
Ætlaði aldrei að afsala sér föðurhlutverkinu
Hugi Ingibjartsson stóð frammi fyrir þeirri spurningu hvort hann ætti að fá forræði yfir dóttur sinni og ala hana upp sem einstæður faðir eða gefa hana alfarið frá sér. Hann ákvað að gefa hana í trausti þess að hjá fósturforeldrum myndi hún eignast betra líf en hann gæti gefið henni. Hann var hins vegar ekki tilbúinn til þess að afsala sér föðurhlutverkinu og stóð í þeirri trú að hann gæti haldið umgengni við dóttur sína. Hann segist hafa verið svikinn um það, þegar hann fær aðeins að taka hana tvisvar í mánuði, fimm tíma í senn. Nú vill hann fá hana aftur.
14 mín. lestur
