, tveggja barna faðir og ekki til­bú­inn í frek­ari barn­eignir. Hún var hins vegar stað­ráðin í að eign­ast barnið og hann ákvað að taka þátt í því með henni.

Með­gangan gekk illa, barns­móðir hans, Hugrún Sig­ur­jóns­dóttir, fékk með­göngu­eitrun og í lok maí var hún gang­sett fimm vikum fyrir settan dag. Fæðingin end­aði með keis­ara­skurði og dóttir þeirra varði næstu sól­ar­hringum á vöku­deild, pínu­lítið og varn­ar­laust kríli. Fljót­lega eftir heim­kom­una fór kveisa að gera vart við sig og hún grét sáran, öllum stundum, svo mán­uðum skipti. „Á tíu mán­uðum var hún búin að grenja okkur bæði í bilun. Hún öskr­aði alla daga,“ útskýrir Hugi. Þau leit­uðu allra ráða, fóru til lækna og sér­fræð­inga sem fundu aldrei neitt að henni. „Ég hefði aldrei trúað því hvað það er mikið álag að sinna svona óværu barni. Á meðan barn­inu líður illa grefur það um sig í hjart­anu og þig verkjar fyrir hönd barns­ins alla daga. Það er engin gleði­til­finn­ing sem fylgir því að vera með barn sem er í stöðugri van­líðan.“

Þau reyndu allt. Eftir nokkra mán­uði reyndu þau jafn­vel óhefð­bundnar leiðir, fóru með hana til heil­ara sem lagði hendur yfir höfuð hennar og vís­aði þeim síðan til kíróprakt­ors sem tog­aði stelpuna og teygði. „Ég var alltaf með þá kenn­ingu að hún væri með verki í bak­inu af því að mér fannst hún beita sér þannig. Eftir að við fórum til kíróprakt­ors­ins áttum við í fyrsta sinn í marga mán­uði rólegt kvöld, þar sem hún var ekki öskr­andi út í gegn. Við fórum aftur þangað og henni fór batn­andi upp frá því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Að gefa barnið sitt

ViðtalAð gefa barnið sitt

„Ég þekki aðeins að vera móðir í 300 daga“

Hugrún Sig­ur­jóns­dóttir hafði verið full­vissuð af lækni að hún væri komin á aldur þegar hún varð óvart ólétt 45 ára gömul. Hún ákvað að eign­ast barnið, en eftir erf­iða með­göngu, erf­iða fæð­ingu og stöðugan grátur í marga mán­uði, gafst hún upp og gaf barnið frá sér til fólks sem hafði lengi þráð að eign­ast barn. Hún hefur aldrei séð eftir því.

20 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár